Fréttasafn

Héraðsskjalasafnið í nýtt húsnæði - 11.5.2012

Héraðsskjalasafnið í Kópavogi hefur nú verið flutt í nýtt húsnæði að Digranesvegi 7. Verður það formlega vígt laugardaginn 12. maí. Það var áður í húsnæði að Hamraborg 14a. Sjálfur skjalaflutningurinn hófst í ágúst 2011 og lauk þegar Hamraborgin var tæmd í febrúarlok 2012.

 

Bæjarstjóri opnar sýningu í Smáranum - 11.5.2012

Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs opnaði í dag sýninguna: Heimilið og garðurinn í Smáranum í Kópavogi.  Á sýningunni er lögð áhersla að að kynna allt sem tengist þeim málaflokki. Vonast er til að sýningin geti orðið árviss viðburður í Kópavogi.

 

Hvíldarbekkir á gönguleiðum aldraðra - 11.5.2012

Tuttugu bekkjum hefur verið komið fyrir með reglulegu millibili á sérmerktum gönguleiðum við félagsmiðstöðvar eldri borgara í Kópavogi. Með þessu er verið að hvetja aldraða til að hreyfa sig og fara í stuttar gönguferðir án þess að  þurfa að hafa áhyggjur af því að geta ekki hvílt lúin bein á leiðinni.
 

Til hamingju HK - 11.5.2012

Kópavogsbær óskar HK til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn en HK varð Íslandsmeistari karla í fyrsta sinn um helgina.  HK sigraði FH 28:26 í Kaplakrika.

 
tunnurnar

Takið vel á móti endurvinnslutunnunum - 9.5.2012

Bæjarstjóri Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson, færði í morgun Guðrúnu Benediktsdóttur, íbúa í Brekkusmára í Kópavogi og formanni íbúasamtakanna Betri Nónhæð, fyrstu bláu endurvinnslutunnuna en slíkum tunnum verður á næstu dögum og vikum dreift til allra bæjarbúa. Kópavogsbær er fyrsta sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu til að bjóða slíka þjónustu.
 
flugdrekakrakkar

Kópavogur iðar af lífi - 9.5.2012

Kópavogur iðar af lífi þessa dagana en nú stendur yfir menningarhátíð í bænum þar sem yngsta kynslóðin fær sérstaka athygli undir yfirskriftinni: Ormadagar. Fjölbreytt dagskrá er í boði á menningartorfunni og í dag tóku leikskólabörn í bænum þátt í flugdrekadeginum mikla á Listatúni.

 
jafnréttisviðurkening

Auglýsa eftir tilnefningum - 4.5.2012

Jafnréttis- og mannréttindaráð Kópavogsbæjar óskar eftir tilnefningum vegna árlegrar jafnréttisviðurkenningar. Samkvæmt jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar veitir jafnréttis- og mannréttindaráð  ár hvert viðurkenningu þeirri stofnun, nefnd eða ráði bæjarins, einstaklingi, félagi, fyrirtæki eða annarri stofnun sem hefur að mati ráðsins staðið sig best undangengin  ár við að vinna að framgangi jafnréttis- og mannréttindamála í Kópavogi. 

 
Kopadag7339

Fljótandi ljóð á Kópavogsdögum - 4.5.2012

Kópavogsdagar, árleg menningarhátíð Kópavogs, hófust í dag og standa óslitið til 12. maí. Sérstök áhersla verður lögð á barnamenningu og því mega sundlaugargestir í Kópavogi eiga von á því að rekast á fljótandi verðlaunaljóð eftir grunnskólabörn úr bænum í sundi og ljóðaunnendur í strætó geta lesið þau á strætóleiðum 28 og 35 í Kópavogi.

 
Skólahljómsveit Kópavogs

Kópavogsdagar hefjast á morgun - 3.5.2012

Kópavogsdagar, menningarhátíð Kópavogsbæjar, hefjast með formlegri athöfn kl. 15:00 á morgun við Listatúnið sem er við safnahúsið og Gerðarsafn. Þetta er í níunda sinn sem menningarhátíðin er haldin.

 
karsneskorinn

400 börn taka þátt í maraþontónleikum - 2.5.2012

Um 400 börn Kársneskóranna standa fyrir samfelldri söngdagskrá í Salnum, laugardaginn  5. maí frá kl. 9:00 til 16:00 og ljúka þannig 37. starfsári sínu. Tónleikarnir eru hluti af Kópavogsdögum, menningarhátíð bæjarins sem nú er að hefjast.

 
Sumarnámskeið 2011

Skráning hafin á sumarnámskeið - 2.5.2012

Skráning á sumarnámskeið hjá Kópavogsbæ hefst 3. maí en búist er við að fleiri en þúsund börn og unglingar verði á námskeiðum á vegum bæjarins í sumar. Námskeiðin eru mjög fjölbreytt og ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
 
undirritunin

Bláar tunnur við hvert heimili - 26.4.2012

Kópavogsbúar fá á næstu vikum nýja bláa endurvinnslutunnu en þar með verður Kópavogur fyrsta sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu, ásamt Mosfellsbæ, til að gefa öllum íbúum kost á því að flokka sorp við húsdyrnar hjá sér. Fyrstu tunnunum verður dreift í Nónhæð 9. maí og má búast við að öll heimili í Kópavogi verði komin með nýja tunnu að fimm vikum liðnum.

 
sumarfyrsti

Sumarið komið í Kópavoginn - 20.4.2012

Kópavogsbúar fögnuðu sumardeginum fyrsta í blíðskaparveðri í gær. Skátafélagið Kópar hafði veg og vanda af dagskránni sem var afar fjölbreytt. Dagurinn hófst með skátamessu og skrúðgöngu og í Fífunni hélt bæjarstjóri Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson, stutt ávarp og óskaði öllum gleðilegs sumars.

 
Götuleikhús Kópavogs

Skráning í sumarnámskeið að hefjast - 18.4.2012

Skráning á sumarnámskeið hjá Kópavogsbæ hefst 3. maí en búist er við að fleiri en þúsund börn og unglingar verði á námskeiðum á vegum bæjarins í sumar. Námskeiðin eru mjög fjölbreytt og því ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.

 
Sautjándi júní

Sumardeginum fagnað með skrúðgöngu - 16.4.2012

Sumardeginum fyrsta þann 19. apríl verður fagnað með skrúðgöngu kl. 13:30, gengið verður frá  Digraneskirkju  í Fífuna, þar sem fram fer skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna  til kl. 16:00.

 
Kópavogur loftmynd

Ársreikningur bæjarins lagður fram - 12.4.2012

Niðurgreiðsla skulda Kópavogsbæjar umfram lántökur var rúmlega 1.650 milljónir króna á síðasta ári. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársreikningi Kópavogsbæjar fyrir árið 2011. Hann var lagður fram á bæjarráðsfundi í morgun og samþykktur til afgreiðslu í bæjarstjórn. Fyrri umræða er væntanleg 24. apríl.

 
sumargulblom

Vorhreinsun lóða í bænum - 11.4.2012

Árviss vorhreinsun lóða í Kópavogi er nú að hefjast en þá taka allir höndum saman, eigendur lóða og landsvæða, um að hreinsa og fegra bæinn fyrir sumarið. Starfsmenn Kópavogsbæjar verða svo á ferðinni í lok apríl og í byrjun maí og fjarlægja garðúrgang sem fólk hefur sett utan við lóðamörk sín.

 
bjarki

Kópavogsdagar haldnir í maí - 10.4.2012

Hin árlega menningarhátíð Kópavogs, Kópavogsdagar, verður haldin 5. til 11. maí. Er það í níunda sinn sem hátíðin verður haldin. Kópavogur hefur um árabil stutt vel við menningarlífið í bænum og er markmið Kópavogsdaga að gefa bæjarbúum færi á að njóta afrakstur þess á eins konar uppskeruhátíð.

 
Blóm í Kópavogi

Vorhreingerningar í Kópavogi - 4.4.2012

Nú er unnið að því að sópa götur og gönguleiðir í Kópavogi eins og bæjarbúar hafa væntanlega tekið eftir en nokkur sandur er á götunum eftir snjóþungan vetur.  Sem kunnugt er var sandur og salt borið á göturnar þegar hálkan var sem mest.  Vorhreingerningin heldur áfram eftir páska.

 
28.3.-008

Afhentu bæjarstjóra tillögur að bættu umferðaröryggi - 28.3.2012

Leikskólabörnin í Arnarsmára í Kópavogi eru áhugasöm um bætt umferðaröryggi í hverfinu og afhentu þau Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra tillögur sínar að nýjum göngubrautum og skiltum í morgun. Hann útilokaði ekki að hægt yrði að  koma til móts við þær tillögur að einhverju leyti.

 
safn

Vegleg bóka- og tímaritagjöf úr Danaveldi - 26.3.2012

Upplýsingar um veglegan bóka- og tímaritakost, sem Náttúrufræðistofa Kópavogs, fékk fyrr í vetur gefins frá vatnalíffræðideild Kaupmannahafnarháskóla, eru nú aðgengilegar í bókasafnskerfinu Gegni.
 
Vinnuskóli Kópavogs

Opnað hefur verið fyrir umsóknir - 22.3.2012

Opnað hefur fyrir umsóknir um sumarstörf og störf í Vinnuskóla Kópavogs. Sumarstörf eru fyrir 18 ára og eldri (fædd 1994 og fyrr) en Vinnuskóli er fyrir þá sem eru á aldrinu 14 – 17 ára (fædd 1995 – 1998).

 
myndir

Sigraði í upplestrarkeppni - 22.3.2012

Aðalsteinn Hilmarsson, Lindaskóla, sigraði í árlegri upplestrarkeppni í 7. bekk sem haldin var í Salnum í vikunni. Keppendur voru  18 frá 9 grunnskólum í Kópavogi.  Ragnheiður Kara Hálfdánardóttir, Snælandsskóla, var í 2. sæti og Bertha María Óladóttir var í 3. sæti.

 
skakmynd

Sveit Álfhólsskóla Íslandsmeistari - 20.3.2012

Skáksveit Álfhólsskóla kom sá og sigraði á Íslandsmóti barnasveita í skák um helgina. A-sveitir Rimaskóla og Salaskóla urðu í öðru og þriðja sæti. Keppnin fór fram í Rimaskóla. Í sigurliðinu eru: Dawid Kolka, Róbert Leó Jónsson, Felix Steinþórsson og Guðmundur Agnar Bragason. Smári Rafn Teitsson er  þjálfari og liðsstjóri.

 
leikskolaheimsokn

Bæjarstjóri heimsækir leikskóla - 15.3.2012

Börnin á leikskólanum Baugi í Kópavogi tóku vel á móti bæjarstjóra, Ármanni Kr. Ólafssyni og formanni bæjarráðs, Rannveigu Ásgeirsdóttur, í morgun en þau voru þangað komin til að kynna sér starfsemi leikskólans.  Ármann og Rannveig hyggjast heimsækja alla leikskóla Kópavogs, sem og aðrar stofnanir bæjarins, á næstu vikum og mánuðum.

 
dansinn

Danspör frá Kópavogi gerðu það gott - 15.3.2012

Danspör frá Dansíþróttafélagi Kópavogs (DÍK) stóðu sig með eindæmum vel á Íslandsmeistaramóti í dönsum með frjálsri aðferð sem fram fór um liðna helgi. Einnig tóku þau þátt í bikarmóti fyrir K-riðla og dansmóti fyrir A-riðla með góðum árangri.

 
pameladesensi

Klassísk diskóstemmning í Salnum - 15.3.2012

Klassískt diskótek fer fram kl 13:00 í Salnum sunnudaginn 18. mars í boði Töfrahurðarinnar . DJ Sóri (Sigurþór Heimisson) mætir og kynnir fyrir gestum danstónlist frá klassíska tímabilinu, sannkallaða partýtónlist fyrri alda. Allir eru velkomnir. Miðaverð er kr. 1.500.

 
jafnretti

Jafnréttisdagar í MK - 8.3.2012

Jafnréttisdagar voru haldnir í Menntaskólanum í Kópavogi á dögunum en markmiðið er að auka vitund nemenda, foreldra og annarra um jafnrétti. Dagarnir eru árviss viðburður og eru haldnir í samstarfi skólans og jafnréttisnendar Kópavogsbæjar.

 
undirritunin

Kópavogsbúar flokka sorp - 5.3.2012

Flokkun á sorpi til endurvinnslu hefst í Kópavogi í sumar en samkomulag um kaup og afhendingu endurvinnslutunna hefur nú verið undirritað af bæjarstjóra Kópavogs, Ármanni Kr. Ólafssyni og Sveini Hannessyni framkvæmdastjóra fyrirtækisins Hafnarbakka – Flutningatækni ehf. Kópavogur er þar með eitt af fyrstu sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu til að flokka sorp.

 
eldgosid

Árleg sýning blaðaljósmyndara í Gerðarsafni - 2.3.2012

Árleg sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands á bestu myndum ársins 2011 verður opnuð í Gerðarsafni, laugardaginn 3. mars klukkan 15.00.  Á sýningunni eru að þessu sinni 72 myndir sem valdar hafa verið af dómnefnd úr um eitt þúsund innsendum myndum yfir 30 blaðaljósmyndara.

 

Skoða fréttir eftir árum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica