Dagskrá bæjarstjórnar

Dagskrá bæjarstjórnar

Fundur – 8. maí 2012.

 

 

Bæjarstjórn - 1058

 

 

1058. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í bæjarstjórnarsal,

þriðjudaginn 8. maí 2012 og hefst kl. 16:00

 Dagskrá:



Fundargerðir nefnda
1.   1204018F - Bæjarráð 26/4

2639. fundur
 

2.   1203141 - Beiðni um lækkun á vatnsskatti og holræsagjaldi á kirkjur í Kópavogsbæ

Umsögn bæjarritara dags. 23/4 um erindi sóknarnefnda í Kópavogi, vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu, sbr. lið 19 í fundargerð bæjarráðs 26/4.
 

3.   1204299 - Gjaldskrá þjónusturekinna og einkaleikskóla vegna sérkennslu

Frá sviðsstjóra menntasviðs, tillaga að nýrri gjaldskrá vegna sérkennslu í leikskólum, mál sem bæjarráð vísaði til bæjarstjórnar, sbr. lið 23 í fundargerð bæjarráðs 26/4.
 

4.   0810015 - Leikskóli við Aðalþing, útboð á rekstri.

Frá sviðsstjóra menntasviðs, tillaga að viðauka við þjónustusamning leikskólans Aðalþing, mál sem bæjarráði vísaði til bæjarstjórnar, sbr. lið 24 í fundargerð bæjarráðs 26/4.
 

5.   1204295 - Leikskólinn Kór, samningur

Frá sviðsstjóra menntasviðs, tillaga að viðaukasamningi við þjónustusamning við leikskólann Kór, mál sem bæjarráð vísaði til afgreiðslu bæjarstjórnar, sbr. lið 25 í fundargerð bæjarráðs 26/4.
 

6.   1204376 - Málefni lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar

Guðríður Arnardóttir boðaði umræðu um málefni lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar á næsta bæjarstjórnarfundi, sbr. lið 37 í fundargerð bæjarráðs 26/4.
 

7.   1204377 - Uppbygging sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu

Guðríður Arnardóttir boðaði umræðu um uppbyggingu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu á næsta bæjarstjórnarfundi, sbr. lið 38 í fundargerð bæjarráðs 26/4.
 

8.   1205001F - Bæjarráð 3/5

2640. fundur
 

9.   1104301 - Reglur um dagþjónustu við fatlað fólk

Frá deildarstjóra í þjónustudeild fatlaðra, breytingar á reglum um dagþjónustu, samþykktar á fundi félagsmálaráðs 26/4, sbr. lið 8 í fundargerð.
Bæjarráð vísaði afgreiðslu til bæjarstjórnar, sbr. lið 2 í fundargerð bæjarráðs 3/5.
 

10.   1006175 - Víghólastígur 24, umsókn um byggingarleyfi.

Guðríður Arnardóttir lagði til að afgreiðslu yrði vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Var það samþykkt með tveimur samhljóða atkvæðum, sbr. lið 7 í fundargerð bæjarráðs 3/5.
 

11.   1201090 - Þorrasalir 37, breytt deiliskipulag.

Guðríður Arnardóttir lagði til að afgreiðslu yrði vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Var það samþykkt með tveimur samhljóða atkvæðum, sbr. lið 8 í fundargerð bæjarráðs 3/5.
 

12.   1202235 - Austurkór 7-13. Breytt deiliskipulag.

Guðríður Arnardóttir lagði til að afgreiðslu yrði vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Var það samþykkt með tveimur samhljóða atkvæðum, sbr. lið 9 í fundargerð bæjarráðs 3/5.
 

13.   1204081 - Kópavogsbrún 1, breytt deiliskipulag

Guðríður Arnardóttir lagði til að afgreiðslu yrði vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Var það samþykkt með tveimur samhljóða atkvæðum, sbr. lið 10 í fundargerð bæjarráðs 3/5.
 

14.   0801003 - Skotfélag Kópavogs, ósk um æfingasvæði

Guðríður Arnardóttir lagði til að afgreiðslu yrði vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Var það samþykkt með tveimur samhljóða atkvæðum, sbr. lið 11 í fundargerð bæjarráðs 3/5.
 

15.   1011193 - Kópavogstún - Kópavogsgerði. Breytt deiliskipulag.

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar, sbr. lið 12 í fundargerð bæjarráðs 3/5.
 

16.   1203351 - Stærðfræðikeppnin BEST fyrir 9. bekki grunnskóla

Mál sem lagt var fyrir bæjarráð og vísað til umsagnar skólanefndar þann 29. mars sl. Meirihluti bæjarráðs lagði til að styrkur að upphæð kr. 300.000 verði veittur til verkefnisins, en tillögunni var vísað til bæjarstjórnar, sbr. lið 20 í fundargerð bæjarráðs 3/5.
 

17.   1204016F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa 24/4

42. fundur
 

18.   1204020F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa 2/5

43. fundur
 

19.   1204010F - Félagsmálaráð 26/4

1328. fundur
 

20.   1204017F - Forvarna- og frístundanefnd 26/4

9. fundur
 

21.   1204007F - Íþróttaráð 26/4

12. fundur
 

22.   1204015F - Jafnréttis- og mannréttindanefnd 25/4

11. fundur
 

23.   1204019F - Lista- og menningarráð 26/4

1. fundur
 

24.   1205002F - Lista- og menningarráð 3/5

2. fundur
 

25.   1204009F - Skipulagsnefnd 26/4

1208. fundur
 

26.   1201281 - Skólanefnd MK 2/5

19. fundur
 

27.   1201282 - Stjórn Héraðsskjalasafns 26/4

78. fundur
 

28.   1201283 - Stjórn Reykjanesfólkvangs 20/2
 

29.   1201283 - Stjórn Reykjanesfólkvangs 14/3
 

30.   1201283 - Stjórn Reykjanesfólkvangs 27/3
 

31.   1201283 - Stjórn Reykjanesfólkvangs 3/4
 

32.   1201284 - Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 27/4

796. fundur
 

33.   1201286 - Stjórn Slökkviliðs hbsv. 27/4

111. fundur
 

34.   1201288 - Stjórn Strætó bs. 27/4

169. fundur
 

Fjárhagsáætlun - Ársreikningar
35.   1204075 - Ársreikningur Kópavogsbæjar 2011

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, gerði grein fyrir helstu niðurstöðum samantekins ársreiknings Kópavogsbæjar 2011, A - hluta fyrirtækja samstæðunnar, sem eru Eignasjóður Kópavogsbæjar, Byggingarsjóður MK og Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar, sem eru undirritaðir af bæjarstjóra og löggiltum endurskoðendum bæjarins, svo og B - hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar: Fráveitu Kópavogsbæjar, Vatnsveitu Kópavogsbæjar og Húsnæðisnefndar Kópavogsbæjar, einnig undirritaðir af bæjarstjóra og löggiltum endurskoðendum bæjarins, ásamt ársreikningum B - hluta fyrirtækjanna Tónlistarhúss Kópavogs og Hafnarsjóðs Kópavogs, sem höfðu verið samþykktir í viðkomandi stjórn/nefnd og undirritaðir af löggiltum endurskoðendum bæjarins. Einnig var lagður fram samþykktur ársreikningur Vatna ehf., Fjarskiptafélagsins Rjúpnahæð ehf. og félagsins Músik og saga ehf. Þá var lögð fram skýrsla löggiltra endurskoðenda bæjarins. Lagði bæjarstjóri til að samantekinn ársreikningur Kópavogsbæjar 2011 ásamt fylgigögnum yrði samþykktur. Bæjarstjóri gerði grein fyrir ársreikningi Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar, þegar samþykktum í stjórn sjóðsins, sem þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar Kópavogs.
 

Kosningar
36.   1003047 - Kosningar á fundi bæjarstjórnar
 

37.   1006258 - Kosningar í stjórn lífeyrissjóðs 2010 - 2014

Kosning tveggja fulltrúa og jafnmargra til vara, frestað á fundi bæjarstjórnar 14/2 og 28/2.
 

Önnur mál
38.   1204119 - Skuldsett heimili í Kópavogi

Mál sem Guðríður Arnardóttir óskaði eftir að yrði á dagskrá bæjarstjórnar 24/4, en því var frestað á þeim fundi.
 

39.   1204120 - Fólksfjölgun og uppbygging í Kópavogi frá 2002

Á fundi bæjarráðs þann 12/4 lagði Guðríður Arnardóttir fram eftirfarandi bókun:
"Undirrituð óskar eftir því að á dagskrá næsta bæjarstjórnarfundar verði sér liður um skuldsett heimili í Kópavogi og annar sérstakur liður um fólksfjölgun í Kópavogi og uppbyggingu frá árinu 2002.
Guðríður Arnardóttir"
 

 

 

 

 

 

Páll Magnússon, bæjarritari.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

















































































































































































































































































































































 

 

 

 

 

 


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica