665-12.jpg
Forsíða arrow Menning arrow Söfn arrow Héraðsskjalasafn
Héraðsskjalasafn Kópavogs PDF Prenta Rafpóstur

Aðsetur: Hamraborg 1
Sími: 544-4710, 544-4711
Fax: 544-2110
Tölvupóstur: hrafns@kopavogur.is

Afgreiðslutími frá kl. 10.00 – 16.00

Héraðsskjalavörður: Hrafn Sveinbjarnarson
Skjalavörður: Kristín Stella L'Orange

Bæjarstjórn og Þjóðskjalasafn Íslands samþykktu árið 2000 stofnun Héraðsskjalasafns Kópavogs. Var það formlega opnað 12. desember 2001. Safnið er til húsa að Hamraborg 1 en hefur einnig geymslusafn að Hamraborg 14a. Safnið fer með umboð Þjóðskjalasafns á Kópavogssvæði og nær verksvið þess ekki einungis til bæjarkerfisins heldur einnig félaga, fyrirtækja og einstaklinga í bænum. Héraðsskjalasafnið gegnir tvíþættu hlutverki:

1. Stjórnsýsluhlutverk:
Leiðbeina bæjarstofnunum um skjalastjórn.
Hafa eftirlit með skjalavörslu bæjarstofnana.
Varðveita eldri skjöl bæjarins á tryggan hátt.
Hafa skjölin skráð og aðgengileg til notkunar.
Afgreiða fyrirspurnir úr skjölum samkvæmt gildandi lögum.
Héraðsskjalaverðir eru eftirlitsaðilar með stjórnsýslu.


2. Menningarhlutverk:
Safna og varðveita skjöl og önnur gögn um sögu Kópavogs og Kópavogsbúa í fortíð og nútíð.
Rannsaka og kynna sögu Kópavogs, t.d. með sýningum, fundum,
kynningum og útgáfum og þannig efla þekkingu á sögu bæjarins.
Stuðla að auknum rannsóknum almennings og fræðimanna á sögu
Kópavogs og öllu því er hana snertir.

Héraðsskjalasafn Kópavogs er eitt af 20 héraðsskjalasöfnum á Íslandi.  Félag héraðsskjalavarða á Íslandi er samstarfsvettvangur þeirra.
Félag héraðsskjalavarða á Íslandi

Skjalasafnið gefur út Ársrit Héraðsskjalasafns Kópavogs.
Það er til sölu bæði í Héraðsskjalasafni Kópavogs og Bókasafni Kópavogs
Sjá efnisyfirlit ritsins

Ársrit Héraðsskjalasafns Kópavogs 2006-2007
Kópavogi 2008
Útgefandi: Héraðsskjalasafn Kópavogs
Ritstjóri: Hrafn Sveinbjarnarson héraðsskjalavörður
ISSN 1670-7885
Verð: 5000 krónur


Efni ritsins eru skýrslur um starfsemi og sögu Héraðsskjalasafns Kópavogs frá stofnun þess árið 2000 til ársins 2007 auk útgáfu skráa yfir opinber skjöl og einkaskjöl í vörslu skjalasafnsins. Að auki eru í ritinu greinar um listamanninn Wilhelm Ernst Beckmann eftir Hrafn Andrés Harðarson bæjarbókavörð og Kópavog á árunum 1681-1729 eftir Gunnar Marel Hinriksson sagnfræðing en þeirri grein fylgir útgáfa á stríðshjálparskýrslu Gullbringusýslu 1681 og kvikfjártalsskýrslu Seltjarnarneshrepps 1703. Einnig eru í ritinu útgefnar fundargerðabækur Framfarafélagsins Kópavogs 1945-1955 og skjöl úr sögu þess en félagið kom því til leiðar að Kópavogur varð sjálfstætt sveitarfélag árið 1948. Félagið var merkileg og sérstæð hreyfing í íslenskri stjórnmálasögu en bannað var skv. félagslögunum að stjórnmál væru rædd á fundum þess. Loks eru í ritinu fróðleiks- og leiðbeiningarkaflar um skjalavörslu sveitarfélaga. Ritið er prýtt rúmlega 60 myndum og er búið myndaskrá og ýtarlegu registri.

 
< Fyrri   Næsti >