Forsíða
Skjólbrekka PDF Prenta Rafpóstur

Dvalarsambýlið Skjólbrekka, Skjólbraut 1a
Forstöðumaður; Helga Steinarsdóttir, sjúkraliði
Sími; 554-5088, netfang helgas@kopavogur.is
Viðtöl eru ákveðin í samráði við forstöðumann

Sambýli aldraðra, Skjólbraut 1a, tók til starfa 1987. Sambýlið er svokallað dvalarsambýli en þar er rými fyrir 11 einstaklinga. Kópavogsbær á húsnæðið sem er einbýlishús og rekur sambýlið með daggjöldum frá ríkinu. Heimilislegur bragur og hlýleiki er auðkenni sambýlisins og þjónustan einkennist af nánum tengslum og samskiptum við heimilismenn.

Stöðugildi starfsmanna á sambýlinu eru 6,5 auk forstöðumanns en fjöldi starfsmanna er breytilegur eftir því hvernig stöðugildin skiptast hverju sinni.

Til að sækja um vistun í Skjólbrekku þarf viðkomandi að hafa gilt vistunarmat.

Um er að ræða einbýlishús á tveimur hæðum. Á efri hæð eru þrjú herbergi vistmanna, baðherbergi, eldhús og sameiginleg setustofa, sólstofa og stórar svalir. Á neðri hæðinni eru átta herbergi fyrir vistmenn, tvær snyrtingar, setustofa og þvottahús. Öll herbergin eru einbýli, stigi er á milli hæða en ekki lyfta.

Haukur Valdimarsson, læknir á heilsugæslustöð Salahverfis, sinnir allri almennri læknisþjónusta við vistmenn.

Bæklingur um Skjólbrekku

Nánari upplýsingar um þjónustu við heimilismenn í Skjólbrekku veitir forstöðumaður.