Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Kínversk menningarhátíð í Kópavogi sett - 29.9.2007

Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, og frú Dorrit Moussaieff áttu athygli kínversku gestanna óskipta. Hér sjást þau á tali við kínverska vatnslitamálarann og blaðamanninn Yu Xi sem sýnir vatnslitamyndir sínar á neðri hæð Gerðarsafns. (Mynd: Krissý)Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, þakkaði Kópavogsbæ fyrir það einstæða tækifæri að fá að kynnast listum og menningu kínversku þjóðarinnar á Kínverskri menningarhátíð í bænum. Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri setti hátíðina í Listasafni Kópavogs – Gerðarsafni í dag.

Viljayfirlýsing um vinabæjartengsl við Wuhan - 29.9.2007

Yfirlýsing um vinabæjartengsl Kópavogs og Wuhan í Kína undirrituð í Gerðarsafni. (Mynd: Krissý)Samkomulag um vináttubæjarsamband milli Kópavogsbæjar og Wuhan-borgar í Hubei-héraði í Kína var undirritað í Gerðarsafni árdegis. Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, undirrituðu viljayfirlýsinguna fyrir hönd Kópavogs en Peng Lemin, aðalframkvæmdastjóri fastanefndar Wuhan-borgar, fyrir hönd Wuhan.

Kínversk menningarhátíð - 28.9.2007

Kínversk menningarhátíð í Kópavogi hefst á morgun, laugardaginn 29. september. Mikið verður um dýrðir víða um bæinn næstu níu dagana eða allt til sunnudagsins 7. október. Loftfimleikar, listmunir, þjóðlagatónlist, fornminjar, flugdrekar, bókmenntir, kvikmyndir, ljósmyndasýning, málþing og fjölskylduhátíð – sem sagt eitthvað fyrir alla. Smelltu hér til að sjá nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar.

Ókeypis námskeið í foreldrafærni - 27.9.2007

ÓB-ráðgjöf, sem rekur leikskólann Hvarf, býður foreldrum leikskólabarna í Kópavogi ókeypis námskeið til að draga úr spennu á heimilum.ÓB-ráðgjöf býður foreldrum barna í leikskólum Kópavogs námskeið sem ber nafnið Núll til sex ára - Uppeldi barna frá fæðingu til sex eða sjö ára aldurs. Eru þessi námskeið foreldrunum að kostnaðarlausu.

Napur hjóladagur - 25.9.2007

Um þrjátíu manns slökktu þorsta sinn við Gerðarsafn á hjóladaginnHjólalest í tilefni af Evrópskri samgönguviku hafði viðkomu í Kópavogi um helgina á leið úr Hafnarfirði í Reykjavík. Reiðhjólafólk úr Kópavogi slóst með í för við Gerðarsafn. Þar var þorstanum svalað áður en haldið var í Nauthólsvík í nöpru veðri til að hjóla með öðrum hjólalestum að Ráðhúsi Reykjavíkur.

Ruglað saman reitum - 25.9.2007

Heimsmeistaraskáksveit Salaskóla í Kópavogi fjórtán ára og yngri gerði víðreist um Namibíu í ferð sem hún fór í boði Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Sveitin sýndi listir sínar og tefldi við unga heimamenn. Sem við var að búast höfðu heimsmeistararnir nokkra yfirburði.

Aðgerðaáætlun leikskólanefndar - 24.9.2007

Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt aðgerðaáætlun leikskólanefndar í því skyni að auka stöðugleika í starfsmannahaldi, laða starfsfólk að leikskólum bæjarfélagsins og auka fagþekkingu í leikskólum Kópavogsbæjar.

Ekki er öll nótt úti enn - 20.9.2007

Lið Kópavogsbúa skipa þeir Hafsteinn Viðar Hafsteinsson, Víðir Smári Petersen og Örn Árnason.Samanlögð reynsla, þekking og hæfileikar fulltrúa Kópavogs í spurningakeppninni Útsvar í Ríkissjónvarpinu dugði ekki gegn snörpu liði Hveragerðis. Þrátt fyrir tap í fyrsta þætti spurningaleiksins á liðið enn möguleika á að komast áfram. Fjögur stigahæstu tapliðin fá annað tækifæri. Kópavogsliðið hlaut 70 stig og tapaði aðeins með 4.

Öflugur bakhjarl Salarins - 18.9.2007

SPK gerist aðalstyrktaraðili SalarinsSalurinn, tónlistarhús Kópavogs, fær öflugan bakhjarl í Sparisjóði Kópavogs næstu tvö árin. Efling menningarmála hefur verið eitt af helstu markmiðum Sparisjóðsins í fjölda ára. Carl H. Erlingsson sparisjóðsstjóri, Unnur Guðríður Indriðadóttir markaðsfulltrúi, Vigdís Esradóttir, forstöðumaður Salarins, og Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri undirrituðu styrktarsamninginn.

Framtíðarheimilið í Vatnsendahlíð - 17.9.2007

Kópavogsbær auglýsir til úthlutunar byggingarrétt fyrir íbúðarhús í Vatnsendahlíð í Kópavogi. Þar er mikið og fagurt útsýni. Þaðan sér yfir Elliðavatn og Heiðmörk og allt að Hengilssvæðinu, Vífilsfelli og Bláfjöllum til austurs og hluta af Kópavogi og Reykjavík til norðurs og vesturs með útsýni yfir Esjuna, Akrafjall og til sjávar.

Efnilegur tenórsöngvari fær styrk - 16.9.2007

Gissur Páll Gissurarson tenórsöngvari hlaut 500 þúsund króna styrk úr Styrktarsjóði Önnu Karólínu Nordal. Þetta er í sjötta sinn sem úthlutað er úr styrktarsjóðnum í Salnum í Tónlistarhúsi Kópavogs.

Skólastjóraskipti - 14.9.2007

Unnur Stefánsdóttir leikskólastjóri Heilsuleikskólans Urðarhóls og frumkvöðull heilsustefnunnar hefur hætt störfum. Unnur hefur störf hjá RV-ráðgjöf sem framkvæmdastjóri Heilsustefnunnar. Sigrún Hulda Jónsdóttir tekur við starfi leikskólastjóra en hún er einn af stofnendum stefnunnar.

Myndin er tekin við skólastjóraskiptin.

Læknar á Læknavaktinni skoða 67 þúsund sjúklinga á ári - 13.9.2007

LæknavaktinGunnar I. Birgisson bæjarstjóri heimsótti Læknavaktina, Smáratorgi 1, þar sem fimm sérfræðingar í heimilislækningum taka á móti sjúklingum sem þurfa umönnun utan dagvinnutíma. Um 60 þúsund manns leita árlega á Læknavaktina auk þess sem læknar hennar fara í 7 þúsund vitjanir og veita símaráðgjöf.

Heildarfjöldi athugasemda við skipulag á Kársnesi - 12.9.2007

Athugasemdir við hugmyndir að skipulagi á hafnarsvæði á Kársnesi bárust frá alls 1674 einstaklingum og samtökum, þar af 1117 af Kársnesinu sjálfu. Langflestar athugasemdir bárust eftir að bæjarráð Kópavogs ákvað að framlengja athugasemdafrestinn til 3. september.

Heimsmeistarar í skólaskák til Namibíu - 10.9.2007

Heimsmeistarar SalaskólaÞróunarsamvinnustofnun Íslands og Kópavogsbær bjóða heimsmeistaraliði Salaskóla í skólaskák ásamt tveimur fararstjórum til Namibíu í því skyni að vekja athygli á íþróttinni. Flogið verður til Windhoek, höfuðborgar Namibíu, með viðkomu í London miðvikudag 12. september.

Gengið um Kársnes á umhverfisdegi - 5.9.2007

Umhverfisráð Kópavogs stendur fyrir stuttri göngu um Kársnes á árlegum umhverfisdegi bæjarins fimmtudaginn 6. september næstkomandi.

Nýr leikskólastjóri - 3.9.2007

Nýlega var Margrét Magnúsdóttir ráðin leikskólastjóri í leikskólann Baug við Baugakór. Baugur er nýr leikskóli sem áformað er að taki til starfa í september.
Margrét var áður aðstoðarskólastjóri í Fífusölum.