|
Tvær tillögur að óperuhúsi í framhaldskeppni |
|
|
|
|
Dómnefnd í hönnunarsamkeppni um óperuhús í Kópavogi þótti engin þriggja tillagna uppfylla markmið keppninnar nægjanlega til að til að unnt yrði á þessu stigi að velja eina þeirra til útfærslu. Tveimur keppendum var gefinn kostur á að vinna tillögur sínar áfram í framhaldskeppni.
Undirbúningsnefnd um byggingu óperuhúss í Kópavogi kynnti niðurstöður dómnefndarinnar í Salnum í dag. Ávörp fluttu Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri, Þorvaldur S. Þorvaldsson arkitekt og Stefán Baldursson óperustjóri.
Þremur íslenskum arkitektastofum hafði verið boðið að taka þátt í samkeppninni. Skilyrt var að þær fengju til liðs við sig erlenda samstarfsaðila sem hefðu reynslu af hönnun óperuhúsa eða sambærilegra mannvirkja.
Markmiðið með óperuhúsinu er að það verði heimili fyrir óperuna á Íslandi og að þar verði fyrsta flokks aðstaða til óperu- og söngleikjaflutnings auk hliðstæðrar starfsemi, s.s. tónleika og annarrar sviðslistar eða uppákoma. Í keppnislýsingu var gert ráð fyrir að framkvæmdakostnaður næmi um það bil 2,5 milljörðum króna og húsið yrði risið árið 2010.
Þátt tóku arkitektastofurnar ASK Arkitektar ehf. ásamt Lund & Valentin Arkitekter, ALARK arkitektar ásamt David Crossfield Associates og Arkþing ehf. ásamt Arkitema K/S.
Þótt dómnefndin mæti það svo að engin tillaga uppfyllti með fullnægjandi hætti markmið samkeppninnar taldi hún þær allar vera metnaðarfullar, ólíkar og fjölbreyttar og bera með sér að í þær hefði verið lögð töluverð vinna og metnaður.
Þar sem dómnefnd þótti áhugaverðar lausnir koma fram í tveimur tillögum, annars vegar frá ALARK arkitektum og hins vegar frá Arkþingi ehf., og að í þeim lægju hugmyndir sem með áframhaldandi vinnu gætu fullnægt markmiðum keppninnar, mælti hún með því við undirbúningsnefndina að leitað yrði samstarfs við höfundana um þátttöku í framhaldskeppni. Undirbúningsnefndin samþykkti þá tillögu dómnefndar og höfundar tillagnanna hafa fallist á að taka þátt í slíkri keppni. Henni á að ljúka á hér um bil tveimur mánuðum.
Í dómnefnd sitja Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri, formaður, Stefán Baldursson óperustjóri og arkitektarnir Ásdís Ingþórsdóttir, Ólafur Axelsson og Þorvaldur S. Þorvaldsson. Undirbúningsnefnd skipa Gunnar I. Birgisson, Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs Kópavogsbæjar, Hafsteinn Karlsson bæjarfulltrúi, Stefán Baldursson óperustjóri og Jón Helgi Guðmundsson forstjóri.
Sýningin á hugmyndum keppendanna í Salnum mun standa í að minnsta kosti þrjár vikur og er opin almenningi.
Niðurstöðu dómnefndar, greinargerð hennar, umsagnir og teikningar keppenda má einnig finna á heimasíðu Kópavogsbæjar og Íslensku óperunnar. Þar er einnig hægt að koma á framfæri ábendingum og athugasemdum með einföldum hætti.
Kynning á tillögum og niðurstöðu hönnunarsamkeppni um óperuhús í Kópavogi |