|
Kópavogsbær leigir bæjarbúum út garðlönd til matjurtaræktunar og er sú starfsemi á vegum garðyrkjustjóra. Garðlöndin eru á þrem stöðum í Fossvogsdal, annars vegar norðan við skólagarða við Víðigrund og hinsvegar á tveimur stöðum austast í Fossvogsdal. Hægt er að velja 25 eða 50 fm. garð sem afhendast plægðir um miðjan maí. Leigugjald árið 2009 er kr. 3.200 fyrir 50 fm. skika og kr. 1.600 fyrir 25 fm.
Byrjað er að taka við umsóknum um garðlönd í marsbyrjun á umsóknarvef garðlanda og í þjónustuveri, Fannborg 2, s: 570-1500
|