Aðsetur: Fannborg 2, 2. hæð.
Sími: 570-1500
Fax: 570-1501
Opið alla virka daga frá kl: 08:30-15:00, símavarsla frá kl: 08:00-16:00 alla virka daga nema föstudaga til kl.15:00.
Leikskólafulltrúi:
Sesselja Hauksdóttir, leikskólafulltrúi, er yfirmaður leikskóladeildar Kópavogs. Leikskólafulltrúi hefur yfirumsjón með rekstri og uppeldisstarfi leikskólanna. Hann er tengiliður á milli leikskólanna og bæjaryfirvalda. Leikskólafulltrúi er næsti yfirmaður leikskólastjóra.
Leikskólaráðgjafi:
Gerður Guðmundsdóttir, leikskólaráðgjafi, starfar í 50 % starfi. Meginverkefni leikskólaráðgjafa er að vera leikskólastjórum og öðrum starfsmönnum til ráðgjafar um fagleg málefni. Er ráðgefandi varðandi starfsmannamál, í þróunarverkefnum, foreldrasamstarfi og miðlar þekkingu á nýjungum á sviði leikskólafræða. Hefur umsjón með fagbókasafni og endurmenntun. Viðtalstímar eru eftir samkomulagi.
Sigurlaug Bjarnadóttir, leikskólaráðgjafi, er í 95% starfi. Meginverkefni leikskólaráðgjafa er að vera leikskólastjórum og öðrum starfsmönnum til ráðgjafar um fagleg málefni. Er ráðgefandi varðandi starfsmannamál, í þróunarverkefnum, foreldrasamstarfi og miðlar þekkingu á nýjungum á sviði leikskólafræða. Viðtalstímar eru eftir samkomulagi.
Sérkennslufulltrúi:
Anna Karen Ásgeirsdóttir er sérkennslufulltrúi sem er m.a. yfirmaður stoðþjónustu í leikskólum Kópavogs. Hann hefur umsjón með úthlutun sérkennslutíma til leikskóla og veitir starfsmönnum leikskóla og foreldrum ráðgjöf og fræðslu vegna barna með sérþarfir. Sér um samskipti við þá sérfræðinga er starfa við leikskóla Kópavogs. Hann hefur einnig yfirumsjón með sérkennslusafni. Viðtalstímar eru eftir samkomulagi.
Ásdís E. Gunnlaugsdóttir er sérkennsluráðgjafi í 100% stöðugildi. Ásdís Emilía leysir Erlu Stefaníu Magnúsdóttur af tímabundið frá 1.ágúst 2008 meðan hún er í námsleyfi. Viðtalstímar eru eftir samkomulagi.
Innritunarfulltrúi:
Hanna Sigurðardóttir, innritunarfulltrúi, sér um skráningu á biðlista, annast innritun barna og skráningu vegna innheimtu dvalargjalda.
|