|
Aðsetur: Fífuhvammi 20 (frá miðjum maí til um miðjan ágúst)
Sími: 570-1680
Netfang: vinnuskoli@kopavogur.is
Vinnuskólinn starfar í júní og júlí ár hvert.
Í Vinnuskóla Kópavogs gefst 14 - 16 ára unglingum (úr 8. til 10. bekk grunnskóla) kostur á að vinna við fjölbreytt störf hjá bæjarfélaginu.
Garðyrkjustjóri Kópavogsbæjar fer með yfirumsjón Vinnuskólans en forstöðumaður og starfslið hans sér um daglega stjórn.
Undanfarna áratugi hefur Kópavogsbær boðið unglingum störf í vinnuskóla og hafa margir Kópavogsbúar stigið þar sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Helstu verkefni eru snyrting og fegrun bæjarins.
Um Vinnuskólann
Vinna í skólanum er í senn uppeldi, afþreying og tekjusköpun fyrir unglingana. Unglingunum er kennt að umgangast verkefni sín, notkun verkfæra og að bera virðingu fyrir samstarfsfólki sínu. Í skólanum eru gerðar kröfur til unglinganna, sá sem fær vinnu í skólanum tekur að sér að… „vinna samviskusamlega þau verk sem honum eru falin og sýna kurteisi í samskiptum við stjórnendur skólans og bæjarbúa“ Lögð er áhersla á að unglingarnir klæði sig eftir veðri og hafi með sér nesti að heiman. Verði unglingi það á að brjóta reglur skólans er honum gefið tækifæri til að bæta sig áður en hann er sendur launalaus heim. Skólinn er ekki einungis vinna heldur er þar líka félagslíf, eins og í öðrum skólum. Haldnar eru nokkrar skemmtanir og íþróttakeppni á milli flokka og einstaklinga.
Starfið
Vinnuskólinn starfar, eins og áður sagði, í júní og júlí og býður unglingum, sem ljúka 8., 9. og 10. bekk upp á sumarstörf við snyrtingu og fegrun bæjarins. Elstu unglingunum er boðið að vinna við aðstoðarstörf hjá ýmsum stofnunum og félögum í bænum og er farið eftir umsögnum fyrri ára við val á þeim unglingum.
Eldri borgarar og öryrkjar geta fengið s.k. garðaþjónustu hjá Vinnuskólanum þar sem um er að ræða aðstoð við slátt og hirðingu lóða. Þessi þjónusta er á vægu verði. Pantanir eru teknar niður í síma 570-1500
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Vinnuskólans, www.kopavogur.is/vinnuskoli.
|