665-13.jpg
Forsíða arrow Skólar arrow Grunnskólar arrow Sérúrræði
Sérúrræði PDF Prenta Rafpóstur
Hvammshús er skólaúrræði á vegum Kópavogsbæjar fyrir nemendur á unglingastigi sem átt hafa í náms- og samskiptaerfiðleikum í almenna skólakerfinu. Markmiðið með skólastarfinu er að bæta líðan nemenda og breyta viðhorfi og vinnuframlagi þeirra til náms. 6-8 nemendur stunda þar nám á hverju skólaári. Þeir eru skráðir í sinn heimaskóla og útskrifast þaðan úr 10. bekk. Þrír kennarar starfa við úrræðið, þar af einn í hálfu starfi. Deildarstjóri Hvammshúss er Birgir Svan Símonarson. Tómas Jónsson, forstöðumaður sérfræðiþjónustu grunnskóla, hefur yfirumsjón með úrræðinu.  Sími í Hvammshúsi er: 554-0230 

Tröð er skammtíma- og sjúkrakennsluúrræði á vegum Kópavogsbæjar. Það er starfrækt til þess að sinna nemendum á ýmsum aldri, sem eru í ákveðinni biðstöðu, m.a. vegna greiningarvinnu, endurskipulagningar í skóla eða bið eftir innlögn á sjúkrahús. 6-7 nemendur geta verið í úrræðinu hverju sinni. Þrír kennarar annast kennsluna, þar af einn í hálfu starfi. Deildarstjóri Traðar er Anna Jóhannsdóttir. Tómas Jónsson, forstöðumaður sérfræðiþjónustu grunnskóla, hefur yfirumsjón með úrræðinu.  Sími í Tröð er 564-2070 

 

 
< Fyrri   Næsti >