des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb.
Úrvinnslusjóður hrindir í dag af stað kynningarátaki vegna söfnunar á ónýtum rafhlöðum til úrvinnslu. Markmið átaksins er að fá fleiri til að safna og skila notuðum rafhlöðum, auka vitund almennings um mikilvægi þess að rafhlöðum sé skilað og vekja athygli á að einfalt sé að losna við þær. Þátttakendur í kynningarátakinu ásamt Úrvinnslusjóði eru Olís, Efnamóttakan, Gámaþjónustan og Hringrás.
Fræðsluskrifstofa hefur safnað saman lykiltölum kostnaðarliða yfir nokkurra ára tímabil og sett upp í súlurit. Allar tölur eru miðaðar við árslokaverðlag 2006.
Kynningarfundur á 25. Landsmóti Ungmennafélags Íslands í Kópavogi fór fram í Smáranum 6. febrúar og er talið að hátt í 100 manns hafi sótt fundinn. Í lok fundarins undirrituðu helstu styrktaraðilar mótsins undir samning þar að lútandi en fyrirtækin eru Sparisjóður Kópavogs, Toyota, Rúmfatalagerinn, Bónus, Norvik og Vífilfell. Stuðningur umræddra fyrirtækja er ómetanlegur og rausnarlegur og léttir á öllum undirbúningi fyrir Landsmótið.
Þemavika 2007 byrjaði í félagsmiðstöðvum ÍTK mánudaginn 5. febrúar og stendur hún til föstudagsins 9. febrúar. Að þessu sinni verður þemað “Ofbeldi” og verður dagskráin mjög fjölbreytt. Munu félagsmiðstöðvarnar beina sjónum sínum að hinum ýmsu afbrigðum ofbeldis og vera með fyrirlestra og heimsóknir tengt efninu. Félagsmiðstöðvar ÍTK eru 9 samtals eða ein í hverjum grunnskóla bæjarins.
Ferlinefnd Kópavogs hefur veitt í þriðja sinn viðurkenningu fyrir gott aðgengi í tilefni af Alþjóðadegi fatlaðra. Í fyrra hlaut fyrsti áfangi Vatnsendaskóla viðurkenningu ferlinefndar. Ástæðan fyrir því var sú að þar var ráðist í sértækar ráðstafanir til þess að mæta þörfum eins nemanda. Í ár bárust nokkrar ábendingar. Það var samdóma álit Ferlinefndar að að viðurkenningu fyrir gott aðgengi að þessu sinni fengi Smáralind.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur gefið út bæklinga þar sem fjallað er um grunnatriði eldvarna á sjö tungumálum, auk íslensku. Efnið er ætlað innflytjendum og útlendingum sem starfa hér á landi um lengri og skemmri tíma. Bæklingarnir eru tveir og í þeim er fjallað um grundvallaratriði á borð við reykskynjara, flótta úr brennandi íbúð og slökkvitæki. Þá er fjallað um neyðarnúmerið, 112, og Hjálparsíma Rauða krossins en bæklingarnir eru gefnir út í samvinnu við 112 og Rauða kross Íslands.
Ljóðstafur Jóns úr Vör eru árleg ljóðlistarverðlaun sem veitt eru að lokinni samkeppni þar sem öllum er frjálst að senda inn frumsamin ljóð á íslensku, sem ekki hafa birst opinberlega áður. Öll eru merkt dulnefni og engin leið fyrir dómnefnd að komast að nafni höfundar fyrr en að vali loknu. Hér takast því á reyndari skáld og nýrri í jöfnum leik. Að þessu sinni voru innsend ljóð um 350 og eftir gaumgæfilegan lestur þeirra komst dómnefnd að þeirri niður stöðu að verðugur handhafi ljóðstafs Jóns úr Vör árið 2007 væri Guðrún Hannesdóttir fyrir ljóðið “Offors”.
Kópavogsbær og Vátryggingafélag Íslands, VÍS gerður á liðnu ári með sér tímamótasamning sem felur í sér að VÍS slysatryggir sjálfkrafa öll börn undir 18 ára aldri sem stunda íþróttir eða aðra skipulagða félagsstarfsemi í Kópavogi.
Frá 8. janúar og fram í miðjan mánuðinn mun Áhaldahús Kópavogsbæjar hreinsa upp jólatré bæjarbúa. Íbúar eru beðnir að setja jólatré á áberandi stað við lóðarmörk og ganga þannig frá þeim að sem minnstar líkur séu á að þau fjúki eða valdi skemmdum.
Á laugardaginn 6.janúar nk. verður hin árlega þrettándagleði HK í Fagralundi.