|
Óskir um flutning milli skólahverfa
Hver grunnskóli tilheyrir ákveðnu skólahverfi. Að öllu jöfnu er gert ráð fyrir að nemendur sæki skóla í því hverfi sem þeir eiga lögheimili í. Ef forráðamenn óska eftir að barnið skipti um skóla þarf að sækja sérstaklega um það til viðkomandi skóla. Skólastjóri viðtökuskólans getur tekið ákvörðun um móttöku nemanda úr öðru skólahverfi. Í slíkum tilvikum ber foreldrum að tilkynna flutninginn til þess skóla sem barnið hverfur úr.
Skólavist í öðrum sveitarfélögum
Hvert sveitarfélag stendur straum af þeim kostnaði sem hlýst af skólagöngu nemenda. Ef barn stundar nám í öðru sveitarfélagi en það á lögheimili í þarf sveitarfélag þess að greiða kostnaðinn samkvæmt þeim reglum sem Samband íslenskra sveitarfélaga setur.
Í viðmiðunarreglum Sambands íslenskra sveitarfélaga um greiðslur vegna nemenda sem stunda nám utan lögheimilissveitarfélags segir: Flytjist lögheimili nemanda í annað sveitarfélag eftir að nemandi hefur hafið skólagöngu í því sveitarfélagi, sem hann átti lögheimili í fyrir flutning, skal hann eiga rétt á að ljúka námi í þeim skóla sem hann stundaði nám í við flutninginn til loka skólaársins án þess að til komi greiðslur þess vegna frá hinu nýja lögheimilissveitarfélagi.
Umsókn um nám í öðru sveitarfélagi verður að berast fræðsluskrifstofu á sérstöku eyðublaði sem er á heimasíðu Kópavogsbæjar.
Einkaskólar
Ef forráðamenn óska þess að börn þeirra stundi nám í einkaskólum þarf að sækja sérstaklega um það til fræðsluskrifstofu á eyðublaði sem er á heimasíðu Kópavogsbæjar.
|