Fyrirsagnalisti

Hvar eru börnin? spurði Morgunblaðið í fyrirsögn á dögunum og benti á að fjöldi barna í Reykjavíkurborg hefði staðið í stað í 9 ár. Morgunblaðið svaraði líka spurningunni. Börnin eru í Kópavogi! Hér hefði þeim fjölgað um næstum 30% á sama tíma.

Lindaskóli hélt upp á 10 ára afmæli sitt á miðvikudag með fjölbreyttri dagskrá.

Endurskoðuð fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2007 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar 23. október sl. Niðurstöðutölur í rekstri og fjárfestingum eru í samræmi við upphaflega fjárhagsáætlun. Gert er ráð fyrir að bæjarsjóður skili um 2,1 milljarði króna í rekstrarafgang.
.jpg)
Margrét Friðriksdóttir, skólameistari Menntaskólans í Kópavogi, tók í dag við viðurkenningu jafnréttisráðs úr hendi Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra við athöfn á hótel Hilton Reykjavík Nordica.

Jafnréttisnefnd Kópavogs heldur málþing um konur í sveitarstjórnum undir yfirskriftinni „ég þori, get og vil!“ fimmtudaginn 25. október kl. 17–19 á neðri hæð Gerðarsafns. Tilefnið er að hálf öld er liðin frá því að Hulda Jakobsdóttir varð bæjarstjóri í Kópavogi og þar með fyrsta konan til að gegna stöðu bæjarstjóra á Íslandi.

Öryggiskerfi Sundlaugar Kópavogs hefur verið vandlega yfirfarið eftir sviplegt slys síðastliðið vor sem dró ungan pilt í skólasundi til dauða. Samantekt um öryggismálin er birt á heimasíðu bæjarfélagsins.

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, heimsótti um helgina Dvöl, athvarf Kópavogsdeildar Rauða krossins fyrir geðfatlaða.

Lögreglumenn af svæðisstöðinni í Kópavogi fóru í göngueftirlit á Smáratorgi á föstudagsmorgun, en verið var að opna leikfangaverslunina Toys "R" us. Mjög mikill mannfjöldi var utan við verslunina í langri röð sem hlykkjaðist frá versluninni inn á bílastæði við McDonalds.

Splunkuný íslensk ópera, Skuggablóm, verður frumsýnd í Salnum, tónlistarhúsi Kópavogs, á vegum Söngskólans í Reykjavík á miðvikudagskvöld 24. október kl. 20. Tvær sýningar eru fyrirhugaðar á óperunni og er síðari sýningin kvöldið eftir 25. október kl. 20. Lista- og menningarráð Kópavogs býður ókeypis aðgang.

Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, hefur fyrir hönd fjölbýlis geðfatlaðra í Hörðukór veitt viðtöku 200 þúsund króna peningagjöf frá Kvenfélagi Kópavogs.

Fullur þrýstingur á að vera kominn á heitavatnsrennslið í öllum hverfum Kópavogs eftir alvarlega bilun í aðalæð fyrir hádegi.
Vegna alvarlegrar bilunar á aðalæð fyrir heitt vatn austan við Reykjanesbraut gegnt Smáralind er heitavatnslaust í vesturbæ Kópavogs og Linda- og Salahverfi. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur er vonast til að viðgerð verði lokið um þrjúleytið.
.jpg)
Krakkar úr 1. til 7. bekk í grunnskólum Kópavogs komu saman nokkra daga í liðinni viku á morguntónleikum í Salnum þar sem hljómsveitin Vipepe Marimba lék afríska tónlist við góðar undirtektir. Þótt nafnið gefi annað til kynna kemur hljómsveitin úr Hafralækjarskóla í Aðaldal.

Umsóknir um úthlutun byggingarréttar í Vatnsendahlíð eru 715 samkvæmt fundargerð bæjarráðs í gær 11. október. Frestur til umsókna rann út fyrir viku.
Næstkomandi fimmtudag, 11. október, verður tónlistarþátturinn Hlaupanótan á Rás 1 sendur út beint frá Salnum í Kópavogi. Af þessu tilefni verður opið hús fyrir áheyrendur í sal á meðan á útsendingu stendur milli kl. 16 og 17.

Kínverska menningarhátíðin í Kópavogi hlaut frábærar móttökur en formlegri dagskrá lauk í gær. Mörg þúsund manns nutu viðburðanna. Sýning á list- og fornmunum frá Kína auk vatnslitamyndasýningarinnar í Listasafni Kópavogs – Gerðarsafni standa aftur á móti til 11. nóvember.

Vísindasjóður Félags leikskólakennara hefur veitt leikskólanum Fögrubrekku styrk vegna útlagðs kostnaðar á útgáfu þróunarverkefnisins „Uppeldisfræðilegar skráningar, hvernig læra leikskólabörn?“. Styrkurinn er samtals kr. 700.000.

Við eftirlit lögreglunnar á föstudagskvöldi um síðustu mánaðamót var sérstök áhersla lögð á útivistartíma barna í Kópavogi. Á fréttasíðu lögreglunnar segir að svo virðist sem flestir fylgi útvistarreglunum, þó hafi verið höfð afskipti af þremur hópum barna um kvöldið og nóttina:

Fjölskylduhátíð verður haldin í Vetrargarðinum í Smáralind laugardaginn 6. október kl. 14–16 í tilefni af Kínverskri menningarhátíð í Kópavogi. Í boði verður fjölbreytt dagskrá við hæfi allrar fjölskyldunnar.
.jpg)
Seinni tónleikar Þjóðlagahljómsveitar Söngleikja- og dansstofnunar Wuhan á Kínverskri menningarhátíð verða í Salnum í kvöld, föstudag 5. október.
Kópavogsbær bendir á að fréttatilkynning Skipulagsstofnunnar varðandi auglýsingu um úthlutun á byggingarrétti í Vatnsendahlíð áréttar og undirstrikar fyrirvara í auglýsingunni um að úthlutun sé háð samþykkt deiliskipulags.

Kínverska fimleikafólkið í Loftfimleikaflokki Wuhan-borgar hefur æft af kappi fyrir sýningar sínar í íþróttamiðstöðinni Versölum á Kínversku menningarhátíðinni í Kópavogi. Uppselt er á allar sýningar, einnig aukasýninguna föstudagskvöld.

Þjóðlagahljómsveit Söngleikja- og dansstofnunar Wuhan-borgar í Kína lét engan ósnortinn sem var viðstaddur hátíðartónleika hennar í Salnum á þjóðhátíðardegi Kínverja. Hinir heimskunnu tónlistarmenn koma fram á tvennum tónleikum í viðbót, miðvikudagskvöldið 3. október og föstudagskvöldið 5. október.
.jpg)
Meðal fjölmargra atriða á Kínverskri menningarhátíð í Kópavogi er kennsla í flugdrekasmíði undir leiðsögn kínverska flugdrekagerðarmeistarans Kong Lingmin. Tilgangur menningarhátíðarinnar er ekki síst að ná til yngstu kynslóðarinnar.

Ljósmyndasýning frá Wuhan í Kína var opnuð í Vetrargarðinum í Smáralind á sunnudaginn. Ljósmyndirnar, 120 að tölu, verða gefnar Kópavogsbæ að Kínverskri menningarhátíð lokinni.