Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Sjaldséður haftyrðill í bíl í Kópavogi - 29.12.2007

Haftyrðill. Ljósmynd: Náttúrufræðistofa KópavogsÍbúi í Brekkutúni rakst á dauðan haftyrðil í framsæti bifreiðar sinnar í gær, föstudaginn 28. desember. Haftyrðillinn hafði samkvæmt frétt frá Náttúrufræðistofu Kópavogs komist inn um 6 til 7 sentimetra breiða rifu á glugga bifreiðarinnar sem skilin hafði verið eftir í ógáti á jóladag.
 

Farsælt nýtt ár - 24.12.2007

Ljósmynd: KrissýBæjarstjórn Kópavogs og starfsfólk bæjarins óskar bæjarbúum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
 

Kópavogur lækkar leikskólagjöld - 22.12.2007

Frá jólaballi á leikskólanum Arnarsmára.Bæjarstjórn Kópavogs ákvað að lækka almenn leikskólagjöld um 15% árið 2008.
 

Viðurkenningar fyrir 25 ára starf - 21.12.2007

Á ljósmyndinni eru ásamt ofangreindum starfsmönnum sem eiga 25 ára starfsafmæli Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Samúel Örn Erlingsson, varabæjarfulltrúi og staðgengill formanns bæjarráðs.Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, afhenti í dag níu starfsmönnum Kópavogsbæjar sérstaka viðurkenningu fyrir dygg og góð störf í þágu bæjarins í 25 ár.
 

Vatni úr Kópavogi hleypt á dreifikerfi í Garðabæ - 21.12.2007

Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, gefur Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra í Garðabæ, vatn að drekka við athöfn í stjórnbrunninum við Vífilsstaðalæk í dag. Vatni frá Vatnsveitu Kópavogs var í dag hleypt á allt dreifikerfi Vatnsveitu Garðabæjar. Fyrir fáum vikum var vatni frá VK hleypt á Kauptún og síðar á Molduhraun.
 

Vefur Kópavogsbæjar í sókn - 20.12.2007

Vefur Kópavogsbæjar er  í 7.-8. sæti yfir vefi sveitarfélaga í úttekt um opinbera vefi.Vefur Kópavogsbæjar er í úrvalssveit vefsíðna hjá sveitarfélögum á landinu.
 

Viljayfirlýsing um byggingu óperuhúss - 19.12.2007

Samþykkt var að bæjarstjórn úthlutaði óperuhúsi lóð í miðbæ Kópavogs eða nágrenni.Bæjarstjórn Kópavogsbæjar samþykkti einum rómi á fundi sínum í gærkvöld, hinn 18. desember 2007, viljayfirlýsingu um byggingu óperuhúss í Kópavogi.
 

Gjöf sem hljómar vel - 17.12.2007

Salurinn er í Tónlistarhúsi Kópavogs, Hamraborg 6. Ljósmynd: Krissý.Salurinn hefur látið hanna ný og falleg gjafakort sem gilda á tónleika í Salnum á komandi ári. Gjafakort er bæði hægt að fá opið að tiltekinni fjárhæð eða sem ávísun á valda tónleika.
 

Óveður í Kópavogi - 14.12.2007

Lögreglan hefur fengið fjölda tilkynninga um tjón vegna hvassviðrisins en ekki er vitað um meiðsl.Lögreglan í Kópavogi hvetur bæjarbúa, framkvæmdaraðila og fyrirtækjaeigendur til að fergja allt lauslegt eða flytja það inn í hús svo að það fjúki ekki í óveðrum og valdi tjóni. Veðurstofan spáir stormi um land allt.
 

Dregið í jólagetraun - 14.12.2007

Dregið úr réttum lausnum í jólagetraun lögreglunnar og Umferðarstofu. Mynd: LRHGóð þátttaka var hjá nemendum í grunnskólum Kópavogs í jólagetraun lögreglunnar og Umferðarstofu fyrir nemendur í 1. til 5. bekk. Dregið var úr réttum lausnum á bæjarskrifstofu Kópavogs þann 13. desember.
 

Fjárhagsáætlun Kópavogs 2008 samþykkt - 12.12.2007

Bæjarstjórn Kópavogsbæjar samþykkti fjárhagsáætlun fyrir árið 2008 á fundi sínum í gærkvöld. Gert er ráð fyrir ríflega 2,2 milljarða króna rekstrarafgangi.
 

?Frítt í strætó? frestað að ósk Strætós bs. - 10.12.2007

Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt að fresta ákvörðun um gjaldfrjálsar strætisvagnasamgöngur í samræmi við erindi frá stjórn Strætós bs.

 

Opnun Baugs, nýs leikskóla í Kópavogi - 6.12.2007

Hákon Gunnarsson og Thelma Rós Héðinsdóttir, nemendur í Baugi, klipptu á borða.Nýr leikskóli var opnaður í Kópavogi í dag síðdegis. Leikskólinn, sem hefur hlotið nafnið Baugur, stendur við Baugakór. Í Kópavogsbæ eru nú reknir 19 leikskólar á vegum bæjarins og 3 á vegum einkaaðila.
 

Sértækar aðgerðir í starfsmannamálum í Kópavogi - 6.12.2007

Bæjarráð Kópavogs samþykkti í dag einróma útfærslur á sértækum aðgerðum í starfsmannamálum Kópavogsbæjar. Kostnaður vegna sértækra aðgerða í starfsmannamálum nemur að sögn bæjarstjórans á bilinu 210 til 220 milljónum króna.
 

Jónas Ingimundarson heldur píanótónleika - 4.12.2007

Jónas Ingimundarson leikur öndvegisverk eftir Beethoven í Salnum miðvikudagskvöldið 5. desember 2007.
Miðvikudagskvöldið 5. desember kl. 20 heldur Jónas Ingimundarson píanótónleika í Salnum í Tónlistarhúsi Kópavogs. Á tónleikunum leikur Jónas þrjú öndvegisverk Beethovens, Tunglskinssónötuna, Pathetiquesónötuna og Appassionata op. 57. Aðgangur er ókeypis.
 

Ferðafélag Íslands styður Smáraskóla - 4.12.2007

Ferðafélag Íslands brást vel við beiðni Smáraskóla um stuðning til að bjarga ferðaverkefni sínu. Mynd: Sigurður Bogi SævarssonFerðaverkefnið í hættu
Ferðafélag Íslands styður Smáraskóla til að halda áfram vel heppnaðri og metnaðarfullri kennslu í ferðalögum og útivist sem var í hættu eftir að menntamálaráðuneytið tilkynnti að ekki mætti taka gjald af foreldrum nemenda fyrir ferðir á vegum skóla. Elstu nemendurnir fá ókeypis aðild að félaginu með öllu sem henni fylgir.
 

Bæklingur um íþróttir í Kópavogi - 3.12.2007

Bæklingurinn Íþróttir í Kópavogi var borinn í öll hús í Kópavogi.Út er kominn myndskreyttur bæklingur um íþróttir og íþróttamannvirki í Kópavogi. Með bæklingnum vilja bæjaryfirvöld vekja athygli á þeirri fjölbreyttu íþróttastarfsemi sem stunduð er í Kópavogi og þeirri umgjörð sem bærinn hefur búið þessum mikilvæga málaflokki.
 

Nágrannavarsla skilar árangri - 3.12.2007

Afbrotum fækkar

Nágrannavarsla í Sæbólshverfi skilar árangri og afbrotum í hverfinu fækkar. Tilkynningum hefur fjölgað til lögreglu frá íbúum hverfisins um ýmis atvik sem eiga sér stað í hverfinu. Forvarnarfulltrúi Kópavogsbæjar segir að það sé ánægjuleg þróun að sjá íbúa hverfisins vera vakandi yfir sínu nánasta umhverfi.
 

Jólahátíð með nýju sniði - 2.12.2007

Ljósin voru tendruð á vinabæjarjólatrénu frá Norrköping í Svíþjóð á Hálsatorgi 1. desember. Mynd: KrissýÍ gær var haldin jólahátíð í Kópavogi í tilefni af tendrun jólaljósanna á vinarbæjarjólatré Kópavogsbúa.


Sjá myndir frá hátíðinni.

Sjá frétt sjónvarpsins frá hátíðinni í Kópavogi og á Ísafirði.
 

Jólatrjáasala að Fossá í Kjós - 29.11.2007

Jólatrjáasala að Fossá í Kjós. Mynd: Skógræktarfélag KópavogsDreymir þig um að fella með fjölskyldu þinni ykkar eigið jólatré? Eins og undanfarin ár heimilar skógræktarfélagið í Kópavogi ásamt skógræktarfélögunum í Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós skógarhögg að Fossá í Hvalfirði gegn hóflegu gjaldi.
 

Jólahátíð í Kópavogi laugardaginn 1. desember - 28.11.2007

Auglýsing um jólahátíð í Kópavogi laugardaginn 1. desember 2007.Laugardaginn 1. desember verður jólahátíð í Kópavogi á Hálsatorgi og í nærliggjandi menningarstofnunum. Kópavogsbúum og öðrum gestum er meðal annars boðið að taka þátt í laufabrauðsbakstri, hlusta á jólasöngva, fræðast um jólaköttinn og tendra á jólaljósunum á vinarbæjarjólatré Kópavogsbúa.


Smelltu hér til að stækka auglýsinguna.
 

Stefnt að lækkun gjalda og auknum framkvæmdum - 27.11.2007

Í tillögu að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2008, sem lögð var fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs nú síðdegis, er gert ráð fyrir ríflega 2,2 milljarða króna rekstrarafgangi.
 

Vatnsendahvarf ? Tónahvarf II - 27.11.2007

Hinar auglýstu lóðir standa við Tónahvarf II en sú gata á eftir að fá endanlegt heiti.Atvinnuhúsnæði
Úthlutun á byggingarétti

Kópavogsbær auglýsir byggingarétt til úthlutunar á lóðum 1, 3, 5 og 7 við Tónahvarf II (götuheitið ekki endanlegt) undir atvinnuhúsnæði á tveimur hæðum. Lóðirnar eru frá u.þ.b. 4800 m2 til 6400 m2.
 

Líðan barna í Kópavogi - 27.11.2007

Mjög góð mæting foreldra var á fræðslufund í Hjallaskóla í morgun. Kynntar voru niðurstöður úr rannsókn Rannsóknar og greiningar um hagi og líðan barna í Kópavogi, auk þess sem Hugo Þórisson, sálfræðingur skólans, var með mjög áhugavert erindi. Framundan eru fundir í öllum grunnskólum bæjarins á morgnana kl 8.10 - 9.10.
 

Vatnsveita opnuð ? vatnsskattur lækkaður - 23.11.2007

Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs Kópavogs, og Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri bragða á vatninu úr nýju vatnsveitunni. Mynd: KrissýKópavogsbær hefur tekið í notkun eigið vatnsból í Vatnsendakrikum í Heiðmörk. Fram að þessu hefur Kópavogsbær keypt vatn af Orkuveitu Reykjavíkur (áður Vatnsveitu Reykjavíkur) en bæjarfélagið verður framvegis sjálfu sér nægt um vatn og hefur auk þess gert samning um vatnsöflun fyrir Garðabæ til 40 ára.
 

Styrkur til skólastarfs í Kópavogsskóla - 22.11.2007

Samningar um styrki til skólastarfs í Kópavogsskóla næstu 2 til 3 ár voru undirritaðir á þriðjudaginn var. Þeir grundvallast á samkomulagi foreldraráðs, skólastjóra og Kópavogsbæjar um aukið svigrúm foreldraráðsins.
 

Fjöldi refsilagabrota undir meðaltali - 22.11.2007

Fyrirsögn í DV sem ekki er á rökum reist. Refsilagabrot í Kópavogi eru undir meðaltali að sögn lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.Vegna rangs fréttaflutnings DV um að rannsókn sýni að það séu „flestir glæpir í Kópavoginum“ áréttar lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins að fjöldi hegningarlagabrota miðað við íbúafjölda í bæjarfélaginu sé undir meðaltali.
 

Maritafræðslan í Smáraskóla vakti lukku - 20.11.2007

Miðvikudag og fimmtudag fengu nemendur 8., 9. og 10. b í Smáraskóla fræðslu um skaðsemi og þá hættu sem fylgir vímuefnanotkun. Auk þess var foreldrafundur um kvöldið. Foreldrar mættu mjög vel og var góður rómur gerður að fundinum.
 

Námskrá fyrir elstu börnin í leikskólum Kópavogs - 19.11.2007

Afhending námskráarinnar fyrir elstu börnin á leikskólum Kópavogs í anddyri Salarins á degi íslenskrar tungu.Út er komin námskrá fyrir elstu börnin í leikskólum Kópavogs. Útgáfuhóf var haldið í anddyri Salarins í Kópavogi föstudaginn 16. nóvember síðastliðinn á degi íslenskrar tungu.
 

Lögreglan og bæjaryfirvöld á fundi - 18.11.2007

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Gylfi Sigurðsson aðalvarðstjóri. (Ljósmynd: Lögregluvefurinn)Öflugt foreldrarölt, daglegir þjófnaðir í verslanamiðstöðvum, hraðakstur og hlutfallsleg fækkun hegningarlagabrota í Kópavogi var á dagskrá á samráðsfundi lögreglunnar og bæjaryfirvalda í fyrri viku.
 

Endurnýjaðir rekstrarsamningar - 16.11.2007

Rekstrarsamningarnir undirritaðir. F.v. Birgir Bjarnason, framkvæmdastjóri HK, Sigurjón Sigurðsson, formaður HK, Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Gunnar Guðmundsson íþróttafulltrúi.Kópavogsbær og Handknattleiksfélag Kópavogs endurnýjuðu í gær rekstrarsamning sinn um Íþróttahúsið Digranes og félagssvæði HK í Fagralundi. Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri skrifaði undir samningana fyrir hönd bæjarins en Sigurjón Sigurðsson, formaður HK, fyrir hönd félagsins.
 

Samningur við KHÍ lyftistöng fyrir leikskólastarfið - 16.11.2007

Forsvarsmenn leikskólanna telja samninginn lyftistöng fyrir leikskólastarfið.Leikskólastjórar leikskólanna Arnarsmára, Efstahjalla, Fögrubrekku, Kópasteins, Marbakka og Núps hafa gert samstarfssamning við Kennaraháskóla Íslands um menntun kennara árin 2007–2010.
 

Sértækar aðgerðir í starfsmannamálum - 15.11.2007

Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, og Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri, segja framlag vegna sértækra aðgerða í starfsmannamálum nema 150 mkr.Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, kynntu í dag á blaðamannafundi einróma samþykkt bæjarráðs um sértækar aðgerðir í starfsmannamálum. Tilgangurinn er að auka stöðugleika í starfsmannahaldi, bregðast við samkeppni á vinnumarkaði og laða starfsfólk að lausum stöðum hjá bænum.
 

Úthlutun á byggingarrétti í Vatnsendahlíð - 14.11.2007

Á fundi bæjarráðs þann 12. nóvember, kl. 15:00, fór fram úthlutun á byggingarrétti í Vatnsendahlíð í Kópavogi. Tillögur bæjarráðs um úthlutun voru lagðar fyrir bæjarstjórn Kópavogs þann 13. september s.l. og voru þær samþykktar.


Meðfylgjandi er listi yfir þá aðila sem gefinn er kostur á byggingarrétti í Vatnsendahlíð í Kópavogi.

Vatnsendahlíð úthlutun
 

Að gera jafnréttisstarf sveitarfélaga sýnilegt - 12.11.2007

Lokaráðstefna Evrópuverkefnisins Jafnréttisvogin eða „Tea for two – Illustrating Equality“ fjallar um að gera jafnréttisstarf sveitarfélaganna sýnilegt og fer hún fram á ensku. Hún verður haldin föstudaginn 16. nóvember næstkomandi á Hótel Loftleiðum. Ráðstefnan er öllum opin án endurgjalds og stendur frá kl. 13 til kl. 17.
 

Jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum - 12.11.2007

Leik- og grunnskólabörn í Kópavogi taka þátt í nýju samstarfsverkefni um jafnrétti.Nýtt verkefni sem miðar að því að auka og efla jafnréttis- og kynjasjónarmið í starfi leikskóla og grunnskóla er að hefja göngu sína. Kópavogsbær er aðili að verkefninu ásamt félagsmálaráðuneytinu, Jafnréttisstofu, jafnréttisráði, Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarkaupstað og Akureyrarkaupstað.
 

Tillögu að breytingum á hafnarsvæði hafnað - 8.11.2007

Bæjarráð Kópavogsbæjar staðfesti í dag ákvörðun skipulagsnefndar frá 6. nóvember 2007 þar sem hafnað var tillögu að breyttu skipulagi á hafnarsvæðinu vestast á Kársnesi. Ákvörðunin grundvallast á innsendum athugasemdum.
 

Skemmtidagskrá til styrktar börnum - 6.11.2007

Styrktarsjóðurinn Faðmur - Heilaheill fyrir börn þeirra foreldra sem hafa fengið heilablóðfall stendur fyrir skemmtidagskrá í Salnum fimmtudagskvöldið 8. nóvember og hefst fjörið kl. 20. Sjóðnum er ætlað að standa straum af útgjöldum sem snúa að áhugamálum og námi barnanna svo sem minnst röskun verði á þeirra daglega lífi.
 

Tónleikar til styrktar fórnarlömbum Tsunami - 6.11.2007

Árlegir styrktartónleikar á vegum Vina Indlands verða haldnir í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, miðvikudagskvöldið 7. nóvember næstkomandi kl. 20. Vinir Indlands hyggjast reisa heimili fyrir börn sem misstu foreldra sína í flóðbylgjunni miklu í Suðaustur-Asíu.
 

Hjólabrettasvæði sunnan Smárans - 5.11.2007

Tillaga að hjólabrettasvæði í Kópavogi.Bæjarráð Kópavogs hefur fallist á tillögu garðyrkjustjóra bæjarins um að setja upp hjólabrettasvæði sunnan við íþróttahúsið Smárann og Fífuna, við hlið gervigrasvallar.
 

Kínverskri fornminjasýningu að ljúka - 5.11.2007

Frá kínverskri fornminjasýningu í Gerðarsafni.Í Gerðarsafni stendur yfir sýning á kínverskum fornminjum sem var opnuð þann 30. september í upphafi Kínverskrar menningarhátíðar í Kópavogi. Sýningunni lýkur innan skamms eða sunnudaginn 11. nóvember. Fer því hver að verða síðastur til þess að skoða þessa fágætu gripi.
 

Nýtt leikhús á 50 ára afmælisári LK - 3.11.2007

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Gísli Björn Heimisson, formaður LK, undirrita rekstrar- og samstarfssamninginn. Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, og Hörður Sigurðarson, varaformaður LK, vottuðu. Mynd: Kópavogspósturinn.Í dag, laugardag, var undirritaður rekstrar- og samstarfssamningur milli Kópavogsbæjar og Leikfélags Kópavogs auk þess sem leikfélagið tók formlega við nýju húsnæði undir starfsemi sína að Funalind 2 í Kópavogi. Um er að ræða fyrsta eiginlega leikhúsið í Kópavogi sem er ætlað fyrst og fremst til leiksýninga.
 

Börnin eru í Kópavogi! - 29.10.2007

Börn að leik í Kópavogi. Mynd: KrissýHvar eru börnin? spurði Morgunblaðið í fyrirsögn á dögunum og benti á að fjöldi barna í Reykjavíkurborg hefði staðið í stað í 9 ár. Morgunblaðið svaraði líka spurningunni. Börnin eru í Kópavogi! Hér hefði þeim fjölgað um næstum 30% á sama tíma.
 

Lindaskóli 10 ára - 25.10.2007

Fjölbreytt dagskrá var haldin í tilefni af 10 ára afmæli Lindaskóla. Mynd: Rúnar SigurðssonLindaskóli hélt upp á 10 ára afmæli sitt á miðvikudag með fjölbreyttri dagskrá.
 

Rekstrarafgangur 2,1 milljarður króna - 25.10.2007

Merki Kópavogs.Endurskoðuð fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2007 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar 23. október sl. Niðurstöðutölur í rekstri og fjárfestingum eru í samræmi við upphaflega fjárhagsáætlun. Gert er ráð fyrir að bæjarsjóður skili um 2,1 milljarði króna í rekstrarafgang.
 

MK hlaut viðurkenningu jafnréttisráðs 2007 - 24.10.2007

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra og Margrét Friðriksdóttir skólameistari MK við afhendingu jafnréttisviðurkenningarinnar.Margrét Friðriksdóttir, skólameistari Menntaskólans í Kópavogi, tók í dag við viðurkenningu jafnréttisráðs úr hendi Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra við athöfn á hótel Hilton Reykjavík Nordica.
 

Málþing: ?Ég þori, get og vil!? - 23.10.2007

Hulda Jakobsdóttir var bæjarstjóri Kópavogs á árabilinu 1957 til 1962.Jafnréttisnefnd Kópavogs heldur málþing um konur í sveitarstjórnum undir yfirskriftinni „ég þori, get og vil!“ fimmtudaginn 25. október kl. 17–19 á neðri hæð Gerðarsafns. Tilefnið er að hálf öld er liðin frá því að Hulda Jakobsdóttir varð bæjarstjóri í Kópavogi og þar með fyrsta konan til að gegna stöðu bæjarstjóra á Íslandi.
 

Samantekt um öryggismál í Sundlaug Kópavogs - 23.10.2007

Frá Sundlaug Kópavogs.Öryggiskerfi Sundlaugar Kópavogs hefur verið vandlega yfirfarið eftir sviplegt slys síðastliðið vor sem dró ungan pilt í skólasundi til dauða. Samantekt um öryggismálin er birt á heimasíðu bæjarfélagsins.
 

Dvöl fær forsetaheimsókn - 23.10.2007

Forseti Íslands heimsótti Dvöl, athvarf fyrir geðfatlaða í Kópavogi, í kynningarviku RKÍ.Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, heimsótti um helgina Dvöl, athvarf Kópavogsdeildar Rauða krossins fyrir geðfatlaða.

 

Örtröð við nýja leikfangaverslun - 22.10.2007

Mörg hundruð manns stóðu í biðröð fyrir utan leikfangaverslunina þegar hún var opnuð. Mynd: KrissýLögreglumenn af svæðisstöðinni í Kópavogi fóru í göngueftirlit á Smáratorgi á föstudagsmorgun, en verið var að opna leikfangaverslunina Toys "R" us. Mjög mikill mannfjöldi var utan við verslunina í langri röð sem hlykkjaðist frá versluninni inn á bílastæði við McDonalds.
 

Skuggablóm frumsýnd - ókeypis aðgangur - 22.10.2007

Óperan Skuggablóm frumsýnd í Salnum.Splunkuný íslensk ópera, Skuggablóm, verður frumsýnd í Salnum, tónlistarhúsi Kópavogs, á vegum Söngskólans í Reykjavík á miðvikudagskvöld 24. október kl. 20. Tvær sýningar eru fyrirhugaðar á óperunni og er síðari sýningin kvöldið eftir 25. október kl. 20. Lista- og menningarráð Kópavogs býður ókeypis aðgang.
 

Styrkur handa fjölbýli fyrir geðfatlaða - 20.10.2007

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Aðalsteinn Sigfússon félagsmálastjóri taka við styrknum frá Kvenfélagi Kópavogs. Mynd: Valdimar Kristófersson.Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, hefur fyrir hönd fjölbýlis geðfatlaðra í Hörðukór veitt viðtöku 200 þúsund króna peningagjöf frá Kvenfélagi Kópavogs.
 

Heitavatnsæðin opin á ný - 18.10.2007

Viðgerðarmenn Orkuveitu Reykjavíkur að störfum. Mynd: KrissýFullur þrýstingur á að vera kominn á heitavatnsrennslið í öllum hverfum Kópavogs eftir alvarlega bilun í aðalæð fyrir hádegi.
 

Alvarleg bilun í heitavatnsæð - 18.10.2007

Vegna alvarlegrar bilunar á aðalæð fyrir heitt vatn austan við Reykjanesbraut gegnt Smáralind er heitavatnslaust í vesturbæ Kópavogs og Linda- og Salahverfi. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur er vonast til að viðgerð verði lokið um þrjúleytið.
 

Afrísk sveifla og stuð í Salnum - 15.10.2007

Fult var út úr dyrum á skólatónleikum Vipepe Marimba. Mynd: Krissý.Krakkar úr 1. til 7. bekk í grunnskólum Kópavogs komu saman nokkra daga í liðinni viku á morguntónleikum í Salnum þar sem hljómsveitin Vipepe Marimba lék afríska tónlist við góðar undirtektir. Þótt nafnið gefi annað til kynna kemur hljómsveitin úr Hafralækjarskóla í Aðaldal.
 

Rúmlega 700 umsóknir - 12.10.2007

Umsóknir um úthlutun byggingarréttar í Vatnsendahlíð eru 715 samkvæmt fundargerð bæjarráðs í gær 11. október. Frestur til umsókna rann út fyrir viku.
 

Hlaupanótan í beinni ? opið hús í Salnum á fimmtudag - 9.10.2007

Næstkomandi fimmtudag, 11. október, verður tónlistarþátturinn Hlaupanótan á Rás 1 sendur út beint frá Salnum í Kópavogi. Af þessu tilefni verður opið hús fyrir áheyrendur í sal á meðan á útsendingu stendur milli kl. 16 og 17.
 

Kínverska menningarhátíðin vel heppnuð - 8.10.2007

Fjölskylduhátíðinni í Smáralind lauk með tilkomumiklum drekadansi Félags Kínverja á Íslandi. Mynd: Krissý.Kínverska menningarhátíðin í Kópavogi hlaut frábærar móttökur en formlegri dagskrá lauk í gær. Mörg þúsund manns nutu viðburðanna. Sýning á list- og fornmunum frá Kína auk vatnslitamyndasýningarinnar í Listasafni Kópavogs – Gerðarsafni standa aftur á móti til 11. nóvember.
 

Leikskólinn Fagrabrekka fær vísindastyrk - 8.10.2007

Í Fögrubrekku er starfað eftir starfsaðferð Reggio Emilia til að hvetja börnin til að nota skilningarvit sín.Vísindasjóður Félags leikskólakennara hefur veitt leikskólanum Fögrubrekku styrk vegna útlagðs kostnaðar á útgáfu þróunarverkefnisins „Uppeldisfræðilegar skráningar, hvernig læra leikskólabörn?“. Styrkurinn er samtals kr. 700.000.
 

Flestir fylgja útivistarreglum - 8.10.2007

Við eftirlit lögreglunnar á föstudagskvöldi um síðustu mánaðamót var sérstök áhersla lögð á útivistartíma barna í Kópavogi. Á fréttasíðu lögreglunnar segir að svo virðist sem flestir fylgi útvistarreglunum, þó hafi verið höfð afskipti af þremur hópum barna um kvöldið og nóttina:
 

Fjölskylduhátíð á Kínverskri menningarhátíð - 5.10.2007

Síðasta tækifærið til að sjá atriði kínverska loftfimleikaflokksins er á fjölskylduhátíðinni í Smáralind. Mynd: Krissý.Fjölskylduhátíð verður haldin í Vetrargarðinum í Smáralind laugardaginn 6. október kl. 14–16 í tilefni af Kínverskri menningarhátíð í Kópavogi. Í boði verður fjölbreytt dagskrá við hæfi allrar fjölskyldunnar.
 

Einstæður tónlistarviðburður í Salnum föstudagskvöld - 5.10.2007

Frá tónleikum kínversku tónlistarsnillinganna í Salnum. Mynd: Krissý.Seinni tónleikar Þjóðlagahljómsveitar Söngleikja- og dansstofnunar Wuhan á Kínverskri menningarhátíð verða í Salnum í kvöld, föstudag 5. október.
 

Fyrirvari áréttaður - 5.10.2007

Kópavogsbær bendir á að fréttatilkynning Skipulagsstofnunnar varðandi auglýsingu um úthlutun á byggingarrétti í Vatnsendahlíð áréttar og undirstrikar fyrirvara í auglýsingunni um að úthlutun sé háð samþykkt deiliskipulags.
 

Uppselt á sýningu loftfimleikaflokks Wuhan - 3.10.2007

Fimleikafólkið í Loftfimleikaflokki Wuhan við æfingar í Versölum. Mynd: KrissýKínverska fimleikafólkið í Loftfimleikaflokki Wuhan-borgar hefur æft af kappi fyrir sýningar sínar í íþróttamiðstöðinni Versölum á Kínversku menningarhátíðinni í Kópavogi. Uppselt er á allar sýningar, einnig aukasýninguna föstudagskvöld.
 

Heimsþekktir tónlistarmenn frá Kína í Salnum - 3.10.2007

Heimsþekktir kínverskir tónlistarmenn leika í Salnum. Mynd: KrissýÞjóðlagahljómsveit Söngleikja- og dansstofnunar Wuhan-borgar í Kína lét engan ósnortinn sem var viðstaddur hátíðartónleika hennar í Salnum á þjóðhátíðardegi Kínverja. Hinir heimskunnu tónlistarmenn koma fram á tvennum tónleikum í viðbót, miðvikudagskvöldið 3. október og föstudagskvöldið 5. október.
 

Kínversk flugdrekagerð í Safnahúsinu - 2.10.2007

Kong Lingmin kennir flugdrekasmíði á kínverska vísu. (Mynd: Krissý)Meðal fjölmargra atriða á Kínverskri menningarhátíð í Kópavogi er kennsla í flugdrekasmíði undir leiðsögn kínverska flugdrekagerðarmeistarans Kong Lingmin. Tilgangur menningarhátíðarinnar er ekki síst að ná til yngstu kynslóðarinnar.
 

Ljósmyndasýning í Vetrargarðinum - 2.10.2007

Við opnun ljómsyndasýningar frá Wuhan, Ómar Stefánsson og Lei Yunxia í miðið. (Mynd: Krissý)Ljósmyndasýning frá Wuhan í Kína var opnuð í Vetrargarðinum í Smáralind á sunnudaginn. Ljósmyndirnar, 120 að tölu, verða gefnar Kópavogsbæ að Kínverskri menningarhátíð lokinni.
 

Kínversk menningarhátíð í Kópavogi sett - 29.9.2007

Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, og frú Dorrit Moussaieff áttu athygli kínversku gestanna óskipta. Hér sjást þau á tali við kínverska vatnslitamálarann og blaðamanninn Yu Xi sem sýnir vatnslitamyndir sínar á neðri hæð Gerðarsafns. (Mynd: Krissý)Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, þakkaði Kópavogsbæ fyrir það einstæða tækifæri að fá að kynnast listum og menningu kínversku þjóðarinnar á Kínverskri menningarhátíð í bænum. Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri setti hátíðina í Listasafni Kópavogs – Gerðarsafni í dag.
 

Viljayfirlýsing um vinabæjartengsl við Wuhan - 29.9.2007

Yfirlýsing um vinabæjartengsl Kópavogs og Wuhan í Kína undirrituð í Gerðarsafni. (Mynd: Krissý)Samkomulag um vináttubæjarsamband milli Kópavogsbæjar og Wuhan-borgar í Hubei-héraði í Kína var undirritað í Gerðarsafni árdegis. Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, undirrituðu viljayfirlýsinguna fyrir hönd Kópavogs en Peng Lemin, aðalframkvæmdastjóri fastanefndar Wuhan-borgar, fyrir hönd Wuhan.
 

Kínversk menningarhátíð - 28.9.2007

Kínversk menningarhátíð í Kópavogi hefst á morgun, laugardaginn 29. september. Mikið verður um dýrðir víða um bæinn næstu níu dagana eða allt til sunnudagsins 7. október. Loftfimleikar, listmunir, þjóðlagatónlist, fornminjar, flugdrekar, bókmenntir, kvikmyndir, ljósmyndasýning, málþing og fjölskylduhátíð – sem sagt eitthvað fyrir alla. Smelltu hér til að sjá nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar.

 

Ókeypis námskeið í foreldrafærni - 27.9.2007

ÓB-ráðgjöf, sem rekur leikskólann Hvarf, býður foreldrum leikskólabarna í Kópavogi ókeypis námskeið til að draga úr spennu á heimilum.ÓB-ráðgjöf býður foreldrum barna í leikskólum Kópavogs námskeið sem ber nafnið Núll til sex ára - Uppeldi barna frá fæðingu til sex eða sjö ára aldurs. Eru þessi námskeið foreldrunum að kostnaðarlausu.
 

Napur hjóladagur - 25.9.2007

Um þrjátíu manns slökktu þorsta sinn við Gerðarsafn á hjóladaginnHjólalest í tilefni af Evrópskri samgönguviku hafði viðkomu í Kópavogi um helgina á leið úr Hafnarfirði í Reykjavík. Reiðhjólafólk úr Kópavogi slóst með í för við Gerðarsafn. Þar var þorstanum svalað áður en haldið var í Nauthólsvík í nöpru veðri til að hjóla með öðrum hjólalestum að Ráðhúsi Reykjavíkur.
 

Ruglað saman reitum - 25.9.2007

Heimsmeistaraskáksveit Salaskóla í Kópavogi fjórtán ára og yngri gerði víðreist um Namibíu í ferð sem hún fór í boði Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Sveitin sýndi listir sínar og tefldi við unga heimamenn. Sem við var að búast höfðu heimsmeistararnir nokkra yfirburði.
 

Aðgerðaáætlun leikskólanefndar - 24.9.2007

Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt aðgerðaáætlun leikskólanefndar í því skyni að auka stöðugleika í starfsmannahaldi, laða starfsfólk að leikskólum bæjarfélagsins og auka fagþekkingu í leikskólum Kópavogsbæjar.
 

Ekki er öll nótt úti enn - 20.9.2007

Lið Kópavogsbúa skipa þeir Hafsteinn Viðar Hafsteinsson, Víðir Smári Petersen og Örn Árnason.Samanlögð reynsla, þekking og hæfileikar fulltrúa Kópavogs í spurningakeppninni Útsvar í Ríkissjónvarpinu dugði ekki gegn snörpu liði Hveragerðis. Þrátt fyrir tap í fyrsta þætti spurningaleiksins á liðið enn möguleika á að komast áfram. Fjögur stigahæstu tapliðin fá annað tækifæri. Kópavogsliðið hlaut 70 stig og tapaði aðeins með 4.
 

Öflugur bakhjarl Salarins - 18.9.2007

SPK gerist aðalstyrktaraðili SalarinsSalurinn, tónlistarhús Kópavogs, fær öflugan bakhjarl í Sparisjóði Kópavogs næstu tvö árin. Efling menningarmála hefur verið eitt af helstu markmiðum Sparisjóðsins í fjölda ára. Carl H. Erlingsson sparisjóðsstjóri, Unnur Guðríður Indriðadóttir markaðsfulltrúi, Vigdís Esradóttir, forstöðumaður Salarins, og Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri undirrituðu styrktarsamninginn.
 

Framtíðarheimilið í Vatnsendahlíð - 17.9.2007

Kópavogsbær auglýsir til úthlutunar byggingarrétt fyrir íbúðarhús í Vatnsendahlíð í Kópavogi. Þar er mikið og fagurt útsýni. Þaðan sér yfir Elliðavatn og Heiðmörk og allt að Hengilssvæðinu, Vífilsfelli og Bláfjöllum til austurs og hluta af Kópavogi og Reykjavík til norðurs og vesturs með útsýni yfir Esjuna, Akrafjall og til sjávar.
 

Efnilegur tenórsöngvari fær styrk - 16.9.2007

Gissur Páll Gissurarson tenórsöngvari hlaut 500 þúsund króna styrk úr Styrktarsjóði Önnu Karólínu Nordal. Þetta er í sjötta sinn sem úthlutað er úr styrktarsjóðnum í Salnum í Tónlistarhúsi Kópavogs.

 

Skólastjóraskipti - 14.9.2007

Unnur Stefánsdóttir leikskólastjóri Heilsuleikskólans Urðarhóls og frumkvöðull heilsustefnunnar hefur hætt störfum. Unnur hefur störf hjá RV-ráðgjöf sem framkvæmdastjóri Heilsustefnunnar. Sigrún Hulda Jónsdóttir tekur við starfi leikskólastjóra en hún er einn af stofnendum stefnunnar.

Myndin er tekin við skólastjóraskiptin.
 

Læknar á Læknavaktinni skoða 67 þúsund sjúklinga á ári - 13.9.2007

LæknavaktinGunnar I. Birgisson bæjarstjóri heimsótti Læknavaktina, Smáratorgi 1, þar sem fimm sérfræðingar í heimilislækningum taka á móti sjúklingum sem þurfa umönnun utan dagvinnutíma. Um 60 þúsund manns leita árlega á Læknavaktina auk þess sem læknar hennar fara í 7 þúsund vitjanir og veita símaráðgjöf.
 

Heildarfjöldi athugasemda við skipulag á Kársnesi - 12.9.2007

Athugasemdir við hugmyndir að skipulagi á hafnarsvæði á Kársnesi bárust frá alls 1674 einstaklingum og samtökum, þar af 1117 af Kársnesinu sjálfu. Langflestar athugasemdir bárust eftir að bæjarráð Kópavogs ákvað að framlengja athugasemdafrestinn til 3. september.
 

Heimsmeistarar í skólaskák til Namibíu - 10.9.2007

Heimsmeistarar SalaskólaÞróunarsamvinnustofnun Íslands og Kópavogsbær bjóða heimsmeistaraliði Salaskóla í skólaskák ásamt tveimur fararstjórum til Namibíu í því skyni að vekja athygli á íþróttinni. Flogið verður til Windhoek, höfuðborgar Namibíu, með viðkomu í London miðvikudag 12. september.
 

Gengið um Kársnes á umhverfisdegi - 5.9.2007

Umhverfisráð Kópavogs stendur fyrir stuttri göngu um Kársnes á árlegum umhverfisdegi bæjarins fimmtudaginn 6. september næstkomandi.
 

Nýr leikskólastjóri - 3.9.2007

Nýlega var Margrét Magnúsdóttir ráðin leikskólastjóri í leikskólann Baug við Baugakór. Baugur er nýr leikskóli sem áformað er að taki til starfa í september.
Margrét var áður aðstoðarskólastjóri í Fífusölum.
 

OPIÐ HÚS Í SALNUM Á LAUGARDAGINN - 31.8.2007

Núna um helgina, laugardaginn 1. september kl. 13.30, er opið hús í Salnum í Tónlistarhúsi Kópavogs, þar sem nýtt tónleikaár verður kynnt, ný tónleikaskrá afhent, flutt lifandi tónlist og boðið uppá léttar veitingar.
 

Íþróttahöllin Kórinn við Vallakór formlega opnuð - 30.8.2007

Kórinn, nýja íþrótta- og tónleikahöllin við Vallakór í Vatnsendahverfi, var tekin í notkun við hátíðlega athöfn í dag. Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, klipptu á borðann ásamt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra.
 

Ársskýrsla Kópavogsbæjar á mynddiski - 28.8.2007

Með ársskýrslu Kópavogsbæjar, sem dreift er í hús í Kópavogi um þessar mundir, fylgir tölvudiskur þar sem farið er yfir lykiltölur úr rekstri bæjarins á árinu 2006 í töluðu máli og lifandi myndum. Myndina má einnig skoða hér á heimasíðunni.

 

Umhverfisviðurkenningar Kópavogsbæjar - 24.8.2007

Bæjarstjórn Kópavogs og umhverfisráð bæjarins afhentu umhverfisviðurkenningar í gær og veittu móttöku fróðleiksskiltum frá klúbbum bæjarins. Með viðurkenningunum vilja bæjaryfirvöld auðsýna þeim þakklæti sem skara fram úr í umhverfismálum og jafnframt hvetja til góðrar umgengni og frágangs á lóðum.
 

Grunnskólar Kópavogs settir - 23.8.2007

Enn eitt skólaár er hafið. Bærinn vex sem aldrei fyrr og nemendafjöldi grunnskólanna er að ná 4000 nemenda markinu. Nú er nýlokið við sjöunda grunnskólann og tveir nýir grunnskólar eru í byggingu. Þótt þeir séu mislangt komnir er byrjað að kenna í þeim báðum. Þessir skólar eru Vatnsendaskóli og Hörðuvallaskóli.
 

Nýbýlavegi lokað - 22.8.2007

Forðumst öngþveiti – veljum aðra leið

Smelltu hér til að sjá stærri myndNýbýlavegi í Kópavogi verður lokað frá Birkigrund vestur að Sæbólsbraut frá og með fimmtudeginum 23. ágúst nk. á meðan 132 kV háspennustrengur verður færður.
 

Skipulagstillögu á Nónhæð hafnað - 21.8.2007

Skipulagsnefnd Kópavogsbæjar hafnaði á fundi sínum síðdegis í dag skipulagstillögum á Nónhæð og Arnarsmára 32. Ákvörðunin tekur til allra þriggja skipulagsstiga.

Nefndin samþykkti að fela bæjarskipulagi að yfirfara athugasemdir sem borist hafa vegna tillagnanna.
 

Yfirlýsing vegna frétta útvarps - 21.8.2007

Kópavogsbær sér sig tilknúinn að leiðrétta rangfærslur í fréttum útvarpsins í gær og í dag um framkvæmdir við vatnslögn frá Vatnsendakrikum um Heiðmörk að Vatnsenda í Kópavogi.
 

Frestur til athugasemda vegna hafnarsvæðis framlengdur - 17.8.2007

Bæjarráð Kópavogs ákvað í gær að tillögu Gunnars I. Birgissonar bæjarstjóra að framlengja frest til að gera athugasemdir eða koma með ábendingar varðandi skipulag á hafnarsvæði á Kársnesi til mánudagsins 3. september næstkomandi.
 

Heimsókn sendiherra Kína - 16.8.2007

Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, tók í morgun á móti Zhang Keyuan, sendiherra Kína á Íslandi, í tilefni af fyrirhugaðri kínverskri menningarhátíð í bænum og áformum um að Kópavogur og Wuhan í Hubei-héraði verði vinabæir.
 

HAFDÍS HULD Í SALNUM - 8.8.2007

Fimmtudagskvöldið 9. ágúst heldur Hafdís Huld ásamt hljómsveit sinni tónleika í Salnum í Kópavogi og eru þetta fyrstu sólótónleikar Hafdísar á Íslandi. Á efnisskrá tónleikanna eru lög af hljómplötu Hafdísar Huldar DIRTY PAPER CUP sem er hennar fyrsta sólóplata.
 

Nýr skólastjóri Smáraskóla - 8.8.2007

Á fundi sínum 13. júlí sl ákvað bæjarráð að ráða Sigurlínu Sveinbjarnardóttur sem skólastjóra Smáraskóla en skólanefnd hafði mælt með ráðningu hennar við bæjarráð.
 

Tímamótasamþykktir bæjarráðs vegna leikskóla. - 4.8.2007

Í kjarasamningi Félags leikskólakennara og Launanefndar sveitarfélaga eru bókanir sem heimila sveitarfélögum að koma fram með sérstakar fjárveitingar vegna manneklu og annarra sérstakra aðstæðna sem upp kunna að koma í rekstri og faglegu starfi leikskólanna.

 

Forstöðumaður almannatengsla hjá Kópavogsbæ - 27.7.2007

Þór Jónsson hefur verið ráðinn í nýtt starf forstöðumanns almannatengsla hjá Kópavogsbæ.
 

Heimsmeisturum fagnað - 20.7.2007

Skáksveit Salaskóla í Kópavoggi sem varð heimsmeistarar í sveitaskák í Tékklandi í vikunni, kom heim til Íslands í gærkvöldi. Þetta er í fyrsta skipti sem Íslendingar verða heimsmeistarar í sveitaskák
 

Rokkhátíð VSK - 19.7.2007

Rokkhátíð Vinnuskóla Kópavogs verður haldin í dag fimmtudag á Hálsatorgi (við Hamraborg). Hátíðin hefst klukkan 18:30 og stendur til klukkan 22:30. Fjöldi tónlistarmanna taka lagið og haldin verður jójókeppni þar sem glæsilegir vinningar eru í boði fyrir efstu þrjú sætin.
 

Kveðja frá Sænsku NÖRDUNUM - 17.7.2007

Sænsku nördarnir skila kæru þakklæti til forráðamanna Landmótsins, þeim fannst móttökur og öll samskipti mjög góð auk þess að þeir höfðu aldrei séð annað eins mót.
 

Soðnir álar í Fossvogslæk! - 11.7.2007

Mánudag 9. júlí varð óhapp í heitavatnskerfi Orkuveitu Reykjavíkur í Fossvogi, en þá gaf sig vatnslögn og um tíma streymdi 90 ºC heitt vatn niður Eyrarland og út í Fossvogslæk. Ekki liggur fyrir hve mikið af heitu vatni rann í lækinn, en miðað við umfang fiskdauðans lítur út fyrir að það hafi verið umtalsvert magn.
 

UMFÍ, hefur sæmt Gunnar Birgisson, bæjarstjóra í Kópavogi, gullmerki félagsins - 6.7.2007

Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ, hefur sæmt Gunnar Birgisson, bæjarstjóra í Kópavogi, gullmerki félagsins.

Gunnar er formaður landsmótsnefndar og hefur stýrt undirbúningi 25. Landsmóts UMFÍ, sem að þessu sinni er haldið í Kópavogi á 100 ára afmæli UMFÍ

 

Stórtónleikar í Smáranum - Laugardaginn 7. júlí kl. 20:30-23:00 - 6.7.2007

Stærstu útitónleika sumarsins sem verða haldnir í Smáranum laguardaginn 7. júlí. Tónleikarnir eru hluti af menningardagskrá Kópavogsbæjar á Landsmóti UMFÍ.
 

Menningarhátið Kópavogs - föstudaginn 6. júlí kl. 17-19 - 5.7.2007

Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá við Menningartorfuna á Hálsatorgi í Kópavogi. Menningarhátíðin er hluti af menningardagskrá Kópavogbæjar á Landsmóti UMFÍ sem stendur nú yfir.

 

Jafnréttisviðurkenning Kópavogs 2007 - 5.7.2007

Landsbanki Íslands, Smáralind, hlaut viðurkenningu jafnréttisnefndar Kópavogsbæjar í ár. Afhendingin fór fram í Bóksafni Kópavogs 4. júlí. Við sama tækifæri var opnuð örsýning um líf og störf Huldu Jakobsdóttur, fyrstu konu í embætti bæjarstjóra á Íslandi, en hún var bæjarstjóri í Kópavogi 1957-1962.
 

Setningarathöfn Landsmóts UMFÍ - fimmtudaginn 5. júlí kl. 20:00 - 4.7.2007

Risalandsmót UMFÍ verður haldið í Kópavogi dagana 5. – 8. júlí.
Ungmennafélag Íslands fagnar 100 ára afmæli sínu og af því tilefni er efnt til stærsta landsmóts sem haldið hefur verið hér á landi.

 

Fyrsti kvenbæjarstjórinn í Kópavogi - 4.7.2007

50 ár liðin frá því að Hulda Jakobsdóttir varð bæjarstjóri Kópavogs fyrst kvenna á Íslandi. Þessara tímamóta verður minnst með opnun örsýningar í Bókasafni Kópavogs miðvikudaginn 4. júlí kl. 17. Jafnréttisviðurkenning Kópavogs verður af þessu tilefni afhent í Kórnum í Bókasafni Kópavogs.

 

Leikskólastjórar í kynnisferð - 22.6.2007

Leikskólastjórar í leikskólum Kópavogs ásamt starfsmönnum á leikskólaskrifstofu, fóru s.l. þriðjudag í kynnis- og menningarferð til Seltjarnarnes.
 

19. júní íslenskur kvenréttindadagur - 19.6.2007

kvennréttindadagur19. júní er íslenskur kvenréttindadagur en þann dag árið 1915 fengu íslenskar konur kosningarétt. Kvennasamtök hvetja fólk að klæðast bleiku eða bera eitthvað bleikt þann dag til að sýna stuðning sinn í verki við jafnrétti kynja.
 

Bætum framkvæmd kosninga - 18.6.2007

KosningarÍ kjölfar Alþingiskosninganna 12. maí sl. hafa sprottið nokkrar umræður um framkvæmd kosninga. Sem formaður og ritari kjörstjórnar Kópavogs viljum við taka þátt í þeirri umræðu og benda á hvað betur má fara.

 

Kópavogur 17. júní 2007 - 15.6.2007

17. júníDagskrá þjóðhátíðardagsins í Kópavogi hefst á tónum brassbanda frá Skólahljómsveit Kópavogs. Böndin aka um bæinn og óska Kópavogsbúum gleðilegrar hátíðar.

 

Niðurgreiðslur vegna daggæslu barna - 12.6.2007

Félagsþjónusta Kópavogs hefur ákveðið að frá og með 1. ágúst 2007 verða niðurgreiðslur vegna daggæslu barna í heimahúsum greiddar beint til foreldra í formi heimagreiðslna og frá þeim tíma verða foreldrar að annast sjálfir allar greiðslur til dagforeldra fyrir daggæslu barna sinna.

 

Fjölskyldan saman með börnin í fókus - 6.6.2007

SamanhópurinnSumarverkefni SAMAN-hópsins 2007 var kynnt í Kársnesskóla í gær undir yfirskriftinni: Fjölskyldan saman með börnin í fókus, sýnum umhyggju í verki.
 

Mikil ánægja foreldra leikskólabarna með starf leikskóla Kópavogs - 29.5.2007

Nýlega var gerð könnun á viðhorfum foreldra til leikskóla Kópavogs. Tæplega 60% foreldra svöruðu könnuninni. Um 90% voru mjög ánægð eða ánægð með þá þætti sem spurt var um.
 

Fjórar Vorsýningar hjá Gerplu - 22.5.2007

Íþróttafélagið Gerpla hélt fjórar glæsilegar Vorsýningar dagana 18. og 19. maí fyrir troðfullu húsi á hverri sýningu.  Er þetta í fyrsta skiptið sem skipta þurfti Vorsýningu félagsins upp í fjóra hluta til þess að allir iðkendur félagsins gætu komið fram en þeir eru nú orðnir 1.375 í reglubundnum æfingum undir lok vetrarstarfsins. 

 

Engir unglingatónleikar í Smáranum!!! - 21.5.2007

Að gefnu tilefni vill Kópavogsbær koma því á framfæri að auglýstir tónleikar útvarpstöðvarinnar Flass fyrir börn og unglinga þann 19. maí verða ekkí í íþróttahúsinu í Smáranum í Kópavogi.

 

Guðlaug Snorradóttir, sérkennari í Hjallaskóla, hlaut hvatningarverðlaun Heimilis og skóla árið 2007 - 18.5.2007

Guðlaug Snorradóttir, deildarstjóri nýbúadeildar Hjallaskóla, ásamt starfsfólki deildarinnar hlaut hvatningarverðlaun Heimilis og skóla fyrir óeigingjarnt starf í þágu nýbúa. Í lýsingu Heimilis og skóla segir eftirfarandi: “Þrátt fyrir erfiðar aðstæður, sökum mismunandi tungumála, hefur Guðlaug og hennar fólk lagt metnað sinn í að efla tengsl foreldra við deildina og skólann.

 

Frábært forvarnastarf í Kópavogi - 18.5.2007

Menningarnótt félagsmiðstöðvaÍ síðustu viku lauk samræmdum prófum í grunnskólum Kópavogs. Slík tímamót gefa tilefni til að fagna á heilbrigðan og jákvæðan hátt. Fyrir nokkrum árum var neikvæð hópamyndum og unglingadrykkja fylgifiskur við lok prófa. Með einstöku samstarfi ÍTK, grunnskóla, lögreglu og Samkóp (samtök foreldrafélaga), hefur tekist að snúa við blaðinu og lokum samræmdra prófa er nú fagnað á mun gleðilegri hátt.

 

Heiðurslistamaður Kópavogs - 11. maí 2007 - 11.5.2007

Á afmæli Kópavogsbæjar, var Baltasar Samper myndlistarmaður útnefndur heiðurslistamaður Kópavogs fyrir árið 2007. Hann fæddist 9. janúar árið 1938 í Barcelóna. Baltasar hefur verið búsettur frá 1963 á Íslandi og þar af síðustu fjörtíu tvö árin í Kópavogi. Hann er giftur Kristjönu Samper listakonu.
 

TÍBRÁ: HÉR Á ÉG HEIM - EMILIANA TORRINI & SKÓLAKÓR KÁRSNESS - 3.5.2007

Næstkomandi laugardag 5. maí heldur Skólakór Kársness tónleika í TÍBRÁ, tónleikaröð Kópavogs í Salnum. Á efnisskránni, sem er bæði fjölbreytt og krefjandi, má heyra mörg af uppáhaldslögum kórfélaga um árabil, jafnt ljúfa vorsöngva sem seiðmagnaðar galdraþulur.
 

Skólagarðar Kópavogs eru starfræktir á eftirtöldum stöðum: - 2.5.2007

SkólagarðarÁ Kópavogstúni neðan Sunnuhlíðar, í Fossvogsdal við Víðigrund, í Kópavogsdal hjá endurvinnslustöð Sorpu, austan við leikskólann Núp við Núpalind og í Kórum, sunnan Hörðuvallaskóla.
 

Digranesskóli sigrar stærðfræðikeppni - 30.4.2007

Nemendur 9. bekkja Digranesskóla fóru með sigur af hólmi í undanúrslitum norrænnar keppni í stærðfræði.
 

Sumarnámskeið á vegum ÍTK - 30.4.2007

sumar 2007Í sumar býður ÍTK upp á fjögur námskeið fyrir börn á aldrinum 6-15 ára, fædd á árunum 1991–2000. Leikja- og reiðnámskeið fyrir 6-9 ára, sköpunarnámskeiðfyrir 10-12 ára, smíðanámskeið fyrir 10-12 ára og tómstundanámskeið fyrir börn með sérþarfir 10-15 ára.
 

Lokaskýrsla um þróunarverkefni - 26.4.2007

Út er komin lokaskýrsla um þróunarverkefni sem unnið var í samstarfi Fræðsluskrifstofu Kópavogs og Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins. Verkefnið lýtur að þróun líkans eða umgjarðar um vinnubrögð sem hafa má að leiðarljósi í þjónustu við leikskólanemendur sem greinst hafa með einhverfu og fjölskyldur þeirra.

 

Foreldrar eru mjög ánægðir með daggæslu barna í Kópavogi - 26.4.2007

daggæslukönnunÍ reglum Kópavogs um daggæslu í heimahúsum er kveðið á um að einu sinni á ári skuli leita eftir viðhorfum foreldra til eigin dagforeldris og hefur það verið gert frá árinu 2003.
 

Stórsýningin 3 undir sama þaki - 26.4.2007

Ferðasýningin 2007, Golf 2007 og Sumar 2007 Fífan, Kópavogi. 20. – 22. apríl 2007
 

Norðurturninn við Smáralind - 26.4.2007

norðurturn smáralindarGunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi tekur fyrstu skóflustunguna að svokölluðum Norðurturni við Smáralind þriðjudaginn 17. apríl 2007, kl. 16:00.
 

Sumardagurinn fyrsti, 19. apríl 2007 - 26.4.2007

Sumardagurinn fyrstiSkátafélagið Kópar sér um hátíðardagsskrá Sumardagsins fyrsta í Kópavogi
 

Samræmd könnunarpróf í grunnskólum haustið 2006 - 26.4.2007

fræðsluskrifstofaLogoNiðurstöður hinna árlegu könnunarprófa í 4. og 7. bekk eru komin á vefinn námsmat.is. Enn á ný sýna þessi próf að kennsla í grunnskólum Kópavogs er öflug og við getum verið ánægð með þann árangur sem er að nást í skólunum. Eins og endranær var prófað í kjarnafögunum íslensku og stærðfræði á báðum aldursstigum.
 

Samningur um Matur 2008 undirritaður - 26.4.2007

matur2008Á dögunum var undirritaður samningur milli Kópavogsbæjar og fyrirtækisins Íslandsmót ehf. um að Íslandsmót ehf. annist framkvæmd sýningarinnar Matur 2008 sem áformað er að halda í snemma næsta ár í Fífunni í Kópavogi.
 

Starfsdagur dagforeldra í Kópavogi - 26.3.2007

Starfsdagur var haldinn fyrir dagforeldra í fimmta sinn föstudaginn 16. mars, en samkvæmt reglum um daggæslu í Kópavogi er haldinn skipulagður starfsdagur einu sinni á ári og þá í samstarfi við Samtök dagmæðra.
 

Málþing Föstudaginn 30. mars - 23.3.2007

Vötn og vatnasvið á höfuðborgarsvæðinu – ástand og horfur
 

Kópavogsbær auglýsir byggingarétt til úthlutunar - 23.3.2007

Vatnsendahvarf – Atvinnuhúsnæði.
Úthlutun á byggingarétti.
 

Sumarstörf 2007 - 23.3.2007

Byrjað er að taka við umsóknum um sumarstörf hjá Kópavogsbæ hér á heimasíðunni. Þar er um að ræða störf fyrir þá sem fæddir eru 1990 og fyrr. Störfin eru í áhaldahúsi (bæjarvinnu), við vinnuskóla, skólagarða, íþróttavelli, leikjanámskeið, götuleikhús og gæsluvelli. Eingöngu er hægt að sækja um störfin rafrænt með því að smella hér. Opnað verður fyrir umsóknir 14 – 16 ára unglinga (fædd 1991 – 1993) í Vinnuskóla Kópavogs þann 19. apríl, nánar auglýst síðar.
 

Árshátíð í Fífunni 17. mars sl. - 21.3.2007

Starfsmenn Kópavogsbæjar komu saman í Fífunni laugardaginn 17. mars sl. og héldu árshátíð. Hafði knattspyrnuhöllinni verið breytt í stórglæsilegan veislusal og þangað mættu 1600 spariklæddir starfsmenn ásamt mökum.
 

Lækkun á matarverði - 20.3.2007

kopLogoÍ kjölfar lækkunar virðisaukaskatts á matvælum, sem tók gildi þann 1. mars, samþykkti bæjarráð Kópavogs á fundi sínum, 15. mars, að lækka verð á mat í leik- og grunnskólum Kópavogsbæjar. Mötuneytisgjald í leik- og grunskólum bæjarins hefur haldist óbreytt í um tvö ár í flestum skólum, en bæjarráð samþykkti að lækka einingaverð á matarskömmtum í skólunum um 6% frá og með 1. mars.
 

Um 15.000 heimsóttu Tækni og vit 2007 - 20.3.2007

Mikill áhugi er meðal Íslendinga á því sem er að gerast í tækni- og þekkingariðnaði því um 15.000 manns heimsóttu stórsýninguna Tækni og vit 2007 sem haldin var í Fífunni í Kópavogi 8.-11. mars. Þar kynntu yfir 100 sýnendur vörur sínar og þjónustu fyrir fagaðilum og almenningi.
 

Jafnréttismál í Menntaskólanum í Kópavogi - 20.3.2007

Dagana 12. – 15. mars verður boðið upp á áhugaverða dagskrá um jafnréttismál í Menntaskólanum í Kópavogi.
 

Kópavogsbær tekur einarða afstöðu gegn heimilisofbeldi - 20.3.2007

Á næstu dögum fá öll heimili í Kópavogi send póstkort með yfirskriftinni “Það byrjar oft með öskri en má aldrei enda í þögn” en á bakhliðinni má finna upplýsingar um hvert er hægt að leita hjálpar.
 

Stórsýningin Tækni og vit 2007 - 20.3.2007

Stórsýningin Tækni og vit 2007 verður opnuð formlega nú síðdegis í Fífunni í Kópavogi. Þetta er fagsýning tækni- og þekkingariðnaðarins og verður hún stærsti viðburður sem haldinn hefur verið á Íslandi á þessu sviði.
 

Öryggisheimsóknir til eldri borgara í Kópavogi - 5.3.2007

OryggisheimsóknirSlysavarnafélagið Landsbjörg og Kópavogsbær hafa gert með sér samstarfssamning um öryggisheimsóknir til eldri borgara í Kópavogsbæ.
 

Kynning á rannsóknarniðurstöðum um hagi og líðan grunnskólabarna á unglingastigi - 5.3.2007

Hagir og líðanUndanfarin ár hefur Rannsókn og Greining tekið saman skýrslur fyrir Kópavog sem innihalda niðurstöður úr rannsóknunum Ungt fólk.
 

Ráðstefna um verndun náttúrufars Skerjafjarðar - 5.3.2007

Ráðstefna SkerjafRáðstefna verður haldin um verndun náttúrufars Skerjafjarðar föstudaginn 2. mars klukkan 13-17 í Íþróttamiðstöð Álftaness. Ráðstefnan er öllum opin.

 

Kynningarátak um söfnun ónýtra rafhlaðna - 26.2.2007

Skil á rafhlöðumÚrvinnslusjóður hrindir í dag af stað kynningarátaki vegna söfnunar á ónýtum rafhlöðum til úrvinnslu. Markmið átaksins er að fá fleiri til að safna og skila notuðum rafhlöðum, auka vitund almennings um mikilvægi þess að rafhlöðum sé skilað og vekja athygli á að einfalt sé að losna við þær. Þátttakendur í kynningarátakinu ásamt Úrvinnslusjóði eru Olís, Efnamóttakan, Gámaþjónustan og Hringrás.
 

Snælandsskóli nær ótrúlegum árangri í nær öllum prófgreinum samræmdra prófa 10. bekkjar 2006 - 26.2.2007

Hljómsveit að spilaNiðurstöður samræmdra prófa 10. bekkjar sl. vor eru nú komnar á vefsíður namsmat.is. Við athugun á niðurstöðum prófanna kemur í ljós að grunnskólarnir í Kópavogi eru allir að skila góðum árangri og í mörgum greinum að raða sér í toppsæti á landsvísu.

 

Þróun kostnaðarliða á fræðslusviði - 26.2.2007

Fræðsluskrifstofa hefur safnað saman lykiltölum kostnaðarliða yfir nokkurra ára tímabil og sett upp í súlurit. Allar tölur eru miðaðar við árslokaverðlag 2006.
 

Kynning á Risalandsmóti - 26.2.2007

Risalandsmot 2007Kynningarfundur á 25. Landsmóti Ungmennafélags Íslands í Kópavogi fór fram í Smáranum 6. febrúar og er talið að hátt í 100 manns hafi sótt fundinn. Í lok fundarins undirrituðu helstu styrktaraðilar mótsins undir samning þar að lútandi en fyrirtækin eru Sparisjóður Kópavogs, Toyota, Rúmfatalagerinn, Bónus, Norvik og Vífilfell. Stuðningur umræddra fyrirtækja er ómetanlegur og rausnarlegur og léttir á öllum undirbúningi fyrir Landsmótið.

 

Þemavika 2007 í félagsmiðstöðvum ÍTK - 26.2.2007

OfbeldiÞemavika 2007 byrjaði í félagsmiðstöðvum ÍTK mánudaginn 5. febrúar og stendur hún til föstudagsins 9. febrúar. Að þessu sinni verður þemað “Ofbeldi” og verður dagskráin mjög fjölbreytt. Munu félagsmiðstöðvarnar beina sjónum sínum að hinum ýmsu afbrigðum ofbeldis og vera með fyrirlestra og heimsóknir tengt efninu. Félagsmiðstöðvar ÍTK eru 9 samtals eða ein í hverjum grunnskóla bæjarins.
 

Skólahljómsveit Kópavogs 40 ára gömul - 26.2.2007

Skolahljomsveit KopavogsÞann 22. febrúar næstkomandi verður hin síunga og fjöruga Skólahljómsveit Kópavogs 40 ára gömul. Af því tilefni er heilmargt í bígerð hjá okkur og hér að neðan er upptalning á því helsta:
 

20 ára starfsafmæli hjá Félagsþjónustunni - 26.2.2007

Emilia FeloÞeim tímamótum var fagnað hjá Félagsþjónustinni að 1. febrúar s.l. voru 20 ár síðan Emilía Júlíusdóttir yfirmaður daggæsludeildar hóf þar störf.
 

Kópavogsbær innleiðir Outcome vefkannanakerfi - 26.2.2007

outcomeFyrir skömmu var undirritaður samningur Kópavogsbæjar við Outcome hugbúnað ehf. sem hefur þróað og markaðssett Outcome vefkannanakerfi.
 

Viðurkenning fyrir gott aðgengi - 26.2.2007

Ferlinefnd Kópavogs hefur veitt í þriðja sinn viðurkenningu fyrir gott aðgengi í tilefni af Alþjóðadegi fatlaðra. Í fyrra hlaut fyrsti áfangi Vatnsendaskóla viðurkenningu ferlinefndar. Ástæðan fyrir því var sú að þar var ráðist í sértækar ráðstafanir til þess að mæta þörfum eins nemanda. Í ár bárust nokkrar ábendingar. Það var samdóma álit Ferlinefndar að að viðurkenningu fyrir gott aðgengi að þessu sinni fengi Smáralind.
 

Grunnatriði eldvarna á sjö erlendum tungumálum - 26.2.2007

EldvarnarmyndSlökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur gefið út bæklinga þar sem fjallað er um grunnatriði eldvarna á sjö tungumálum, auk íslensku. Efnið er ætlað innflytjendum og útlendingum sem starfa hér á landi um lengri og skemmri tíma. Bæklingarnir eru tveir og í þeim er fjallað um grundvallaratriði á borð við reykskynjara, flótta úr brennandi íbúð og slökkvitæki. Þá er fjallað um neyðarnúmerið, 112, og Hjálparsíma Rauða krossins en bæklingarnir eru gefnir út í samvinnu við 112 og Rauða kross Íslands.
 

Ljóðstafur Jóns úr Vör - 26.2.2007

Ljóðstafur Jóns úr Vör eru árleg ljóðlistarverðlaun sem veitt eru að lokinni samkeppni þar sem öllum er frjálst að senda inn frumsamin ljóð á íslensku, sem ekki hafa birst opinberlega áður. Öll eru merkt dulnefni og engin leið fyrir dómnefnd að komast að nafni höfundar fyrr en að vali loknu. Hér takast því á reyndari skáld og nýrri í jöfnum leik. Að þessu sinni voru innsend ljóð um 350 og eftir gaumgæfilegan lestur þeirra komst dómnefnd að þeirri niður stöðu að verðugur handhafi ljóðstafs Jóns úr Vör árið 2007 væri Guðrún Hannesdóttir fyrir ljóðið “Offors”.
 

Söngkeppni félagsmiðstöðva ÍTK - 26.2.2007

songFelagsmidstÁ miðvikudagskvöldið var haldin söngkeppni félagsmiðstöðva ÍTK í Salnum. Allar níu félagsmiðstöðva áttu fulltrúa á keppninni.
 

Menningarhátíð elstu barna barna í leikskólum Kópavogs - 26.2.2007

Elstu börnin í leikskólum Kópavogs komu saman í Salnum þann 16. janúar.
Þar var flutt tónverkið Sigling með Guðna Fransson í fararbroddi.
Þetta er orðin árviss viðburður að elstu börnin hverju sinni fái að koma á tónleika eða uppákomu í Salnum.
 

FLAUTUTÓNLEIKAR Í TÍBRÁ - 26.2.2007

FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 19.JANÚAR 2007 KL. 20

STEFÁN HÖSKULDSSON FLAUTULEIKARI OG ELIZAVETA KOPELMANN PÍANÓLEIKARI

 

Slysatrygging barna og unglinga í íþrótta- og tómstundastarfi - 26.2.2007

Kópavogsbær og Vátryggingafélag Íslands, VÍS gerður á liðnu ári með sér tímamótasamning sem felur í sér að VÍS slysatryggir sjálfkrafa öll börn undir 18 ára aldri sem stunda íþróttir eða aðra skipulagða félagsstarfsemi í Kópavogi.
 

Jólatré fjarlægð - 26.2.2007

Frá 8. janúar og fram í miðjan mánuðinn mun Áhaldahús Kópavogsbæjar hreinsa upp jólatré bæjarbúa. Íbúar eru beðnir að setja jólatré á áberandi stað við lóðarmörk og ganga þannig frá þeim að sem minnstar líkur séu á að þau fjúki eða valdi skemmdum.
Kveðja,
Áhaldahús
 

Þrettándagleði HK - 26.2.2007

HKÁ laugardaginn 6.janúar nk. verður hin árlega þrettándagleði HK í Fagralundi.

Dagskráin hefst kl. 17.00. boðið verður upp á andlitsmálun, farin verður blysför, Skólahljómsveit Kópavogs leikur skemmtileg lög ásamt óvæntum uppákomum, hátíðinni líkur með glæsilegri flugeldasýningu HK."
 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica