des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb.
Íbúi í Brekkutúni rakst á dauðan haftyrðil í framsæti bifreiðar sinnar í gær, föstudaginn 28. desember. Haftyrðillinn hafði samkvæmt frétt frá Náttúrufræðistofu Kópavogs komist inn um 6 til 7 sentimetra breiða rifu á glugga bifreiðarinnar sem skilin hafði verið eftir í ógáti á jóladag.
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, afhenti í dag níu starfsmönnum Kópavogsbæjar sérstaka viðurkenningu fyrir dygg og góð störf í þágu bæjarins í 25 ár.
Vatni frá Vatnsveitu Kópavogs var í dag hleypt á allt dreifikerfi Vatnsveitu Garðabæjar. Fyrir fáum vikum var vatni frá VK hleypt á Kauptún og síðar á Molduhraun.
Vefur Kópavogsbæjar er í úrvalssveit vefsíðna hjá sveitarfélögum á landinu.
Bæjarstjórn Kópavogsbæjar samþykkti einum rómi á fundi sínum í gærkvöld, hinn 18. desember 2007, viljayfirlýsingu um byggingu óperuhúss í Kópavogi.
Salurinn hefur látið hanna ný og falleg gjafakort sem gilda á tónleika í Salnum á komandi ári. Gjafakort er bæði hægt að fá opið að tiltekinni fjárhæð eða sem ávísun á valda tónleika.
Lögreglan í Kópavogi hvetur bæjarbúa, framkvæmdaraðila og fyrirtækjaeigendur til að fergja allt lauslegt eða flytja það inn í hús svo að það fjúki ekki í óveðrum og valdi tjóni. Veðurstofan spáir stormi um land allt.
Góð þátttaka var hjá nemendum í grunnskólum Kópavogs í jólagetraun lögreglunnar og Umferðarstofu fyrir nemendur í 1. til 5. bekk. Dregið var úr réttum lausnum á bæjarskrifstofu Kópavogs þann 13. desember.
Bæjarstjórn Kópavogsbæjar samþykkti fjárhagsáætlun fyrir árið 2008 á fundi sínum í gærkvöld. Gert er ráð fyrir ríflega 2,2 milljarða króna rekstrarafgangi.
Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt að fresta ákvörðun um gjaldfrjálsar strætisvagnasamgöngur í samræmi við erindi frá stjórn Strætós bs.
Nýr leikskóli var opnaður í Kópavogi í dag síðdegis. Leikskólinn, sem hefur hlotið nafnið Baugur, stendur við Baugakór. Í Kópavogsbæ eru nú reknir 19 leikskólar á vegum bæjarins og 3 á vegum einkaaðila.
Bæjarráð Kópavogs samþykkti í dag einróma útfærslur á sértækum aðgerðum í starfsmannamálum Kópavogsbæjar. Kostnaður vegna sértækra aðgerða í starfsmannamálum nemur að sögn bæjarstjórans á bilinu 210 til 220 milljónum króna.

Ferðaverkefnið í hættu
Út er kominn myndskreyttur bæklingur um íþróttir og íþróttamannvirki í Kópavogi. Með bæklingnum vilja bæjaryfirvöld vekja athygli á þeirri fjölbreyttu íþróttastarfsemi sem stunduð er í Kópavogi og þeirri umgjörð sem bærinn hefur búið þessum mikilvæga málaflokki.
Afbrotum fækkar
Í gær var haldin jólahátíð í Kópavogi í tilefni af tendrun jólaljósanna á vinarbæjarjólatré Kópavogsbúa.