665-11.jpg
Forsíða arrow Þjónusta arrow Áhaldahús
Áhaldahús PDF Prenta Rafpóstur

Aðsetur : Álalind 1
Sími 570-1660 Fax 554-5055 

Beinir símar inn á deildir:
Vatnsveita 570-1669
Vélamiðstöð 570-1668
Birgðastöð 570-1670
Trésmiðja 570-1671

Opið virka daga 8:00 – 16:30

Áhaldahús Kópavogs er til húsa að Álalind 1.
Starfssemi Áhaldahúss er skipt í fimm deildir: Útivinnudeild, Garðyrkjudeild, Vélaverkstæði, Trésmiðja, Birgðastöð og Vatnsveita.
Í Áhaldahúsi er bilanavakt og gæsluvakt bæjarins, sem tekur á móti tilkynningum um bilanir á gatna og veitukerfi og liðsinnir bæjarbúum utan venjulegs opnunartíma.
Bilanasími gæsluvaktar er 892-8215 eftir kl. 17:00 og um helgar. 
Bilanasími Vatnsveitu er 840-2690 eftir kl. 17:00 og um helgar.

Yfirverkstjóri Áhaldahúss er Jóhannes Pétursson , tæknifræðingur.

Verkstjóri útivinnuhópa, umsjón snjómoksturs, gatnahreinsunar o.fl. og umsjónarmaður vegna lausagöngu hrossa er Árni Björgvinsson.

Eftirlitsverkstjóri gatna-,gangstétta- og kantsteinaframkvæmda er Bjarni Jónsson.
Umsjónarmaður jarðvegstipps, forðagæslu og númerslausra bifreiða í gatnakerfi og landi bæjarins er Jón Ingi Ragnarsson
Ritari er María Vera Gísladóttir.

Sorphreinsun:

Áhaldahús er tengiliður íbúa við verktaka, sem sinnir sorphreinsun í Kópavogi. Einnig sér Áhaldahúsið um að dreifa sorpílátum til íbúa. Vignir Pálsson þjónustufulltrúi tekur á móti kvörtunum og ábendingum vegna sorphirðu.

Vatnsveita:

Ný vatnsveita var tekin í notkun árið 2007. Byggt var dæluhús fyrir 6 borholudælur og 1000 m³ vatnstankur í Vatnsendakrikum. Einnig var byggður 4000 m³ miðlunartankur í Heimsenda, dælustöð við Tröllakór og tengihús við Reykjanesbraut. Settar voru upp tvær vara rafaflstöðvar. Aflagðar voru fjórar dælustöðvar með samtals 16 dælum. Einnig er 1300 m³ miðlunartankur við Digranesheiði. Tölvuvætt eftirlitskerfi fylgist með rennsli og þrýstingi víðsvegar í kerfinu ásamt heildar rennsli inn á hin ýmsu svæði. Við vatnsveituna starfa 5 menn sem sjá um allar nýlagnir og viðhald vatnslagna.
Forstöðumaður Vatnsveitu Kópavogs er Jón Auðunsson.

Útivinnudeild:

Sér um viðhald á gatna-, göngustíga og holræsakerfi bæjarins, hreinsun gatna og opinna svæða, umferðamerkingar, snjómokstur ásamt þjónustu við stofnanir og íbúa bæjarins. Einnig sinnir deildin ýmsum minni nýframkvæmdum við holræsi, stíga og gatnagerð.


Garðyrkjudeild:

Heilssársstarfsmenn eru fjórir og starfa undir stjórn yfirverkstjóran og faglegri stjórn garðyrkjustjóra við garðyrkjustörf og umhirðu gróðurs í bæjarlandinu auk viðhalds og umhirðu á stofnanalóðum. Nýframkvæmdir taka helst til opinna svæða og frágangur við göngustíga og gangstéttir. Yfir sumartímann fjölgar starfsmönnum verulega. Sumarstarfsmenn sinna slætti, ýmissri viðhaldsvinnu, gróðursetningu og fegrun bæjarins. Deildin vinnur einnig náið með Vinnuskóla Kópavogs.
Garðyrkjuverkstjóri er Svavar Sverrisson.


Vélaverkstæði:

Tveir starfsmenn sjá um viðhald og fyrirbyggjandi eftirlit allra tækja sem heyra undir starfsemi Áhaldahússins, einnig er þar framkvæmd ýmis nýsmíði vegna sérhæfðra tækja sem oft er erfitt að afla varahluta í. Yfir vetrartímann er álagið hvað mest þar sem halda þarf snjóruðningstækjum í fullkomnu standi. Á sumrin er aðalvinnan fólgin í að halda slátturtækjum gangandi. Verkstjóri vélaverkstæðis er Viðar Þórmóðsson.


Trésmiðja:

5 starfsmenn, undir yfirumsjón eftirlitsmanns fasteigna, sjá um allt minniháttar viðhald og breytingar á fasteignum Kópavogsbæjar, ásamt ýmiskonar nýsmíði sem til fellur. Trésmiðjan hefur til umráða verkstæði til að sinna þeim verkefnum sem henni eru falin.
Verkstjóri trésmiðju er Vermundur Þórðarson.


Birgðastöð:

Einn starfsmaður aflar tilboða og sér um öll innkaup á varningi vegna starfsemi Áhaldahúss.
Birgðavörður er Þórður Oddsson.

 
< Fyrri   Næsti >