665-11.jpg
Forsíða arrow Menning arrow Menningastarf
Menningastarf PDF Prenta Rafpóstur
Aðsetur: Fannborg 2, 2. hæð
Sími: 570-1500
Fax: 570-1501
Skrifstofur opnar: Opið alla virka daga frá kl. 8:00 – 16:00 nema föstudaga frá kl. 8:00 – 15:00
Símavarsla og afgreiðsla í þjónustuveri Fannborg 2 frá kl. 8:00 – 16:00 nema föstudaga frá kl. 8:00 – 15:00
Framkvæmdastjóri tómstunda- og menningarsviðs er Guðrún Pálsdóttir. Hann hefur yfirumsjón með menningarmálum og íþrótta- og æskulýðsmálum hjá Kópavogsbæ. Viðtalstímar eru eftir samkomulagi. Deildarstjóri menningarmála er Linda Udengård.  Viðtalstímar eru eftir samkomulagi.

Í Kópavogi eru starfrækt fimm söfn: Bókasafn, Náttúrufræðisafn, Héraðsskjalasafn, Listasafn og Tónlistarsafn. Auk þess er, á Borgarholtinu, “Salurinn” sem er sérhannaður tónleikasalur og Molinn, menningarhús ungmenna. Tónlistarskóli Kópavogs er einnig á menningarholtinu en bærinn tekur þátt í rekstri hans ásamt tónlistarfélagi bæjarins. Einnig styrkir bærinn Myndlistarskóla Kópavogs og Leikfélag Kópavogs.
Lista- og menningarráð Kópavogs fer með yfirstjórn menningarmála. Í ráðinu eru fimm fulltrúar, valdir af bæjarstjórn, og fimm til vara. Ráðið starfar samkvæmt reglugerð bæjarstjórnar og mótar stefnu bæjarins í menningarmálum. Það sér um úthlutun styrkja til verkefna og viðburða á sviði menningarmála, starfsstyrkja til listamanna og tilnefnir árlega bæjarlistamann Kópavogs.


Menningarstarf í Kópavogi

Lista- og menningarráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna /viðburða á sviði menningar og lista í Kópavogi. Einstaklingar, félagasamtök og stofnanir geta sótt um styrki úr sjóðnum.

Umsóknum skal skilað á þar til gerðum umsóknareyðublöðum ásamt fylgiskjölum.

Lista- og menningaráð Kópavogs veitir styrki til menningarstarfs í Kópavogi tvisvar á ári, í nóvember og maí.
Eyðublöð fyrir styrktarumsóknir fást á skrifstofu Tómstunda- og menningasviðs Fannborg 2, 2.hæð og á heimasíðu Kópavogs, kopavogur.is

Hér er hægt að nálgast eyðublað til útprentunar
 
< Fyrri   Næsti >