|
Þróunarverkefni og önnur verkefni |
|
|
|
|
Hér eru skýrslur um þróunarverkefni sem unnin hafa verið í leikskólum Kópavogs og á vegum leikskólaskrifstofu.
Leikskólinn Fagrabrekka
Út er komin bókin Börn geta meira en við höldum: Uppeldisfræðilegar skráningar - hvernig læra leikskólabörn. Höfundar eru Anna Friðriksdóttir, Edda Valsdóttir og Ingibjörg Erla Björnsdóttir. Bókin fjallar um verkefni sem spratt frá áhuga barnanna í leikskólanum Fögrubrekku á hvað gera mætti við hringlaga taubúta. Úr varð þemaverkefni sem náði yfir heilan vetur. Verkefni þar sem börnin saumuðu bæði kjól og teppi. Bókin er til sölu hjá leikskólanum.
Leikskólinn Baugur
Fuglinn á skólalóðinni er hefti um verkefni sem börn og kennarar í leikskólanum Baugi unnu saman. Heftið er til sölu hjá leikskólanum.
Leikskólinn Smárahvammur var fulltrúi leikskóla Kópavogs í verkefninu Jafnrétti í skólum. Jafnréttiskönnun í leikskólum frá maí 2008. Lokaskýrsla. Hér má finna ritgerð Maríönnu Einarsdóttur, leikskólastjóra, sem hún skrifaði sem hluta af námi sínu við Háskólann á Akureyri. Verkefnið „Getur strákur verið Rauðhetta?“ öðlaðist sjálfstætt líf og teygði anga sína inn í allt starf leikskólan.
Heildstæð þjónusta fyrir leikskólanemendur með einhverfu og fjölskyldur þeirra í Kópavogi er þróunarverkefni, unnið í samstarfi við Fræðsluskrifstofu Kópavogs og Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins. Verkefnið lýtur að þróun líkans eða umgjarðar um vinnubrögð sem hafa má að leiðarljósi í þjónustu við leikskólanemendur sem greinst hafa með einhverfu og fjölskyldur þeirra. Áfangaskýrsla Lokaskýrsla
Þróunarverkefni um lýðræði í leikskólastarfi „Maður verður að halda áfram að leika sér svo heilinn haldi áfram að virka”.Kveikjan af því verkefni sem hér verður fjallað um voru umræður í samfélaginu og á meðal leikskólakennara um skólakerfið almennt og nám leikskólabarna, einkum þeirra elstu. Hvernig læra fimm ára börn mest og best? Lokaskýrsla
Leikskólarnir Álfaheiði og Furugrund
Kennsluleiðbeiningar fyrir leikskólastarf með 1-3 ára börnum - Lengi býr að fyrstu gerð.
Leikskólinn Furugrund
Dalurinn okkar - Fossvogur , markmið og fleira. Lokaskýrsla.
Leikskólinn Núpur
Fjölgreindir í leikskólastarfi.
|