|
Starfsstyrkir listamanna (pdf)
Menningarstarf í Kópavogi (pdf)
Framúrskarandi árangur í listnámi (pdf)
Sérstyrkir ÍTK
Íþrótta- og tómstundaráð Kópavogs, ÍTK, úthlutar sérstyrkjum ráðsins tvisvar sinnum á ári, í júní og desember, og eru einungis teknar til greina skriflegar umsóknir sem berast áður en auglýstur frestur rennur út.
Breytingar á Reglugerð um úthlutun sérstyrkja ÍTK samþykktar á fundi ÍTK 3. febrúar 2009
Reglugerð um úthlutun sérstyrkja ÍTK
Reglugerð um úthlutun sérstyrkja Íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogs:
1. Úr sjóðnum eru veittir sérstyrkir til íþróttamála (sbr. vinnureglur).
2. Íþróttafélög í Kópavogi geta sótt um sérstyrki til ÍTK. Íþróttafélög sem bjóða upp á íþróttagreinar sem ekki eru stundaðar í Kópavogi geta einnig sótt um styrk til ÍTK vegna iðkenda sem eiga lögheimili í Kópavogi.
3. Styrkjunum er úthlutað tvisvar á ári, í júní og desember, og skulu skriflegar umsóknir berast áður en auglýstur frestur rennur út.
4. Íþróttafulltrúi skal svara öllum umsóknum fyrir hönd ÍTK.
Vinnureglur ÍTK vegna úthlutunar sérstyrkja
Íþrótta- og tómstundaráð Kópavogs telur æskilegt að styrkja:
1. Keppnisferðir til útlanda, þá helst á alþjóðlegt stórmót.
2. Mót haldin af íþróttafélögum bæjarins.
3. Þróunarverkefni á sviði íþróttamála.
4. Sérverkefni íþróttafélaganna.
Vinnureglur ÍTK vegna úthlutunar ferðastyrkja:
Samkvæmt vinnureglum ÍTK um ferðastyrki eru greiddar kr. 7.500,- á iðkendur í æfinga- og keppnisferðum, óháð fjölda. Ef um landsliðsferð, ferð á Ólympíuleika, Smáþjóðaleika, Heimsmeistara-, Evrópumeistara-, Norðevrópumeistara- eða Norðurlandameistaramót er að ræða, þá eru greiddar kr. 15.000,- til iðkenda, óháð fjölda. Greiði sérsamband eða aðrir aðilar fyrir ferð viðkomandi fellur styrkur frá ÍTK niður.
Starfsmenn ÍTK afgreiða ferðastyrki jafnharðan sem þeir berast að framlögðum þeim gögnum sem óskað er eftir. Því er hægt að senda inn umsókn um ferðastyrki allan ársins hring.
Hver iðkandi getur fengið, að hámarki, greitt fyrir 3 ferðir á ári, sé ekki um landsliðsferðir að ræða.
Ekki eru greiddir ferðastyrkir fyrir ferðir innanlands.
Íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs
Íþróttahátíð Kópavogs útnefnir ár hvert íþróttakarl og íþróttakonu ársins í Kópavogi á íþróttahátíð sem haldin er í byrjun janúar.
Veittar eru viðurkenningar í tveimur flokkum, 13-16 ára og 17 ára og eldri.
Hver deild í íþróttafélagi í Kópavogi tilnefnir 1 íþróttakarl og 1 íþróttakonu í hvorum aldurshópi sem sína bestu íþróttamenn, samkvæmt reglugerð.
Við tilnefningu besta íþróttafólksins í yngri aldurshópnum, þ.e. 13 til 16 ára, er mælst til þess að tekið verði tillit til fleiri þátta en íþróttalegrar getu/árangurs. Þessir þættir eru m.a. ástundun og dugnaður viðkomandi á æfingum og í leikjum, félagslyndi í hóp og innan íþróttafélagsins, prúðmennsku jafnt á æfingum sem í leikjum og fjölhæfni í íþróttum, þar sem fylgja mætti með upptalning á íþróttagreinum.
Heiðranir v/árangurs:
Íþróttaráð heiðrar sérstaklega deildir og/eða einstaklinga, íþróttafólk sem skarað hafa fram úr á hverju ári. Veittar eru viðurkenningar fyrir eftirfarandi titla og/eða árangur:
Norðurlandameistara,
Íslandsmeistara,
bikarmeistara og/eða
Íslandsmethafa hvers árs.
Afrekssjóður ÍTK
Einu sinni á ári, í nóvember, er auglýst eftir umsóknum í Afrekssjóð Íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogs (ÍTK).
Samkvæmt reglugerð eru markmið sjóðsins eftirfarandi:
a) Að veita afreksíþróttafólki í íþróttafélögum í Kópavogi fjárhagslegan styrk vegna æfinga og/eða keppni og þannig búa þeim sem besta aðstöðu til að stunda íþrótt sína.
b) Að veita afreksíþróttafólki í hópíþróttum í íþróttafélögum í Kópavogi sem náð hefur afburðaárangri fjárhagslegan styrk og gera þeim kleift að búa sig enn betur undir áframhaldandi keppni.
c) Að styrkja afreksíþróttafólk sem á lögheimili í Kópavogi og stundar íþrótt sem ekki er iðkuð með íþróttafélagi í Kópavogi.
d) Að veita árlega styrki og viðurkenningar fyrir unnin afrek í íþróttum, jafnt kvenna sem karla.
Umsóknareyðublöð ásamt reglugerð fyrir sjóðinn fást á skrifstofu Íþrótta- og tómstundamála Fannborg 2, II hæð.
|