665-02.jpg
Forsíða arrow Þjónusta arrow Garðyrkjustjóri arrow Skólagarðar
Skólagarðar PDF Prenta Rafpóstur

Skólagarðar Kópavogs eru starfræktir á eftirtöldum stöðum:
Á Kópavogstúni neðan Sunnuhlíðar, í Fossvogsdal við Víðigrund, í Kópavogsdal hjá endurvinnslustöð Sorpu, austan við leikskólann Núp við Núpalind og í Kórum, sunnan Hörðuvallaskóla.

Skólagarðarnir eru fyrir 6-13 ára börn og geta veitt ríflega 300 börnum viðtöku. Þar fá þau 12 fermetra garð, útsæði, plöntur, fræ og leiðsögn við ræktun algengustu matjurta. Börnin sinna síðan garðinum fyrir eða eftir hádegi.

Auk ræktunarinnar er margvíslegt um að vera. Leikjadagar eru haldnir reglulega þar sem farið er í ýmsa leiki eða ákveðnar uppákomur. Má nefna skoðunarferðir, ratleiki, boltaleiki, drullukökukeppni, göngu- og hjólreiðatúra um nágrennið. Skólagarðarnir eru þó hvorki leikjanámskeið né gæsluvellir fyrir börn. Verð er 3.200,- kr. fyrir hvern garð.

Innritun í skólagarðana hefst á vefsíðunni Skólagarðar Kópavogs í byrjun maí ár hvert. Gíróseðlar eru sendir út eftir að barnið hefur hafið starf í görðunum.

Skólagarðarnir heyra undir garðyrkjustjóra bæjarins en forstöðumaður sér um daglegan rekstur. Sími hans er 840-2655.

Nánari upplýsingar um starfið er að finna á vefsíðu skólagarðanna, kopavogur.is/skolagardar.

 
< Fyrri   Næsti >