665-13.jpg
Forsíða arrow Tómstundir arrow Félagsstarf aldraðra
Félagsstarf aldraðra PDF Prenta Rafpóstur

Félagsstarf aldraðra hefur starfað sem sérstök deild innan félagssviðs Kópavogs frá því 1999. Starfrækt eru tvö félagsheimili:

  • Gjábakki - Fannborg 8, sími 554-3400
  • Gullsmári - Gullsmára 13, sími 564-5260, dagskrá haust 2010 
  • Boðinn - Boðaþingi 24, sími 512-7400

Bæklingur um Gjábakka og Gullsmára
Bæklingur um matarþjónustu félagsheimilanna og heimsendan mat

Yfirmaður félagsstarfs aldraðra er Sigurbjörg Björgvinsdóttir. Viðtalstími hennar er í Gjábakka miðvikudaga til föstudaga frá kl. 10:00 – 11:00 í síma 554-3400. Í Gullsmára er hún til viðtals á þriðjudögum frá kl. 10:00 – 11:00 í síma 564-5260.

Félagsheimilin eru opin frá kl 9:00 til 17:00 alla virka daga. Þar er hægt að setjast niður í notalegu umhverfi yfir kaffibolla og heimabökuðu meðlæti, lesa dagblöðin, horfa á sjónvarp, hlusta á útvarp og ræða málin.
Hádegisverður er framreiddur frá kl. 11:40 – 12:20 alla virka daga. Hádegisverð þarf að panta fyrir kl. 10:00 í síma 554-6611 (Gjábakki) eða síma 564-5260 (Gullsmári). Hægt er að fá heimsendan mat að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, nánari upplýsingar um heimsendan mat veita þjónustustjórar félagslegrar heimaþjónustu í síma 570-1500.
Félagsheimilin eru opin fólki á öllum aldri óháð félagsaðild, en sú starfsemi sem er niðurgreidd er eingöngu ætluð eldra fólki, búsettu í Kópavogi.

Starfsmenn í Gjábakka
Jóhanna Hauksdóttir, móttökuritari
Svanfríður Magnúsdóttir, matráður
Þórhildur Gísladóttir, leiðbeinandi í handmennt
S. Berglind Bragadóttir, ræstir

Starfsmenn í Gullsmára
Sigrún Þorláksdóttir, umsjónarmaður
Linda Gústafsdóttir, matráður
Þórhildur Gísladóttir, leiðbeinandi í handmennt
Sigrún B. Björnsdóttir, ræstir

Heyrumst! Sjáumst!

 
Næsti >