665-13.jpg
Forsíða arrow Tómstundir arrow Styrkir arrow Niðurgreiðsla æfingagjalda
Niðurgreiðsla æfingagjalda 2010- 2011 PDF Prenta Rafpóstur


Kópavogsbær veitir foreldrum / forráðamönnum iðkenda á aldrinum 5 - 17 ára styrki vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar.  Frá og með haustinu 2010 verður greiddur styrkur vegna barna- og unglinga sem fædd eru á árunum 1993 - 2005. Hér að neðan er listi yfir þá aðila sem falla undir Niðurgreiðslur æfingagjalda.

Tónlist, tónlistarnám og líkamræktarkort falla ekki undir niðurgreiðslu æfingagjalda.


Styrkurinn fyrir eina grein getur orðið allt að 15 þúsund krónur á ári. Hvert barn getur fengið niðurgreiðslu vegna 2 íþrótta- og/eða tómstundagreina og samtals getur styrkurinn því orðið kr. 30.000,- að hámarki á ári. Ef iðkun greinar er annarskipt þá er greitt hálft gjald fyrir hverja önn að hámarki kr. 7.500,-, þó aldrei hærra en kr. 15.000,- fyrir árið.

Framkvæmd niðurgreiðslunnar er þannig háttað að íþróttafélögin innheimta æfingagjöldin og sjá um að sækja styrkinn til bæjarins. Þetta þýðir að ef æfingagjald á ársgrundvelli er kr. 30.000,- greiðir foreldri/forráðamaður kr. 15.000,- til félagsins og félagið sækir framlagið kr. 15.000,- til bæjarfélagsins. Þetta á einnig við um Skátafélagið Kópa og Myndlistaskóla Kópavogs.

Iðkandi sem er í tómstundafélagi og þeir sem stunda tómstundir og íþróttir utan Kópavogs en eiga lögheimili í bæjarfélaginu, eða forráðamaður þeirra, þurfa að sækja styrkinn í þjónustuver Kópavogsbæjar, Fannborg 2, 1. hæð. Með framvísun greiðslukvittunar fyrir viðkomandi grein verður styrkurinn greiddur út.

Reglur og skilyrði fyrir styrk vegna niðurgreiðslu æfingagjalda eru eftirfarandi;

  1. Að barnið eigi lögheimili í Kópavogi.
  2. Að barnið iðki íþróttir/tómstundir á ársgrundvelli.
  3. Iðkandi getur aðeins fengið niðurgreiðslu vegna 2 íþrótta- og/eða tómstundagreina.
  4. Styrkur getur aldrei orðið hærri en æfingagjald viðkomandi íþrótta-/ tómstundagreinar.
  5. Hámarksstyrkur á hverja grein er kr. 15.000,-
  6. Við greiðslu æfingagjalda kemur styrkurinn til frádráttar æfingagjaldi.
  7. Til að félögin/iðkendur fái styrkinn greiddan frá ÍTK þarf að framvísa staðfestingu á greiðslu æfingagjalda fyrir viðkomandi iðkanda.
  8. Til að einstaklingar sem stunda tómstundir eða íþróttir utan Kópavogs fái styrkinn frá ÍTK þarf að framvísa staðfestingu á greiðslu æfingagjalda fyrir viðkomandi iðkanda.
  9. Að um sé að ræða skipulagt íþrótta- og tómstundastarf.

    Mikilvægt er að greiðslukvittanir berist tímanlega fyrir hverja önn. Með önn er átt við haustönn (frá 1.júlí – 31.des) og vorönn (frá 1.jan – 30.júní). Aðeins er greitt fyrir eina önn aftur í tímann. Berist greiðslukvittun ekki innan þessa tíma fellur greiðslan niður.

Listi yfir félög
Undir Niðurgreiðslu æfingagjalda falla öll íþrótta- og ungmennafélög í Kópavogi auk félaga utan Kópavogs sem eru með skipulagt íþróttastarf. Einnig falla öll Skátafélög sem eru með skipulagða starfsemi undir niðurgreiðsluna þó að þau séu ekki skráð á meðfylgjandi lista.

Breytingar voru gerðar á listanum í janúar 2010 og þá var sönglistarnámskeiðum bætt við. Nemar á þessum námskeiðum eiga því rétt á niðurgreiðslu frá janúar 2010.

Aðilar sem falla undir niðurgreiðslu æfingagjalda hjá Kópavogsbæ eru eftirtaldir:
Dans – Natasha Monay Royal
Skylmingafélag Reykjavíkur
Sporthúsið - Dans
Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur
World Class - Dans


Hjá eftirtöldum aðilum er niðurgreiðslan dregin af æfingagjöldum og félagið innheimtir styrkinn til bæjarins:
Breiðablik
Dansíþróttafélag Kópavogs (DÍK)
Dansfélagið Hvönn
Handknattleiksfélag Kópavogs
Íþróttafélagið Gerpla
Myndlistaskóli Kópavogs
Skátafélagið Kópar
Tennisfélag Kópavogs

Íþrótta- og tómstundaráð Kópavogs

 
< Fyrri   Næsti >