Bæjarráð

2644. fundur 07. júní 2012 kl. 08:15 - 10:15 í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Fundinn sátu:
  • Rannveig H Ásgeirsdóttir formaður
  • Ármann Kristinn Ólafsson aðalfulltrúi
  • Ómar Stefánsson aðalfulltrúi
  • Guðríður Arnardóttir aðalfulltrúi
  • Ólafur Þór Gunnarsson aðalfulltrúi
  • Erla Karlsdóttir varafulltrúi
  • Páll Magnússon bæjarritari
  • Pétur Ólafsson varafulltrúi
Fundargerð ritaði: Páll Magnússon bæjarritari
Dagskrá

1.1204003 - Barnaverndarnefnd, 12. apríl.

13. fundur

Bæjarráð vísar fundargerðinni til bæjarstjórnar.

2.1205029 - Félagsmálaráð, 5. júní

1330. fundur

Bæjarráð vísar fundargerðinni til bæjarstjórnar.

3.1203443 - Tillögur um breytingar á reglum um félagslega heimaþjónustu

Félagsmálaráð samþykkti tillögur um breytingar á reglum um félagslega heimaþjónustu og vísar til bæjarráðs til samþykktar.

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

4.1206010 - Félagsmálaráð, 6. júní.

1331 fundur

Lagt fram.

5.1205629 - Skýrsla Capacent um Dimmuhvarf. Staða máls

Tillögur starfshóps um úttekt á Dimmuhvarfi, sbr. lið 2 í fundargerð.

Bæjarráð samþykkir tillögurnar.

6.1206004 - Framkvæmdaráð, 6. júní.

32. fundur

Hlé var gert á fundi kl. 8:49.  Fundi var fram haldið kl. 8:53.

Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Þar sem ég þurfti að víkja af fundi en varamaður kom inn í minn stað og í ljósi þess að tölvukerfið datt út um tíma, er ljóst að bókanir eru gerðar eftir að ég vík og minn varamaður tekur sæti.   Því geri ég athugasemdir við orðalag bókana, en geri ekki athugasemd um afgreiðslu einstaka mála.

Ómar Stefánsson"

Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:

"Undirrituð gerir athugasemd við orðalag bókana í fundargerð framkvæmdaráðs og mun ekki undirrrita fundargerðina óbreytta né taka ábyrgð á afgreiðslum fundarins, enda í mörgum tilfellum ekki rétt haft eftir niðurstöðu fundarins.  Undirrituð hefur óskað eftir því að fundargerðin verði tekin út af dagskrá en formaður ekki orðið við því.

Guðríður Arnardóttir"

Kl. 9:10 var gert hlé á fundi.  Fundi var fram haldið kl. 9:28.

Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Vegna bókunnar Guðríðar Arnardóttur undir lið 11 í fundargerð framkvæmdaráðs, varðandi það að fundurinn hefði verið boðaður með of skömmum fyrirvara.  Var í upphafi fundar boðið upp á að  seinka fundinum þar til sólarhringur væri liðinn. Fundarmenn féllust þó á að þar sem allir aðalmenn voru mættir skyldi fundi fram haldið.  Til þess að tryggja að mál sem afgreidd voru á fundinum verði löglega afgreidd í bæjarstjórn beini ég því til forseta bæjarstjórnar að þeir verði afgreiddir lið fyrir lið en ekki fundargerðin í heild sinni.

Ómar Stefánsson"

Ármann Kr. Ólafsson og Rannveig Ásgeirsdóttir lögðu fram eftirfarandi bókun:

"Nefndarmenn skulu samkv. grein 32 í bæjarmálasamþykkt Kópavogsbæjar undirrita fundargerðir í lok fundar, en þar segir að fundarmenn (bæjarfulltrúar) skuli:  "rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Í lok fundarins skal tölvuskráð fundargerð prentuð út og hún undirrituð".

Sjái fundarmaður fram á að hann geti ekki lokið fundi sjálfur með þeim hætti sem hér er rakið, skal hann boða varamann.

Þessu til viðbótar skal tekið fram að fundargerðin var send til nefndarmanna kl. 13.05 í gær og því nægur tími til að koma fram með athugasemdir við hana.

Ármann Kr. Ólafsson, Rannveig Ásgeirsdóttir"

Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:

"Undirrituð líkt og Ármann Kr. Ólafsson, yfirgáfu fundinn eftir að honum lauk án þess að lesa yfir og undirrita fundargerð þar sem bilun varð í tölvukerfinu og langan tíma tók að lagfæra fundargerðina.

Þetta sama gerðist m.a.á dögunum við afgreiðslu fundargerðar skólanefndar sem var ekki undirrituð vegna sama vandamáls.  Þá var sú fundargerð tekin af dagskrá bæjarráðs og lögð fyrir að nýju leiðrétt.  

Undirrituð óskaði eftir því að fundargerðin yrði tekin út af dagskrá bæjarráðs og afgreidd í bæjarstjórn næsta þriðjudag og þannig gæfist tími til þess að leiðrétta fundargerðina án þess að seinka afgreiðslu þeirra mála sem til umfjöllunar voru á fundinum.   Mér er gjörsamlega óskiljanlegt hvers vegna svona lítil fjöður getur orðið að svona stórri hænu í herbúðum meirihlutans en fundartæknileg umræða um eina fundargerð hefur nú tekið u.þ.b. eina klukkustund af þessum fundi.

Guðríður Arnardóttir"

Rannveig Ásgeirsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:

"Bæjarfulltrúi Guðríður Arnardóttir getur ekki lagt að jöfnu fundargerð sem er þegar undirrituð á fundi framkvæmdaráðs af nefndarmönnum, en þó ekki henni því hún vék af fundi áður en undirritun fór fram og svo fundargerð skólanefndar sem var alls ekki undirrituð þar sem nokkrir fundarmenn höfðu vikið af þeim fundi skólanefndar m.a. vegna vandræða í tölvukerfi. Það þótti því eðlilegt að senda nefndarmönnum skólanefndar fundargerðina til yfirlestrar áður en hún var undirrituð, en ekki einungis að fáir undirrituðu því mikilvægt er að menn ljúki nefndarstörfum sameiginlega og í einingu.

Rannveig Ásgeirsdóttir"

Bæjarráð vísar fundargerðinni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

7.1205499 - Þorrasalir 31. Umsókn um lóð undir íbúðarhúsnæði

Samþykkt með tveimur atkvæðum gegn einu í samræmi við umsögn skrifstofustjóra umhverfissviðs. Vísað til bæjarráðs.

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

8.1205566 - Þorrasalir 9-11. Beiðni um framsal á lóð

Meirihluti framkvæmdaráðs samþykkir framsal í samræmi við umsögn skrifstofustjóra umhverfissviðs. Vísað til bæjarráðs.

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

9.1205536 - Kópavogsbarð 6 / Kópavogsbarð 8. Sótt um skipti á lóðum

Samþykkt í samræmi við umsögn skrifstofustjóra. Vísað til bæjarráðs.

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

10.1205401 - Almannakór 5. Umsókn um lóð undir íbúðarhúsnæði

Á fundi framkvæmdaráðs 6. júní 2012 var samþykkt að leggja til við bæjarráð að úthluta lóðinni Almannakór 5 til Bjarka Þór Valberg og Hönnu M. Hrafnkelsdóttur. Málinu vísað til bæjarráðs til afgreiðslu.

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

11.1206055 - Umsókn um lóð undir íbúðarhúsnæði. Austurkór 63-75.

Á fundi framkvæmdaráðs 6. júní 2012 var samþykkt að leggja til við bæjarráð að úthluta lóðinni Austurkór 63-75 til Dverghamra ehf. Málinu vísað til bæjarráðs til afgreiðslu.

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

12.1204060 - Forsetakosningar 2012

Á fundi framkvæmdaráðs 6. júní 2012 var samþykkt að leggja til við bæjarráð að endurnýja teppi sem notað er á golf íþróttasalarins í Smáranum. Kostnaður verður tekinn annars vegar af liðnum: Kosningar og hins vegar af liðnum: Kostnaður af viðhaldi íþróttamannvirkja. Vísað til bæjarráðs.

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

13.1206003 - Jafnréttis- og mannréttindanefnd, 4. júní

13. fundur

Bæjarráð vísar fundargerðinni til bæjarstjórnar.

14.1205021 - Lista- og menningarráð, 24. maí.

3. fundur

Bæjarráð vísar fundargerðinni til bæjarstjórnar.

15.1205026 - Lista- og menningarráð, 29. maí.

4. fundur

Bæjarráð vísar fundargerðinni til bæjarstjórnar.

16.1205014 - Skólanefnd, 4. júní.

44. fundur

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:

"Skóladagatal Lindaskóla fækkar ekki kennsludögum hjá nemendum skólans þar sem þeir eru í "fríi" þá 2 daga sem viðtalstímar eru á hverjum vetri. Þessi framsetning á skóladagatali gefur foreldrum aukinn sveigjanleika til að mæta í viðtöl, sem hefur skilað því að nánast allir finna sér tíma til að mæta í þau. Þetta er dæmi um það þegar lög og reglur sem mönnum eru sett af hinu háa Alþingi og menntamálaráðuneytinu, sem skólanefnd er að fylgja, tekur fram almennri skynsemi.

Ármann Kr. Ólafsson"

Bæjarráð vísar fundargerðinni til bæjarstjórnar.

17.1201286 - Stjórn slökkviliðs hbsv, 25.maí.

112. fundur

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

18.1201288 - Stjórn Strætó 30. maí sl.

170. fundur

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

19.1205028 - Umhverfis- og samgöngunefnd, 4. júní

21. fundur

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

20.1103195 - Kópavogshafnir: Umsókn um Bláfánann

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að unnið verði áfram að málinu og leggur til að Ýmishöfn sæki um Bláfánann 2013. Í framhaldinu verði einnig sótt um Bláfánann fyrir Kópavogshöfn.

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

21.1006091 - Sorptunnur við göngustíga

Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til að endurnýja sorpílát við göngustíga og á opnum svæðum, sbr bókun frá 4. júní s.l.

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

22.1007117 - Kjóavellir reiðskemma. Stofnframkvæmdir

Frá bæjarstjóra, lögð fram að nýju drög að samkomulagi Kópavogsbæjar, Garðabæjar, Hestamannafélagsins Gusts og Hestamannafélagsins Andvara um uppbyggingu og framkvæmdir á Kjóavöllum, sem frestað var í bæjarráði 31. maí s.l.

Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:

"Undirrituð bendir á að framkvæmdarráð var með samninga við hestamenn á sínu forræði og var formanni framkvæmdaráðs m.a. falið að funda með aðilum og vinna að samkomulagi um frágang svæðisins að Kjóavöllum.  Nú virðist vera sem framkvæmdaráði sé haldið utan við málið og þá helst formanni ráðsins og spyr undirrituð hverju það sætir.

Guðríður Arnardóttir"

Ómar Stefánsson lagði til að bæjarstjóra verði falið að undirrita drögin með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar. Var tillagan samþykkt með fjórum atkvæðum en einn greiddi atkvæði gegn henni.

Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:

"Mér finnst eðlilegt að samningur sem varðar hundruðir milljóna af fjármunum skattgreiðenda fái málefnalega umfjöllun í bæjarstjórn áður en fleiri skref eru stigin.

Guðríður Arnardóttir"

23.1201292 - Mánaðarskýrslur 2012

Frá bæjarritara, mánaðarskýrslur í maí 2012, fyrir starfsemi bæjarins í apríl 2012.

Lagt fram.

 

Bæjarráð óskar eftir nánari skýringu á því af hverju heildargjöld eru um 6% undir áætlun en grunnskólar um 4% yfir áætlun.

24.1204332 - Kópavogstún 3-7 og 9.

Tillaga um yfirtökugjald á íbúðum fyrir aldraða á Sunnuhlíðarreit, frá sviðsstjóra umhverfissviðs og fjármála- og hagsýslustjóra vegna erindis Jáverks dags. 8. maí sl.

Bæjarráð samþykkir tillögu um yfirtökugjald á Sunnuhlíðarreit.

25.1204302 - Beiðni um undanþágu frá reglu um að kennarar á eftirlaunum séu ekki ráðnir í hlutastarf

Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 30. maí, lögð fram að nýju umsögn sem óskað var eftir í bæjarráði 26. apríl sl. varðandi ráðningar kennara á lífeyri, frestað á fundi bæjarráðs 31. maí sl.

Bæjarráð hafnar erindinu á grundvelli umsagnarinnar og felur sviðsstjóra menntasviðs að svara bréfritara.

26.1204387 - Kennarar sem fara á eftirlaun verði ekki ráðnir til kennslu. Samþykkt bæjarráðs mótmælt

Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 24. maí, lögð fram að nýju umsögn sem óskað var eftir í bæjarráði 3. maí, varðandi ráðningar kennara á lífeyri, frestað á fundi bæjarráðs 31. maí sl.

Bæjarráð felur sviðsstjóra menntasviðs að svara bréfritara á grundvelli umsagnarinnar.

27.1107040 - Framtíðarhópur SSH

Frá SSH, dags. 3. apríl, tillögur rýnihóps um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins ásamt lokaskýrslu hópsins sem frestað var í bæjarráði 24. maí s.l.

Bæjarráð samþykkir tillöguna með þeim fyrirvara að ráðið verði tímabundið í starfi vegna verkefnisins og að fyrirhugaður starfsmaður hafi aðsetur á skrifstofu SSH. Fjórir samþykktu tillöguna en einn bæjarfulltrúi sat hjá.

28.1203004 - Skipun hverfaráða.

Tilnefningar í hverfaráð sem samþykkt var í bæjarstjórn 24. apríl sl.

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

29.1204134 - Félag hesthúsaeigenda á Kjóavöllum: Erindi varðandi innheimtu fasteignagjalda á hesthús

Frá fjármála- og hagsýslustjóra, umsögn, dags. 5. júní 2012, um erindi félags hesthúsaeigenda á Kjóavöllum varðandi innheimtu fasteignagjalda á hesthúsi.

Bæjarráð felur fjármála- og hagsýslustjóra að svara bréfritara á grundvelli umsagnarinnar.

30.1205619 - Kostnaður við gerð sjónvarpsauglýsinga. Fyrirspurn frá Hjálmari Hjálmarssyni

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 6. júní, svar við fyrirspurn í bæjarráði 31. mái.

Lagt fram.

31.1205621 - Heildarkostnaður vegna skemmda á landi og gróðri í Heiðmörk. Fyrirspurn frá Hjálmari Hjálmarssyni

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 6. júní, svar við fyrirspurn í bæjarráði 31. mái.

Lagt fram. Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun: "Undirrituð bendir á að Kópavogsbær var dæmdur til að greiða alls 38.382.042 kr. vegna þessa máls. Guðríður Arnardóttir" Ármann Kr. Ólafsson og Ómar Stefánsson lögðu fram eftirfarandi bókun: "Borgarráð og borgarstjórn höfðu samþykkt framkvæmdina á sínum tíma en trassað að gefa út formlegt framkvæmdarleyfi. Þá var lagnaleiðin valin í samráði við þáverandi framkvæmdastjóra skógræktarfélags Reykjavíkur. Þetta var því bakstunga af verstu gerð af hálfu borgarinnar og skógræktarinnar. Ármann Kr. Ólafsson, Ómar Stefánsson"

32.1105499 - Sérfræðiþjónusta á menntasviði

Frá sviðsstjóra menntasviðs, tillaga og greinargerð vegna sérfræðiþjónustu á menntasviði.

Bæjarráð samþykkir tillögu um ráðningu til eins árs.

Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Umsögn sviðsstjóra menntasviðs staðfestir að sú vegferð sem hafin var í upphafi kjörtímabilsins um fastráðningu starfsmanna fremur en verktöku er hagfelldari fyrir sveitarfélagið og þar með bæjarbúa.

Ólafur Þór Gunnarsson"

Guðríður Arnardóttir tekur undir bókun Ólafs Þórs Gunnarssonar.

Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Framsóknarflokkurinn hefur um langt árabil stutt sambland einka- og opinbers rekstrar og er þessi tillaga í takt við það.

Ómar Stefánsson"

33.1205630 - Dagur íslenskrar náttúru 16. september 2012

Frá umhverfisráðuneytinu, dags. 30. maí 2012, varðandi dag íslenskrar náttúru sem haldinn verður 16. september n.k.

Lagt fram.

34.1206088 - Styrkbeiðni vegna reksturs Aflsins 2012

Frá Aflinu, styrkbeiðni, dags. 26. apríl, vegna reksturs Aflsins 2012.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

35.1206007 - Óskað eftir styrk í formi áheits vegna Ísgolfs Kiwanis 2012

Frá Kíwanisklúbbnum Eldey, dags. 31. maí 2012, þar sem óskað er eftir styrk í formi áheits v.Ísgolf Kiwanis 2012.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til umsagnar.

36.1206018 - Baráttudagur gegn einelti, 8. nóvember n.k.

Frá verkefnisstjórnar um aðgerðir gegn eineldi, dags. 1. júni 2012, varðandi baráttudag gegn einelti, sem haldinn verður 8. nóvember n.k.

Bæjarráð vísar erindinu til forvarna- og frístundanefndar og starfsmannastjóra til úrvinnslu.

37.1206101 - Styrkbeiðni vegna auglýsingaherferðar undir yfirskriftinni "Við styðjum textun á öllu íslensku sjónv

Frá félagi heyrnarlausra, dags. 6. júní, varðandi styrkbeiðni til verkefnisins "Textinn er málið"

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til umsagnar.

38.1001158 - Dagskrá bæjarstjórnarfundar

Dagskrá bæjarstjórnarfundar, 12. júní n.k.

I. Fundargerðir nefnda

II. Kosningar

39.1206132 - Stjórnsýsluúttekt og fleira. Fyrirspurn frá Pétri Ólafssyni

Pétur Ólafsson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:

"Undirritaður óskar upplýsinga um framgang stjórnsýsluúttektar sem er í samstarfssamningi meirihlutans.  Jafnframt óskar undirritaður eftir því að bæjarstjóri geri grein fyrir stöðu mála á næsta fundi ráðsins er varðar könnun á gögnum sem fundust í peningaskáp bæjarins síðasta sumar sbr yfirlýsingar hans í fjölmiðlum.

Pétur Ólafsson"

Fundi slitið - kl. 10:15.