Forsíða
Roðasalir PDF Prenta Rafpóstur


Roðasölum 1
Sími 570-1480.
Forstöðumaður er Ída Atladóttir hjúkrunarfræðingur, ida@kopavogur.is, beinn sími 570-1482.
Deildarstjóri er Guðrún Sigurborg Viggósdóttir sjúkraliði, gudrunsv@kopavogur.is

Viðtöl eru ákveðin í samráði við forstöðumann og deildarstjóra.

Sambýlið var opnað 19. janúar 2005. Það er fyrsta sinnar tegundar í Kópavogi og gegnir því hlutverki að mæta þörfum minnissjúkra aldraðra einstaklinga sem geta ekki lengur búið í heimahúsum og þurfa hjúkrun, þjónustu, öryggi og eftirlit.
Í sambýlinu eru 8 einstaklingsherbergi, sameiginlegt rými sem er borðstofa og tvær setustofur. Fjórar snyrtingar eru á sambýlinu ásamt rúmgóðri baðaðstöðu. Þvottahús er í sambýlinu. Í eldhúsi sem er inn af borðstofu er eldað og bakað til heimilisins.

Áhersla er lögð á útivist og hreyfingu heimilismanna og að viðhalda færni þeirra.

Til að sækja um vistun á sambýlinu þarf viðkomandi að hafa gilt vistunarmat og eiga lögheimili í Kópavogi.