|
Dvalarheimilið Gullsmári
Gullsmára 11
Sími 564-4720
Forstöðumaður er Sigrún Guðmundsdóttir sjúkraliði, netfang sigrungudm@kopavogur.is
Viðtöl eru ákveðin í samráði við forstöðumann.
Dvalarheimilið Gullsmári tók til starfa 1995. Á heimilinu er rými fyrir 10 einstaklinga. Kópavogsbær á húsnæðið, sem er á annarri hæð í 10 hæða lyftuhúsi, og rekur það með daggjöldum frá ríkinu. Mikil og náin samskipti eru við vistmenn og mikil áhersla lögð á að skapa sem heimilislegastar aðstæður.
Í dvalarheimilinu starfa auk forstöðumanns 7 starfsmenn.
Til að sækja um vistun í Gullsmára þarf viðkomandi að hafa gilt vistunarmat og eiga lögheimili í Kópavogi.
Haukur Valdimarsson, læknir á heilsugæslustöð Salahverfis, sinnir allri almennri læknisþjónustu við vistmenn.
Dvalarheimilið er á annarri hæð með 10 einstaklingsherbergi, ásamt sameiginlegu rými, sem er stofa og borðstofa. Þrjár snyrtingar eru á hæðinni ásamt baðaðstöðu sem er sturta. Eldhúsið er opið inn af stofu en þar er allt eldað og bakað til heimilisins. Þvottahús er á fyrstu hæð hússins.
Dvalarkostnaður er greiddur með daggjöldum.
Bæklingur um Gullsmára
Nánari upplýsingar um þjónustu við heimilismenn í Gullsmára veitir forstöðumaður.
|