665-10.jpg
Forsíða arrow Framkvæmdir / Skipulag arrow Byggingarfulltrúi arrow Vinnuferli
Vinnuferli PDF Prenta Rafpóstur

Byggingarstjóri
Við stjórn framkvæmda hvers mannvirkis skal vera byggingarstjóri og er réttindum hans og skyldum lýst nánar í byggingarreglugerð en þau er í aðalatriðum eftirfarandi:

Hann ber ábyrgð á því að byggt sé í samræmi við samþykkta uppdrætti, lög og reglugerðir.
Hann er framkvæmdastjóri byggingarframkvæmda og ræður iðnmeistara.
Hann skal óska úttektar á úttektarskyldum verkþáttum og vera viðstaddur úttektir.
Hann tilkynnir byggingarfulltrúa þegar bygging er fokheld.
Hann skal staðfesta við lok framkvæmda að byggt hafi verið í samræmi við samþykkta uppdrætti, lög  og reglugerðir.

Upphaf framkvæmda
Áður en framkvæmdir hefjast skal byggingarstjóri undirrita yfirlýsingu um ábyrgð sína hjá byggingarfulltrúa og tilkynna honum nöfn iðnmeistara og framvísa skriflegri yfirlýsingu eiganda eða lóðarhafa um að hann hafi verið ráðinn til verksins.
Byggingarstjóri óskar efir útmælingu hjá byggingarfulltrúa og getur þá hafist handa við jarðvinnu.

Hönnunargögn

Áður en byggingarframkvæmdir hefjast skal leggja fram hjá byggingarfulltrúa byggingaruppdrætti, burðarþolsuppdrætti, lagnauppdrætti, deiliuppdrætti og önnur þau gögn sem þurfa þykir.
 
< Fyrri   Næsti >