665-01.jpg
Forsíða arrow Skólar arrow Dægradvöl
Dægradvöl PDF Prenta Rafpóstur

Dægradvöl starfar við alla grunnskóla bæjarins og stendur til boða fyrir öll börn í 1. - 4. bekk. Dægradvöl er frjálst tilboð þar sem börn dvelja við leik og skapandi starf í umsjá starfsfólks eftir að skóla lýkur. Börnin eru skráð inn í Dægradvöl og fylgst vel með hvar þau eru að leik og starfi uns þau eru skráð út við brottför.

Stjórnun
Skólastjóri hvers skóla ber rekstrarlega og faglega ábyrgð á starfsemi Dægradvalar. Ábyrgð á daglegri starfsemi er í höndum umsjónarmanns.

Opnunartími
Opnunar- og gjaldtökutími Dægradvalar er frá því að skóladegi barnanna lýkur (um kl. 13:20) til kl. 17:15. Dægradvöl er opin alla daga sem grunnskólar starfa og einnig allan daginn á starfsdögum kennara á skólatíma. Dægradvöl er ekki opin í vetrarfríum skólanna. Starfsemi Dægradvalar hefst á skólasetningardegi og lýkur á skólaslitadegi.

Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um vist í Dægradvöl fást hjá viðkomandi skólum.

Gjald
Samræmt gjald er fyrir vist í Dægradvöl í Kópavogi.  Gjaldflokkarnir eru fjórir og miðast þeir við eina, tvær, þrjár eða fjórar klst. á dag.  Grunngjald er kr. 5.513,- fyrir eina klst. eða minna á dag, kr. 8.820,- greiðast fyrir 2 klst. á dag, 11.025,- fyrir 3 klst. á dag og 12.679,- fyrir meira en þrjár klst. á dag. Systkinaafsláttur er 50% af grunngjaldi (5.513 kr.) fyrir annað og 75% fyrir þriðja systkini. 

Greiðslur og innheimta

Innheimta dvalar- og matargjalda fyrir Dægradvöl fer fram í gegnum banka. Dvalargjöld skulu greiðast fyrirfram í hverjum mánuði. Sé skuld ekki greidd fyrir lok mánaðarins ber skólastjóra að senda áminningarbréf eftir þann 15. og segja plássinu upp frá og með næstu mánaðarmótum þar á eftir.

Nemendur með sérþarfir
Gerðar eru sérstakar ráðstafanir í Dægradvöl vegna nemenda með sérþarfir.

Starfsfólk
Í hverri Dægradvöl starfar umsjónarmaður sem ber ábyrgð á daglegu starfi. Gert er ráð fyrir um það bil 15 börnum á hvern starfsmann í Dægradvölinni að jafnaði. Skólarnir ráða einnig yfir fjármagni til að ráða kennara til starfa í einstök verkefni, eins og t.d. íþróttir, myndlist, heimanám o.s.frv.

Húsnæði
Gert er ráð fyrir a.m.k. tveimur heimastofum fyrir Dægradvöl. Ef börnin eru 90 eða fleiri þarf að gera ráð fyrir þremur heimastofum. Auk heimastofanna nýtir Dægradvöl húsnæði skólanna eftir þörfum.

 
< Fyrri   Næsti >