665-07.jpg
Forsíða arrow Framkvæmdir / Skipulag arrow Bæjarskipulag arrow Skipulag í kynningu
Skipulag í kynningu

Hér fyrir neðan er að finna skilgreiningar á orðum og hugtökum sem tengjast skipulagsmálum:
Aðalskipulag: Skipulagsáætlun fyrir tiltekið sveitarfélag þar sem fram kemur stefna sveitarstjórnar um landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi,
umhverfismál og þróun byggðar í sveitarfélaginu á minnst 12 ára tímabili.
Byggingarleyfi: Leyfi sveitarstjórnar til að byggja, breyta eða rífa hús eða önnur mannvirki eða breyta notkun þeirra. Leyfið felur í sér samþykkt aðaluppdrátta og framkvæmdaáforma og heimild til að hefja framkvæmdir að uppfylltum skilyrðum, sbr. 44. gr.
Deiliskipulag: Skipulagsáætlun fyrir afmarkaða reiti innan sveitarfélags sem byggð er á aðalskipulagi og kveður nánar á um útfærslu þess. Ákvæði um deiliskipulag eiga jafnt við um þéttbýli og dreifbýli.
Framkvæmdaleyfi: Leyfi til framkvæmda í samræmi við skipulag og sem ekki eru háðar ákvæðum IV. kafla laga þessara um
mannvirki.
Hverfisvernd: Ákvæði í svæðis-, aðal- eða deiliskipulagi um verndun sérkenna eldri byggðar eða annarra menningarsögulegra minja.
Landnotkun: Ráðstöfun lands til mismunandi nota, svo sem undir íbúðir, iðnað, verslun, útivist og landbúnað.
Landnýting: Samheiti yfir mælikvarða á það hversu mikil nýting lands er, svo sem nýtingarhlutfall, þéttleika byggðar og ítölu.
Nýtingarhlutfall: Hlutfall milli brúttógólfflatar á lóð eða reit og flatarmáls lóðar eða reits.
Skipulagsáætlun: Áætlun sem gerir grein fyrir markmiðum viðkomandi stjórnvalda og ákvörðunum um framtíðarnotkun lands og fyrirkomulag byggðar og lýsir forsendum þeirra ákvarðana. Skipulagsáætlanir skiptast í þrjá flokka: Svæðisskipulag, aðalskipulag og deiliskipulag. Skipulagsáætlun er sett fram í greinargerð og á uppdrætti.
Skipulagskvaðir: Kvaðir sem lagðar eru á einstakar lóðir í skipulagi, svo sem um fjölda bílastæða, umferðarrétt eða legu lagna. Skipulagsskilmálar: Ákvæði í skipulagsáætlun um nánari útfærslu skipulags um samsetningu byggðar, byggingarlínur, hæð húsa o.fl.
Svæðisskipulag: Skipulagsáætlun sem tekur yfir fleiri en eitt sveitarfélag. Hlutverk svæðisskipulags er að samræma stefnu um landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi, umhverfismál og þróun byggðar á svæðinu á minnst 12 ára tímabili.
Þéttbýli: Þyrping húsa þar sem búa a.m.k. 50 manns og fjarlægð milli húsa fer að jafnaði ekki yfir 200 metra.
Þéttleiki byggðar: Landnýting innan þéttbýlis miðað við brúttóflatarmál lands sem m.a. er lýst með hlutfalli milli samanlagðs gólfflatar á tilteknu svæði og flatarmáls svæðisins eða reikningsstærðum eins og íbúar/ha eða íbúðir/ha.
Skipulags- og byggingarlög 73/1997 með áorðnum breytingum


Þessi flokkur er tómur eins og er