Bæjarstjóri - Ármann Kr. Ólafsson

Bæjarstjóri - Ármann Kr. Ólafsson

Ármann Kr. Ólafsson er bæjarstjóri Kópavogs. Hann er oddviti sjálfstæðismanna í bæjarstjórn en meirihlutinn er myndaður af fulltrúum Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Y-Lista Kópavogsbúa.

Ármann er fæddur 17. júlí 1966. Hann er stjórnmálafræðingur að mennt og hefur verið bæjarfulltrúi í Kópavogi síðan 1998. Hann var forseti bæjarstjórnar á árunum 2000 til 2001 og 2005 til 2007.

Hann hefur átt sæti í bæjarráði en auk þess verið formaður skipulagsnefndar Kópavogsbæjar, skólanefndar, atvinnumálanefndar og félagsmálaráðs. Þá var hann formaður stjórnar Strætó á árunum 2006 til 2008.

Ármann var þingmaður á árunum 2007 til 2009 og starfaði eftir það við nýsköpun við útflutning sjávarafurða. Hann var áður aðstoðarmaður þriggja ráðherra á ellefu ára tímabili og er stofnandi auglýsingastofunnar ENNEMM þar sem hann var framkvæmdastjóri á árunum 1991 til 1995.

Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri bæjarins og framkvæmir ákvarðanir bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarstjóri er jafnframt yfirmaður starfsmanna bæjarins og æðsti embættismaður.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica