des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb.
Íþróttafélagið Gerpla hélt fjórar glæsilegar Vorsýningar dagana 18. og 19. maí fyrir troðfullu húsi á hverri sýningu. Er þetta í fyrsta skiptið sem skipta þurfti Vorsýningu félagsins upp í fjóra hluta til þess að allir iðkendur félagsins gætu komið fram en þeir eru nú orðnir 1.375 í reglubundnum æfingum undir lok vetrarstarfsins.
Að gefnu tilefni vill Kópavogsbær koma því á framfæri að auglýstir tónleikar útvarpstöðvarinnar Flass fyrir börn og unglinga þann 19. maí verða ekkí í íþróttahúsinu í Smáranum í Kópavogi.
Guðlaug Snorradóttir, deildarstjóri nýbúadeildar Hjallaskóla, ásamt starfsfólki deildarinnar hlaut hvatningarverðlaun Heimilis og skóla fyrir óeigingjarnt starf í þágu nýbúa. Í lýsingu Heimilis og skóla segir eftirfarandi: “Þrátt fyrir erfiðar aðstæður, sökum mismunandi tungumála, hefur Guðlaug og hennar fólk lagt metnað sinn í að efla tengsl foreldra við deildina og skólann.
Í síðustu viku lauk samræmdum prófum í grunnskólum Kópavogs. Slík tímamót gefa tilefni til að fagna á heilbrigðan og jákvæðan hátt. Fyrir nokkrum árum var neikvæð hópamyndum og unglingadrykkja fylgifiskur við lok prófa. Með einstöku samstarfi ÍTK, grunnskóla, lögreglu og Samkóp (samtök foreldrafélaga), hefur tekist að snúa við blaðinu og lokum samræmdra prófa er nú fagnað á mun gleðilegri hátt.
Á afmæli Kópavogsbæjar, var Baltasar Samper myndlistarmaður útnefndur heiðurslistamaður Kópavogs fyrir árið 2007. Hann fæddist 9. janúar árið 1938 í Barcelóna. Baltasar hefur verið búsettur frá 1963 á Íslandi og þar af síðustu fjörtíu tvö árin í Kópavogi. Hann er giftur Kristjönu Samper listakonu.