665-07.jpg
Forsíða arrow Skólar arrow Grunnskólar arrow Sérfræðiþjónusta
Sérfræðiþjónusta PDF Prenta Rafpóstur

Sálfræðingar starfa við athugun og greiningu á nemendum sem eiga við náms-, tilfinningalega-, félags- og hegðunarefiðleika að etja og meta viðeigandi aðgerðir. Þeir starfa í nánu samstarfi við foreldra, kennara, námsráðgjafa og skólastjórnendur.

Fastir viðtalstímar eru í skólunum vikulega þar sem sálfræðingar hitta nemendur, starfsfólk og stjórnendur.

Foreldrar geta snúið sér til viðkomandi skóla ef þeir óska eftir sálfræðiþjónustu og fengið allar upplýsingar um hvernig, hvar og hvenær þeir geta hitt sálfræðing viðkomandi skóla.

Fjórir sálfræðingar eru starfandi við grunnskóla Kópavogs:
Hugrún Sigurjónsdóttir, Hugo Þórisson, Wilhelm Norðfjörð og Brynjólfur G. Brynjólfsson.

Hugrún Sigurjónsdóttir starfar fyrir Smáraskóla, Salaskóla og Digranesskóla. Hún hefur aðsetur í viðkomandi skólum.
Hugo Þórisson starfar fyrir Hjallaskóla, Kársnesskóla og Lindaskóla. Hann hefur aðsetur í viðkomandi skólum.
Wilhelm Norðfjörð starfar fyrir Snælandsskóla, Kópavogsskóla og Lindaskóla. Hann hefur aðsetur í skólunum.
Brynjólfur G. Brynjólfsson starfar fyrir Vatnsendaskóla. Hann hefur aðsetur í skólanum.

Sérfræðiþjónustufulltrúi á fræðsluskrifstofu, Tómas Jónsson, hefur yfirumsjón með sérfræðiþjónustu og er skólunum til aðstoðar varðandi málefni nemenda með sérþarfir.

Iðjuþjálfi starfar í aðkeyptri vinnu hjá Kópavogsbæ, sem nemur um 40 tímum á mánuði. Vinna hans felst m.a. í aðstoð við skólana vegna athugunar á hreyfiþroska og ráðgjöf til kennara og foreldra varðandi eflingu á hreyfifærni nemenda. Einnig hugar iðjuþjálfi að vinnuumhverfi nemenda og starfsfólks.

Sérfræðingur í lestrargreiningum starfar í aðkeyptri vinnu fyrir grunnskóla Kópavogs og sinnir lestrar- og stafsetningargreiningum sem skólarnir ná ekki að sinna sjálfir. Hann veitir kennurum, nemendum og foreldrum ráðgjöf og leiðbeiningar um áframhaldandi meðferð.

Kennslufræðingur starfar einnig á fræðsluskrifstofu sem kennslufulltrúi og annast hann almenna ráðgjöf fyrir skólana.

Þrír talkennarar eru í fullri stöðu og sinna skólum bæjarins.

Sérfræðingur í málefnum nemenda með ADHD starfar í aðkeyptri vinnu hjá Kópavogsbæ sem nemur 20 tímum á mánuði.

 
< Fyrri   Næsti >