Bæjarstjórn

Bæjarstjórn

Bæjarstjórn Kópavogs er skipuð 11 bæjarfulltrúum sem eru kosnir hlutfallskosningu til fjögurra ára í senn.

Úrslit bæjarstjórnarkosninga 2010:

B listi Framsóknarflokks 991 atkvæði eða 7,22% og 1 fulltrúa.
D listi Sjálfstæðisflokks 4.142 atkvæði eða 30.16% 4 fulltrúa.
F listi Frjálslynda flokksins 99 atkvæði eða 0,72% og engan fulltrúa.
S listi Samfylkingarinnar 3.853 atkvæði eða 28.05% og 3 fulltrúa.
V listi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs 1.341 atkvæði eða 9.76% og 1 fulltrúa.
X listi Næst besta flokksins 1.901 atkvæði eða 13,84% og 1 fulltrúa.
Y listi Kópavogsbúa 1.407 atkvæði eða 10.25% og 1 fulltrúa.

Meirihlutasamstarf er með Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki og Y-Lista Kópavogsbúa. Þeir hafa gert með sér málefnasamning.

Á kjörskrá í kosningunum voru 21.387. Alls kusu á kjörstað 13.508 og utankjörfundaratkvæði voru 1.196. Kosningaþátttaka var 68.75%.

Auðir seðlar voru 915. Ógildir seðlar 55. Samtals 14.704.

Verksvið:

Bæjarstjórn fer með stjórn bæjarfélagsins og skal ekkert mál, er varðar hagsmuni þess, til lykta leitt án umsagnar hennar.

Fundir:

Bæjarstjórn heldur reglulega fundi tvisvar í hverjum mánuði annan og fjórða þriðjudag hvers mánaðar nema júlí og ágúst, er halda skal aðeins einn fund og þá þriðja þriðjudag hvers mánaðar.

Bæjarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 16.00. Heimilt er að fella niður fundi í bæjarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi og einnig er heimilt að fella niður fund í desember.

Aukafundi skal halda í bæjarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati forseta bæjarstjórnar og bæjarstjóra og skylt er að halda aukafund í bæjarstjórn ef a.m.k. þriðjungur bæjarfulltrúa krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.

Falli reglulegur fundardagur á helgidag eða almennan frídag, skal boða til aukafundar þann virkan dag á undan eða eftir, sem næstur er.

Aðalfulltrúar:

Aðalsteinn Jónsson, D-listi Sjálfstæðisflokks.
Ármann Kr. Ólafsson, D-listi Sjálfstæðisflokks.
Guðríður Arnardóttir, S-listi Samfylkingar.
Gunnar I. Birgisson, D-listi Sjálfstæðisflokks.
Hafsteinn Karlsson, S-listi Samfylkingar.
Hjálmar Hjálmarsson, X-listi Næst besta flokksins.
Margrét Björnsdóttir, D-listi Sjálfstæðisflokks.
Ólafur Þór Gunnarsson, V-listi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs.
Ómar Stefánsson, B-listi Framsóknarflokks.
Pétur Ólafsson, S-listi Samfylkingar.
Rannveig H. Ásgeirsdóttir, Y-listi Kópavogsbúa.

Varafulltrúar:

Jóhann Ísberg, D-listi Sjálfstæðisflokks.
Elfur Logadóttir, S-listi Samfylkingar.
Karen E. Halldórsdóttir, D-listi Sjálfstæðisflokks.
Margrét Júlía Rafnsdóttir, S-listi Samfylkingar.
Erla Karlsdóttir, X-listi Næst besta flokksins.
Guðmundur Freyr Sveinsson, Y-listi Kópavogsbúa.
Árni Bragason, D-listi Sjálfstæðisflokks.
Guðný Dóra Gestsdóttir, V-listi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs.
Tjörvi Dýrfjörð Birgisson, S-listi Samfylkingar.
Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir, D-listi Sjálfstæðisflokks.
Una María Óskarsdóttir, B-listi Framsóknarflokks.

Bæjarstjóri:

Bæjarstjóri er Ármann Kr. Ólafsson.
Forseti bæjarstjórnar er Margrét Björnsdóttir, D-lista.
Formaður bæjarráðs er Rannveig Ásgeirsdóttir, Y-lista





Þetta vefsvæði byggir á Eplica