Bæjarráð

2567. fundur 28. október 2010 kl. 08:15 - 10:15 í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Fundargerð ritaði: Páll Magnússon bæjarritari
Dagskrá

1.1010024 - Sérnefnd vegna tilflutnings málefna fatlaðra 25/10

4. fundur

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:

""Á þessi nefnd ekki að skoða fjármál vegna yfirfærslunnar?

Gunnar Ingi Birgisson""

2.1010382 - Ráðningar hjá Félagsþjónustunni vegna yfirfærslu málefna fatlaðra

Ármann Kr. Ólafsson lagði fram eftirfarandi bókun:
""Undirritaður bendir á að upplýst sé að umræddur starfsmaður er þegar í fullu starfi hjá bænum og beiðnin þurfi jafnframt samþykki félagsmálaráðs.
Ármann Kr. Ólafsson""

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar félagsmálaráðs.

3.1001150 - Heilbrigðiseftirlit 21/10

155. fundur

4.1001150 - Heilbrigðiseftirlit 25/10

156. fundur

5.1010011 - Jafnréttisnefnd 20/10

296. fundur

6.1002171 - Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 13/10

779. fundur

7.1001155 - Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins 22/10

95. fundur

8.1003012 - Mánaðarskýrslur 2010

Frá bæjarritara, mánaðarskýrsla Kópavogsbæjar október 2010, yfirlit yfir starfsemi bæjarins í september 2010.

Lagt fram.

9.1010383 - Ráðning sérfræðings vegna yfirfærslu málefna fatlaðra. Beiðni til bæjarráðs

Frá félagsmálastjóra, dags. 27/10, óskað eftir að ráða Ástu Guðrúnu Guðbrandsdóttur, þroskaþjálfa til að vinna að undirbúningi við yfirfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélagsins.

Bæjarráð samþykkir að ráða Ástu Guðrúnu Guðbrandsdóttur til að vinna að undirbúningi við yfirfærslu málefna fatlaðra.

10.1010310 - Bæjarráð óskar eftir greinargerð íþróttadeildar um ástæðu þess að ekki var tekið tillit til leiðaráæ

Frá íþróttafulltrúa, dags. 26/10, greinargerð sem bæjarráð óskaði eftir á fundi sínum 21/10, varðandi skipulagningu æfingatíma í íþróttamannvirkjum með tilliti til leiðaáætlunar Strætó.

Bæjarráð bendir á að þann 23. júní var þess óskað að íþróttafélögin tæku tillit til tímatöflu Strætó við gerð æfingartaflna í íþróttamannvirkjum bæjarins.  Við teljum því ekkert réttlæta þá staðreynd að ekki var komið til móts við þær óskir.  Bæjarráð telur það mikið hagsmunamál fyrir fjölskyldur í Kópavogi að iðkendur geti nýtt sér ferðir strætó til og frá æfingum.  Bæjarráð óskar eftir því að íþróttafulltrúi kalli eftir skriflegum skýringum íþróttafélaganna hvers vegna ekki var unnt að koma til móts við þessar óskir bæjarráðs.

11.1010330 - Kjörskrár vegna kosninga til stjórnlagaþings

Frá Þjóðskrá Íslands, dags. 20/10, varðandi skilafrest sveitarstjórna á flutningstilkynningum til þjóðskrár vegna kosninga til stjórnlagaþings.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til afgreiðslu.

12.1010318 - Óskað eftir verðupplýsingum á skólamáltíðum í grunnskólum

Frá Neytendastofu, dags. 20/10, varðandi verðkönnun á skólamáltíðum í grunnskólum.

Bæjarráð vísar erindinu til fræðslustjóra til afgreiðslu.

13.902203 - Aðstaða mötuneytis í Snælandsskóla

Frá skólaráði Snælandsskóla, dags. 16/10, varðandi mötuneytisaðstöðu nemenda til jafns við aðra skóla.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs til kostnaðarumsagnar.

14.1010314 - Mannréttindastofa Íslands óskar eftir framlögum

Frá Mannréttindaskrifstofu Íslands, dags. 20/10, beiðni um framlag til auglýsingaherferðar gegn hverskyns mismunun.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

15.1010315 - Varðar afslátt af fasteignagjöldum

Frá íbúa í bænum, dags. 18/10, beiðni um endurútreikning á fasteignagjöldum fyrir árið 2009.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til umsagnar.

16.1010316 - GKG óskar eftir fundi varðandi uppbyggingu á svæði klúbbsins vegna Íslandsmótsins 2014

Frá GKG, dags. 19/10, óskað eftir fundi með bæjaryfirvöldum, varðandi Íslandsmótið í golfi 2014 á 20 ára afmæli klúbbsins, og að skipaður verði fulltrúi bæjarins í undirbúningsnefnd.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra til úrvinnslu.

17.1010334 - Ársfundur Vinnumálastofnunar

Frá Vinnumálastofnun, ódags. bæjarstjóra boðið að sitja ársfund Vinnumálastofnunar, sem haldinn verður 29/10.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra til afgreiðslu.

18.1010289 - Gulaþing 19. Lóð skilað

Frá Vektor ehf., dags. 19/10, lóðinni að Gulaþingi 19 skilað inn.

Lagt fram.

19.1001160 - Svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa.

Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, lagði fram svar við fyrirspurn Gunnars Inga Birgissonar varðandi viðskiptakröfur Kópavogshafnar.

Lagt fram.

20.1010305 - Ósk um 9 mánaða uppgjör

Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, lagði fram yfirlit yfir stöðu stofnframkvæmda á árinu.

Lagt fram.

21.1010307 - Ítrekun fyrri fyrirspurna

Gunnar Ingi Birgisson ítrekaði fyrri beiðnir um upplýsingar á undanförnum fundum.

22.1010365 - Tillaga um deiliskipulag á Kópavogstúni.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram eftirfarandi bókun:

""Fulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja til að deiliskipulag fjölbýlishúsa á Kópavogstúni verði flýtt og lokið hið fyrsta án þess þó að gatnagerðargjöld og yfirtökugjöld skerðist. Þetta er það svæði sem er söluvænlegasta byggingasvæðið á höfuðborgarsvæðinu og gæti styrkt stöðu bæjarsjóðs um hálfan milljarð um leið og ýtt væri undir aukna atvinnu og fjölgun íbúa sem eykur tekjur bæjarsjóðs enn frekar þar sem allir innviðir eru uppbyggðir á svæðinu. Vitað er að nú þegar er eftirspurn eftir að fá að byggja á svæðinu en umsóknum hefur ekki verið sinnt.

Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Ingi Birgisson""

 

Hlé var gert á fundi kl. 9:52.  Fundi var fram haldið kl. 9:55.

Gunnar Ingi Birgisson vék af fundi kl. 9:55.

 

Fulltrúar meirihlutaflokkanna í bæjarráði lögðu fram eftirfarandi bókun:

""Það er mat okkar að á undanförnum árum hafi mörg mistök verið gerð í skipulagi Kópavogs sem ekki verða aftur tekin.  Það er mikilvægt að vanda til verka enda ábyrgð bæjaryfirvalda mikil þegar kemur að ásýnd og þróun byggðar.  Fulltrúar meirihlutans benda á að vinna við deiliskipulag á Kópavogstúni er í góðum farvegi.

Guðríður Arnardóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Guðný Dóra Gestsdóttir, Rannveig Ásgeirsdóttir""

 

Hlé var gert á fundi kl. 10:01. Fundi var fram haldið kl. 10:06.

 

Ármann Kr. Ólafsson og Ómar Stefánsson lögðu fram eftirfarandi bókun:

""Skipulag í tíð meirihluta Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks skilaði því að íbúafjöldi bæjarins tvöfaldaðist og mesta fjölgun starfa á höfuðborgarsvæðinu varð í Kópavogi vegna vel heppnaðs skipulags. Jafnfamt er mikil ánægja íbúa með það þjónustustig sem byggðist upp hratt og vel með nýjum hverfum. Öllu tali um mistök er því vísað til föðurhúsanna.""

Ármann Kr. Ólafsson, Ómar Stefánsson""

Fulltrúar meirihlutans í bæjarráði lögðu fram eftirfarandi bókun:

""Fulltrúar meirihlutans minna á að hvergi á byggðu bóli á Íslandi hafa mótmæli vegna skipulags verið eins hávær og í Kópavogi.  Löngum hefur stefna Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks verið að þjóna hagsmunum verktaka og lóðarhafa fremur en hagsmunum íbúa.  Þar hefur magnið ráðið för fremur en gæðin.  Fleiri en við höfum gagnrýnt slík vinnubrögð.  Nýr meirihluti hefur tekið við með nýjum áherslum.  Þar ætlum við að tryggja hagsmuni bæjarbúa umfram allt.  Breytt deiliskipulag á Kópavogstúni mun bæta ásýnd þessa svæðis í hjarta Kópavogs og auka verðgildi þeirra lóða sem þar eru.  Auðvitað er þessari vinnu hraðað eins og kostur er.

Guðríður Arnardóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Guðný Dóra Gestsdóttir, Rannveig Ásgeirsdóttir""

 

Ármann Kr. Ólafsson og Ómar Stefánsson lögðu fram eftirfarandi bókun:

""Það talar sínu máli að íbúum er þrátt fyrir bankahrunið enn að fjölga í Kópavogi, einu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Það segir allt sem segja þarf.

Ármann Kr. Ólafsson, Ómar Stefánsson""

Fundi slitið - kl. 10:15.