665-10.jpg
Forsíða arrow Menning arrow Menningastarf arrow Vinabæir
Vinabæir PDF Prenta Rafpóstur
Tómstunda- og menningarsvið fer með erlend vinabæjasamskipti.

Aðsetur Tómstunda- og menningarsviðs: Fannborg 2, 2. hæð
Sími: 570-1500
Fax: 570-1501
Opið alla virka daga frá kl. 8:00 – 16:00 nema föstudaga frá kl. 8:00 – 15:00
Símavarsla kl. 8:00 – 16:00 nema föstudaga frá kl. 8:00 – 15:00
Netfang: thjonustuver@kopavogur.is

Kópavogur hóf vinabæjasamskipti við aðra bæi og borgir á Norðurlöndum árið 1964. Það ár var komið á tengslum við Óðinsvé í Danmörku, Þrándheim í Noregi, Norrköping í Svíþjóð og Tampere í Finnlandi. Árið 1967 voru tekin upp vinabæjatengsl við Klakksvík í Færeyjum, árið 1974 við Maríuhöfn á Álandseyjum og tveimur árum síðar við Ammassalik á Grænlandi. Á árinu 2008 varð Wuhan í Kína formlega vinabær Kópavogs.

Margs konar samskipti hófust fjótlega við vinabæi okkar á Norðurlöndum, má þar nefna vinabæjamót sem haldin hafa verið nokkuð reglulega á 2ja til 3ja ára fresti til skiptist í vinabæjunum. Einnig hafa verið samskipti milli skóla með gagnkvæmum heimsóknum nemenda og kennara, íþróttamót sem einnig er fastur liður svo og ýmis konar önnur samskipti, þar sem skipst er á upplýsingum um allskyns málaflokka, svo sem bæjarmál, menningarmál, verklegar framkvæmdir o.fl.

Í Vinabæjanefnd Kópavogs eru 3 fulltrúar kosnir af bæjarstjórn og síðan eiga sæti í nefndinni bæjarstjóri og formaður Norrænafélagsins í Kópavogi.

Nefndina skipa kjörtímabilið 2006–2010:
Margrét Sigmundsdóttir, formaður, Hildigunnur Lóa Högnadóttir og Heiðrún Sverrisdóttir, Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri, og Birna Bjarnadóttir, formaður Norræna félagsins í Kópavogi.


Vinabæir Kópavogs:
Klaksvík í Færeyjum
Mariehamn á Álandseyjum
Norrköping í Svíþjóð
Wuhan í Kína
 
< Fyrri   Næsti >