665-13.jpg
Forsíða arrow Tilkynningar arrow Ljóðstafur Jóns úr Vör - Ljóðasamkeppni
Ljóðstafur Jóns úr Vör - Ljóðasamkeppni PDF Prenta Rafpóstur
Lista- og menningarráð Kópavogs efnir, á hverju ári, til ljóðasamkeppni undir heitinu “Ljóðstafur Jóns úr Vör”.

Veitt eru vegleg verðlaun og verðlaunaskáldið fær til varðveislu, í eitt ár, göngustaf Jóns heitins úr Vör sem á er festur skjöldur með nafni þess.

Þriggja manna dómnefnd velur úr ljóðum sem berast samkeppninni.

Öllum skáldum er velkomið að senda ljóð í keppnina. Þau mega ekki hafa birst áður. Ljóðum skal skilað með dulnefni og skal nafn, heimili og sími skáldsins fylgja með í lokuðu umslagi auðkennt með sama dulnefni. Aðeins má senda eitt ljóð í hverju umslagi og þess vænst að ljóðunum sé skilað á pappírsstærðinni A-4 eða A-5.

Skilafrestur er auglýstur í desember og utanáskriftin er:

„Ljóðstafur Jóns úr Vör“
Tómstunda- og menningarsvið Kópavogs
Fannborg 2,
200 Kópavogi

Afhending verðlaunanna fer fram á afmælisdegi Jóns úr Vör, 21. janúar, ár hvert.

Þátttökuljóð má sækja á ofangreint heimilisfang fyrir 1. febrúar, eftir það verður þeim eytt.
 
< Fyrri   Næsti >