Göngu og hjólreiðastígar
Þéttriðið net göngu- og hjólreiðastíga eru um allan Kópavog og hefur Kópavogsbær unnið ötullega að því að búa Kópavogsbúum góð útivistarsvæði með göngu- og hjólreiðatengingum á milli hverfa sem og til nærliggjandi sveitarfélaga.
Má þar helst nefna mikilvægar stígatengingar í Kópavogs- og Fossvogsdal, meðfram Kársnesströndinni og upp Selhrygginn við Linda- og Salahverfi.
Nú er unnið að því að merkja ýmsar áhugaverðar gönguleiðir um Kópavog. Merkar hafa verið gönguleiðir um vestur- og austurbæ Kópavogs og stendur til að gera slíkt hið sama fyrir önnur hverfi í Kópavogi. Leiðunum er lýst í texta og sagt frá áhugaverðum stöðum á leiðinni.
