Forsíða arrow Skólar arrow Frístundarheimili fatlaðra
Frístundarheimili fatlaðra PDF Prenta Rafpóstur
Lengd viðvera
Frístundaheimili Félagsþjónustunnar er fyrir fatlaða nemendur í 5. til 10. bekk grunnskóla Kópavogs sem eiga lögheimili í Kópavogi.
Haustið 2008 tók til starfa frístundaheimili fyrir fatlaða nemendur í grunnskólum Kópavogs og er því ætlað að taka við hlutverki Dægradvalar að loknum 4. bekk.

Frístundaheimilið er frjálst tilboð þar sem börnunum gefst tækifæri til að dvelja við leik og skapandi störf í umsjá starfsfólks eftir að skólastarfi lýkur. Um er að ræða heilsárs skólatengt tilboð fyrir fatlaða nemendur 5. til 10. bekkjar allra grunnskóla Kópavogs sem hafa greiningu frá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Starfsemin fer fram frá því að skólastarfi lýkur um 13:15 til 17:00 alla virka daga en frá 8:00 til 16:00 í vetrarfríum og á starfsdögum skólanna. Yfir sumartímann verður boðið upp á fimm vikna námskeið frá 8:00 til 16:00.
Úrræðið er til húsa í Smáraskóla við Dalsmára 1 og boðið er upp á keyrslu frá heimaskóla barnanna í frístundaheimilið. Boðið er upp á síðdegishressingu gegn vægu efnisgjaldi en foreldrar geta einnig valið að senda barnið með nesti. Verð fyrir vistun á mánuði tekur mið af gjaldtöku fyrir dægradvöl í grunnskólum Kópavogs og er eftirfarandi: Fyrir 5 tíma á viku kr. 5.513, fyrir 10 tíma á viku kr. 8.820, fyrir 15 tíma á viku kr. 11.025 og 20 tíma á viku kr. 12.679.

Markmið Frístundaheimilisins er að veita þeim nemendum sem þar dvelja öruggt athvarf, fastan punkt í tilveruna og bjóða þeim upp á skipulagðar tómstundir þar sem að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Sérstök áhersla er lögð á að hverjum og einum nemanda líði vel og finnist gott að koma í frístundaheimilið þar sem hann nýtur sín í öruggu og skemmtilegu umhverfi. Leiðarljós starfseminnar eru fagleg vinnubrögð, foreldrasamstarf og virðing fyrir nemendunum, aðstandendum þeirra og öðru starfsfólki. Við upphaf hverjar annar mun forstöðumaður vinna áætlun fyrir hvern og einn nemanda í samráði við aðra starfsmenn og aðstandendur. Í áætluninni skal setja fram einstaklingsmarkmið sem unnið skal að og greindar leiðir að þeim. Í lok hverrar annar fer svo fram endurmat þar sem árangur er metinn og lærdómur dreginn af reynslunni.

Frístundaheimilið er rekstrareining innan þjónustudeildar fatlaðra og lýtur yfirumsjón hennar. Forstöðumaður er Jóhanna Lilja Ólafsdóttir. Kristín Inga Þrastardóttir er ráðin í afleysingar fyrir forstöðumann fram á vor 2010.  Kristín veitir nánari upplýsingar í síma 570-1500 eða á netfanginu johannalilja@kopavogur.is.
 
Næsti >