des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb.
Í tillögu að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2008, sem lögð var fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs nú síðdegis, er gert ráð fyrir ríflega 2,2 milljarða króna rekstrarafgangi.
Mjög góð mæting foreldra var á fræðslufund í Hjallaskóla í morgun. Kynntar voru niðurstöður úr rannsókn Rannsóknar og greiningar um hagi og líðan barna í Kópavogi, auk þess sem Hugo Þórisson, sálfræðingur skólans, var með mjög áhugavert erindi. Framundan eru fundir í öllum grunnskólum bæjarins á morgnana kl 8.10 - 9.10.
Vegna rangs fréttaflutnings DV um að rannsókn sýni að það séu „flestir glæpir í Kópavoginum“ áréttar lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins að fjöldi hegningarlagabrota miðað við íbúafjölda í bæjarfélaginu sé undir meðaltali.
Miðvikudag og fimmtudag fengu nemendur 8., 9. og 10. b í Smáraskóla fræðslu um skaðsemi og þá hættu sem fylgir vímuefnanotkun. Auk þess var foreldrafundur um kvöldið. Foreldrar mættu mjög vel og var góður rómur gerður að fundinum.
Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, kynntu í dag á blaðamannafundi einróma samþykkt bæjarráðs um sértækar aðgerðir í starfsmannamálum. Tilgangurinn er að auka stöðugleika í starfsmannahaldi, bregðast við samkeppni á vinnumarkaði og laða starfsfólk að lausum stöðum hjá bænum.
Á fundi bæjarráðs þann 12. nóvember, kl. 15:00, fór fram úthlutun á byggingarrétti í Vatnsendahlíð í Kópavogi. Tillögur bæjarráðs um úthlutun voru lagðar fyrir bæjarstjórn Kópavogs þann 13. september s.l. og voru þær samþykktar.
Lokaráðstefna Evrópuverkefnisins Jafnréttisvogin eða „Tea for two – Illustrating Equality“ fjallar um að gera jafnréttisstarf sveitarfélaganna sýnilegt og fer hún fram á ensku. Hún verður haldin föstudaginn 16. nóvember næstkomandi á Hótel Loftleiðum. Ráðstefnan er öllum opin án endurgjalds og stendur frá kl. 13 til kl. 17.
Bæjarráð Kópavogsbæjar staðfesti í dag ákvörðun skipulagsnefndar frá 6. nóvember 2007 þar sem hafnað var tillögu að breyttu skipulagi á hafnarsvæðinu vestast á Kársnesi. Ákvörðunin grundvallast á innsendum athugasemdum.
Árlegir styrktartónleikar á vegum Vina Indlands verða haldnir í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, miðvikudagskvöldið 7. nóvember næstkomandi kl. 20. Vinir Indlands hyggjast reisa heimili fyrir börn sem misstu foreldra sína í flóðbylgjunni miklu í Suðaustur-Asíu.