Bæjarstjóri

Bæjarstjóri


Ármann Kr. Ólafsson er bæjarstjóri Kópavogs.

Ármann er fæddur 17. júlí 1966. Hann er stjórnmálafræðingur að mennt og hefur verið bæjarfulltrúi í Kópavogi síðan 1998. Hann var forseti bæjarstjórnar á árunum 2000 til 2001 og 2005 til 2007.

Hann hefur átt sæti í bæjarráði en auk þess verið formaður skipulagsnefndar Kópavogsbæjar, skólanefndar, atvinnumálanefndar og félagsmálaráðs. Þá var hann formaður stjórnar Strætó á árunum 2006 til 2008.

Ármann var þingmaður á árunum 2007 til 2009 og starfaði eftir það við nýsköpun við útflutning sjávarafurða. Hann var áður aðstoðarmaður þriggja ráðherra á ellefu ára tímabili og er stofnandi auglýsingastofunnar ENNEMM þar sem hann var framkvæmdastjóri á árunum 1991 til 1995.

Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri bæjarins, ráðinn af bæjarstjórn. Hann hefur á hendi framkvæmd ákvarðana bæjarráðs og bæjarstjórnar og fer ásamt bæjarráði með framkvæmda- og fjármálastjórn bæjarins. Bæjarstjóri er yfirmaður starfsmanna bæjarins og æðsti embættismaður.

Viðtalstímar bæjarstjóra eru á þriðjudögum frá kl. 8:30 til 10:30.

Nauðsynlegt er að panta viðtalstíma fyrirfram í síma 570-1500.

Netfang bæjarstjóra er: armann(hjá)kopavogur.is