|
Frá árinu 1996 hefur umhverfisráð Kópavogs í samstarfi við Kiwanis, Lions og Rotary klúbba bæjarins staðið fyrir gerð og uppsetningu fróðleiksskilta í bænum. Hlutverk skiltanna er að opna augu bæjarbúa fyrir umhverfi sínu og gera sögu bæjarins sýnilegri. Umfjöllunarefni getur verið náttúruminjar, þjóðminjar, söguminjar, þjóðtrú, náttúrufar, dýralíf og ýmislegt annað.
Bæjarskipulag og garðyrkjustjóri Kópavogs hafa yfirumsjón með staðsetningu skiltanna og frágangi umhverfis þau.
1996 - Kópavogsleira - fuglaskilti
1997 - Kópavogsleira - sandfjaran
1998 - Víghóll
1999 - Digranesbær
2000 - Þinghóll
2001 - Borgarholt
2002 - Tröllabörn í Lækjarbotnum
2003 - Kópavogslækur
2004 - Trjálundir í Digraneshlíðum Einnig - Álfhóll
2005 - Fossvogur Einnig - Engjaborg
2006 - Hádegishólar. Einnig - Einbúi
2007 - Trjásafn, grjótnám, nýbýli. Einnig - Markasteinn
2008 - Hlíðargarður
2009 - Elliðavatn
|