Afþreying
Allir ættu að geta fundið sér eitthvað við hæfi í Kópavogi. Í bænum eru margvísleg tækifæri til útivistar og náttúruskoðunar og menningarstarfsemin verður blómlegri með ári hverju.
Ekki má heldur gleyma kaffihúsunum, veitingastöðunum og verslununum, sem m.a. má finna við Hamraborgina, í Smáralindinni og í Turninum á Smáratorgi.
Helstu útivistarsvæðin innan bæjarmarkanna eru í Fossvogsdal, Kópavogsdal og við Elliðavatn. Um þessi gróðursælu svæði liggja tugir kílómetra af fallegum gönguleiðum. Þá eru í fjörum Kársness merkilegt og einstakt fuglalíf.
Bláfjöll eru einnig innan marka Kópavogs og tekur bærinn þátt í rekstri skíðasvæðisins ásamt Reykjavík, Hafnarfirði, Garðabær, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi og Álftanesi.
Í Kópavogi eru tvær glæsilegar sundlaugar, Sundlaug Kópavogs og Sundlaugin Versölum. Þá eru í bænum níu íþróttahús og eru Fífan og Kórinn stærst þeirra.
Golfáhugamenn geta leikið golf á nýjum 18 holu velli við Leirdalinn og hestamenn hafa aðstöðu í Glaðheimum og í framtíðinni á Kjóavöllum. Þá hefur siglingafólk aðgang að nýrri og glæsilegri aðstöðu að Naustavör 20 í Kópavogi.
Menningarstofnanir Kópavogs eru allar í göngufæri á Borgarholtinu. Þar er til dæmis eitt af bestu listasöfnum landsins, Gerðarsafn, og við hlið þess er Salurinn, Tónlistarhús Kópavogs.
Í Náttúrufræðistofu Kópavogs er að finna merkilegt safn náttúrugripa en stofnunin er meðal fremstu vísindastofnana landsins á sviði náttúrufræða.
Að lokum má geta þess að Leikfélag Kópavogs hefur aðstöðu í Funalind 2 og heldur félagið úti metnaðarfullri sýningarskrá.





