|
Samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 skal Fasteignaskrá Íslands annast rekstur gagna- og upplýsingakerfis er nefnist Fasteignaskrá/Landskrá fasteigna.
Í Landskrá fasteigna skal skrá allar fasteignir í landinu og er hún grundvöllur skráningar fasteigna, þinglýsingabókar, mats fasteigna og húsaskrár Hagstofu Íslands og þjóðskrár.
Byggingarfulltrúi er ábyrgur fyrir að Fasteignaskrá Íslands berist upplýsingar um lönd og lóðir og breytingar á þeim, svo og um öll mannvirki, sem gerð eru í Kópavogi og um breytingar á þeim og eyðingu þeirra. Stærðarskráning mannvirkja er sett fram í skráningartöflum.
Ennfremur tilkynnir byggingarfulltrúi um framvindu byggingarstiga og/eða matsstiga.
Byggingarstjóra er skylt að tilkynna til byggingarfulltrúa þegar bygging er fokheld.
Byggingarfulltrúa er einhliða heimilt að tilkynna Fasteignaskrá Íslands þegar bygging er fokheld vanræki byggingarstjóri skyldur sínar.
Fasteignamat og brunabótamat er í umsjón Fasteignaskrár Íslands: www.fmr.is
Eignaskiptayfirlýsingar
Byggingarfulltrúi áritar eignaskiptayfirlýsingar áður en þeim er þinglýst, til staðfestingar á því að þær séu í samræmi við samþykktar teikningar og að þær séu unnar í samræmi við reglugerð um eignaskiptayfirlýsingar nr. 910/2000.
|