- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Innritun 6 ára barna (fædd 2011) fer nú alfarið fram í gegnum íbúagátt á vef bæjarins.
Opnað verður fyrir skráningu 1. mars 2017 og stendur hún til 8. mars. Sömu daga fer fram innritun nemenda sem flytjast milli skólahverfa og þeirra sem flytja í Kópavog eða koma úr einkaskólum. Haustið 2017 munu skólar hefjast með skólasetningardegi þriðjudaginn 22. ágúst. Nánari upplýsingar um skólabyrjun munu birtast á heimasíðum skólanna.
Sérstök athygli er vakin á því að umsóknarfrestur um heimild til að stunda nám í einkaskólum eða grunnskólum annarra sveitarfélaga er til 1. apríl og skal sækja um á íbúagátt Kópavogs. Sækja þarf um að nýju fyrir nemendur, sem nú eru í slíkum skólum, ef gert er ráð fyrir að þeir verði þar næsta vetur.