|
Aðsetur: Fannborg 2, 4. hæð
Sími: 570-1500
Fax: 570-1501
Skrifstofur: Opið alla virka daga frá kl. 8:00–16:00 nema föstudaga frá kl. 8:00 –15:00
Símavarsla og afgreiðsla í þjónustuveri Fannborg 2 kl. 8:00 – 16:00 nema föstudaga kl. 8:00 – 15:00
Netfang: thjonustuver@kopavogur.is
Kennitala Kópavogsbæjar: 700169-3759
Bæjarstjóri er Guðrún Pálsdóttir. Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri bæjarins, ráðinn af bæjarstjórn. Hann hefur á hendi framkvæmd ákvarðana bæjarráðs og bæjarstjórnar og fer ásamt bæjarráði með framkvæmda- og fjármálastjórn bæjarins. Bæjarstjóri er yfirmaður starfsmanna bæjarins og æðsti embættismaður.
Viðtalstímar bæjarstjóra eru á þriðjudögum frá kl. 10:00 – 12:00, símatími er á mánudögum frá kl. 11:00 – 12:00.
Nauðsynlegt er að panta viðtalstíma fyrirfram í síma 570-1500.
Bæjarritari er Páll Magnússon.
Bæjarritari er framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs. Hann samræmir og hefur með höndum stjórn á starfsemi er undir það svið heyrir svo sem fjármál, starfsmannamál, upplýsinga- og kynningarmál, tölvumál, skjalavörslu auk annarra starfsþátta bæjarskrifstofu. Bæjarritari er ritari bæjarráðs og bæjarstjórnar ásamt því að vera staðgengill bæjarstjóra í fjarveru hins síðarnefnda.
Á skrifstofu bæjarstjóra starfa Svanhildur Sigurjónsdóttir, ritari, og Brynja Harðardóttir, ritari.
Undir stjórnsýslusvið heyra Almannatengsladeild; forstöðumaður almannatengsla er Arna Schram, Almenn skrifstofa; skrifstofustjóri er Sigurður Björnsson, Fjármáladeild; fjármála- og hagsýslustjóri er Ingólfur Arnarson, Lögfræðideild; bæjarlögmaður er Þórður Clausen Þórðarson, Starfsmannadeild; starfsmannastjóri er Þorsteinn Einarsson og Upplýsingatæknideild; forstöðumaður er Sæmundur Valdimarsson og gæðamál: gæðastjóri er Sigurður Guðmundsson.
Stefna fjármála- og stjórnsýslusviðs Kópavogsbæjar (pdf 878 KB)
|