Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Aukasýningar á Skugga-Sveini - 30.12.2008

Skugga-Sveinn hefur hlotið góðar viðtökur áhorfenda í Leikhúsinu í Kópavogi.Vegna góðrar aðsóknar hefur Leikfélag Kópavogs ákveðið að bæta við þremur aukasýningum í janúar á uppfærslu sinni á Skugga-Sveini eftir Matthías Jochumsson.
 

Skuldabréfaútboði lokið - 30.12.2008

Saga Capital Fjárfestingarbanki lauk í gær við opin skuldabréfaútboð fyrir Kópavogsbæ og sveitarfélagið Árborg. Seld voru skuldabréf fyrir Kópavogsbæ fyrir 3 milljarða króna og fyrir Árborg að upphæð einn milljarð króna.
 

Salurinn 10 ára - 30.12.2008

Salurinn í Tónlistarhúsi Kópavogs, einn mikilvægasti vaxtarbroddur íslenskrar tónlistar, er 10 ára.Salurinn, fyrsta tónlistarhús landsins, er 10 ára. Það var tekið í notkun laugardaginn 2. janúar árið 1999. Meira en þúsund tónleikar hafa verið fluttir í Salnum auk fjölda hljóðritana, funda, námskeiða og ráðstefna. Hundruð þúsunda hafa heimsótt Salinn sem er einn af mikilvægustu vaxtarbroddum tónlistarlífsins í landinu. Hann hefur á þessum 10 árum margsannað gildi sitt og er starfsemin í stöðugri framþróun.
 

Áramótabrenna 2008 - 30.12.2008

Frá áramótabrennunni sem þurfti að fresta til 2. janúar 2008 vegna veðurs.Áramótabrenna Kópavogs verður að venju við Smárahvammsvöll á gamlaárskvöld. Kveikt verður í bálkestinum klukkan 20:30 og flugeldasýning Hjálparsveitar skáta hefst klukkan 21:10. Valgeir Skagfjörð sér um að halda uppi fjörinu með hljóðfæraslætti og söng. Kynnir verður Samúel Örn Erlingsson.
 

Skuldabréfaútboð fyrir Kópavog - 23.12.2008

Kópavogsbær hefur samið við Saga Capital Fjárfestingarbanka um sölu og umsjón á opnu skuldabréfaútboði á innlendum verðbréfamarkaði.
 

Breyting á fæðisgjaldi - 22.12.2008

Vegna hækkunar á verði aðfanga ákvað bæjarstjórn Kópavogs í tengslum við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2009 að breyta fæðisgjöldum í grunnskólum og leikskólum í bæjarfélaginu.

 

Gert ráð fyrir 200 mkr rekstrarafgangi 2009 - 20.12.2008

Bæjarstjórn Kópavogs hefur samþykkt fjárhagsætlun fyrir bæjarsjóð árið 2009 með 200 milljóna króna rekstarafgangi.
 

Dómnefnd fer yfir tæplega 300 ljóð - 19.12.2008

Í dómnefnd ljóðasamkeppninnar Dómnefnd ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs, „Ljóðstafur Jóns úr Vör“, er í óðaönn að fara yfir tæplega 300 ljóð sem bárust samkeppninni í ár og leggja á þau mat. Greint verður frá niðurstöðunum og veitt verðlaun í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, á afmælisdegi Jóns úr Vör miðvikudaginn 21. janúar 2009.
 

Íþróttahátíð 5. janúar nk. - 18.12.2008

Úr knatthúsinu Kórnum. Ljósmynd: KrissýÍþróttahátíð íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogs verður haldin mánudaginn 5. janúar næstkomandi kl. 18:30 í Salnum. Á hátíðinni verður lýst kjöri á íþróttakonu og íþróttakarli Kópavogs 2008. Flokkur ársins verður útnefndur, afreksstyrkir afhentir og íþróttafólki veittar viðurkenningar fyrir unnin afrek. Allir Kópavogsbúar eru velkomnir.
 

Afgreiðslutími um jól og áramót - 18.12.2008

Norrköpingstré á Hálsatorgi. (Mynd: Krissý)Afgreiðslutímar á bæjarskrifstofunum verða þannig kringum hátíðirnar:

Þorláksmessa opið kl. 08.00–15.00
Aðfangadagur lokað
Mánudagur 29. desember opið kl. 10.00–16.00
Þriðjudagur 30. desember opið kl. 08.00–16.00
Gamlársdagur lokað
Nýársdagur lokað
Föstudagur 2. janúar 2009 opið kl. 10.00–15.00
 

Breyting á reglum um heimgreiðslur - 17.12.2008

Smellið á myndina til að sjá auglýsingu frá Félagsþjónustu Kópavogs.Samkvæmt ákvörðun bæjarráðs verður reglum um heimgreiðslur breytt frá og með næstu áramótum þannig að heimgreiðslur falla niður þegar barn nær tveggja ára aldri eða fyrr ef það fær vistun á leikskóla.

 

Vígsla safnaðarsalar Lindakirkju - 16.12.2008

Karl Sigurbjörnsson biskup vígir nýjan safnaðarsal Lindakirkju.Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, vígði safnaðarsal Lindakirkju 14. desember síðastliðinn, á þriðja sunnudegi í aðventu, 14. desember síðastliðinn.
 

Nýleg verk í eigu Gerðarsafns - 11.12.2008

Henríetta von Grim eftir Hallgrím HelgasonLaugardaginn 29. nóvember var í Gerðarsafni opnuð sýning á verkum í eigu safnsins. Um er að ræða nýlega skúlptúra og málverk eftir Önnu Hallin, Gabríelu Friðriksdóttur, Hallgrím Helgason, Katrínu Sigurðardóttur, Olgu Bergman, JBK Ransu, Steingrím Eyfjörð og Valgerði Guðlaugsdóttur.
 

Gert ráð fyrir hallalausum rekstri 2009 - 10.12.2008

Kópavogskirkja á Borgarholti að vetralagi, eitt helsta kennimerki Kópavogs.Í tillögu að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2009, sem var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs í gær, er gert ráð fyrir hallalausum rekstri.
 

Ferlinefnd verðlaunar Sundlaug Kópavogs - 4.12.2008

Jakob Þorsteinsson, forstöðumaður Sundlaugar Kópavogs, með viðurkenningarskjalið, Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, og Helga Skúladóttir, formaður ferlinefndar, í Gerðarsafni 3. desember 2008.Ferlinefnd ákvað að veita Sundlaug Kópavogs á Rútstúni viðurkenningu fyrir gott aðgengi á Alþjóðadegi fatlaðra í gær. Þetta er í fjórða sinn sem viðurkenningin er veitt.
 

Mikil stemmning á jólahátíð í Kópavogi - 30.11.2008

Jólahátíð í Kópavogi vel sóttJólaljósin á vinabæjarjólatré Kópavogsbúa voru tendruð við hátíðlega athöfn á Hálsatorgi í gær. Þetta er í 41. sinn sem tréð er afhent með vinarkveðju frá íbúum Norrköping í Svíþjóð. Sigurrós Þorgrímsdóttir, forseti bæjarstjórnar, tók formlega við trénu og fluttar voru vinarkveðjur frá bæjarstjóra Norrköping.
 

Jólatré til sölu að Fossá í Hvalfirði - 26.11.2008

Hefur þig dreymt um að fara með fjölskyldu þinni í skógarhögg þar sem þið veljið ykkar eigið jólatré og höggvið það sjálf? Einstaklingum sem og starfsmannahópum gefst nú, eins og undanfarin ár, frábært tækifæri til að koma í desember að Fossá í Kjós og ná sér í jólatré.
 

Viðurkenning fyrir gott aðgengi - 26.11.2008

Frá afhendingu á viðurkenningu fyrir gott aðgengi í Smáralind.Í tilefni af Alþjóðadegi fatlaðra þann 3. desember næstkomandi mun ferlinefnd Kópavogs veita í fjórða sinn viðurkenningu fyrir gott aðgengi. Athöfnin fer fram í Gerðarsafni kl. 15.00.
 

Jólahátíð í Kópavogi - 26.11.2008

Laugardaginn 29. nóvember verður jólahátíð í Kópavogi á Hálsatorgi og í nærliggjandi menningarstofnunum. Kópavogsbúum og öðrum gestum er meðal annars boðið að taka þátt í laufabrauðsbakstri, hlusta á jólasöngva, fræðast um jólaköttinn og tendra á jólaljósunum á vinarbæjarjólatré Kópavogsbúa.
 

Danssýning í Smáranum - 24.11.2008

Gleðin og fegurðin var við völd í íþróttahúsinu Smáranum á sunnudag þar sem fram fór nemendasýning Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar. „Nú eru að mörgu leyti erfiðir tímar og allt sem lyftir geði okkar og léttir lundina fær nýtt, eða á ég að segja endurnýjað, gildi,“ sagði Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri í ávarpi af þessu tilefni. „Þess vegna er svo gaman að sjá hve margir áhugasamir þátttakendur eru hér á nemendasýningunni.“
 

Gilligill í Salnum á sunnudag - 21.11.2008

Sérstakir fjölskyldutónleikar með lögum af hljómplötunni Gilligill eru í Salnum á sunnudögum fram að jólum, næst sunnudaginn 23. nóvember.
 

SOPRANOS - söngtríó í Salnum - 19.11.2008

Þrjár söngkonur sem kalla sig SOPRANOS efna til tónleika í Salnum föstudagskvöldið 21. nóvember kl. 20 til að skemmta og glæða áhugann á sígildri sönglist.
 

Kópavogsbær eykur þjónustu með nýju símkerfi - 18.11.2008

F.v. Guðbjörg Ester Einarsdóttir, Klara Ragnarsdóttur, Steinunn Sigurðardóttir og Sigurbjörg H. Hauksdóttir, starfsmenn þjónustuversins, Ingimar Þór Friðriksson, forstöðumaður upplýsingatæknideildar, Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri, Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, og Einar Örn Birgisson, vörustjóri símlausna hjá Nýherja.Kópavogsbær hefur tekið í notkun IP símkerfi frá Nýherja sem bætir þjónustu við íbúa og einfaldar aðgengi þeirra að stofnunum bæjarins.
 

Geðheilbrigðismál - fræðsludagar - 17.11.2008

Valdefling í verki, fræðsludagar um geðheilbrigðismál, verða haldnir í Haukaheimilinu á Ásvöllum í Hafnarfirði fimmtudaginn 20. og föstudaginn 21. nóvember. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.
 

Sigur á Akranesi í Útsvari - 15.11.2008

Sigurliðið frá því í fyrra afhendir bæjarstjóranum verðlaunin - sem hafa notið þvílíkra vinsælda á bæjarskrifstofunum að rafhlaðan er búin í bjöllunni.Lið Kópavogsbæjar vann lið Akraness í Útsvari, spurningakeppni Sjónvarpsins, í gærkvöld með 95 stigum gegn 65.
 

Upplestur rithöfunda í Bókasafni Kópavogs - 14.11.2008

Höfundar lesa úr jólabókunum í Bókasafni Kópavogs næstkomandi fimmtudag, 20. nóvember, kl. 17.15.

 

?Allt hefur áhrif, einkum við sjálf? - 14.11.2008

„Allt hefur áhrif, einkum við sjálf“ er sameiginlegt þróunarverkefni Lýðheilsustöðvar og sveitarfélaga, þar á meðal Kópavogs, sem hefur að markmiði að bæta lýðheilsu. Kópavogur hefur tekið þátt í undirbúningi verkefnisins frá ársbyrjun 2005 sem nú er komið á koppinn.
 

Gilligill í Salnum - frábær skemmtun! - 14.11.2008

Börnin tóku þátt af lífi og sál...Í tilefni af útkomu barnaplötunnar Gilligill verða haldnir sérstakir Gilligill–tónleikar í Salnum í Kópavogi, alla sunnudaga fram að jólum klukkan 13.00 og 15.00. Fyrstu tónleikarnir verða 16. nóvember.
 

Stíllinn í Smáranum 22. nóvember - 14.11.2008

Auglýsing fyrir Stílinn 2008.Stíllinn er einn af stórviðburðum Samfés og fer fram í íþróttahúsinu Smáranum laugardaginn 22. nóvember næstkomandi. Þetta í áttunda sinn sem keppnin er haldin. Þemað er „framtíðin“.
 

Ársreikningurinn 2007 á Netinu - 12.11.2008

Margmiðlunarefni með upplýsingum í máli og myndum um ársreikning og rekstur bæjarfélagsins árið 2007 hefur verið birt hér á heimasíðu Kópavogsbæjar. Markmiðið er að gera upplýsingar um Kópavog aðgengilegri en áður og nýta rafræna tækni með hliðsjón af almennri tölvunotkun og tengingu við Netið.
 

Ókeypis fjármálanámskeið - 11.11.2008

Kópavogsbær býður ásamt ráðgjafaátakinu Hönd í hönd, Kópavogsdeild Rauða krossins og Neytendasamtökunum upp á ókeypis fjármálanámskeið fyrir Kópavogsbúa.

 

Ljóðasamkeppni: Skilafrestur til 1. desember - 11.11.2008

Ljóðasamkeppnin er kennd við Jón úr Vör og hafa verðlaunahafar verið sex áður.Lista- og menningarráð Kópavogs efnir til árlegrar ljóðasamkeppni undir heitinu „Ljóðstafur Jóns úr Vör“. Skilafrestur ljóða er til 1. desember næstkomandi.
 

Gersemar Íslands og Rússlands í Salnum - 10.11.2008

Terem kvartettinn, þjóðargersemi Rússlands að mati gagnrýnenda sem auk þess að hafa fengið blessun páfa og móður Theresu, verður ásamt þjóðargersemi Íslands, Diddú, í Salnum laugardaginn næsta, 15. nóvember.
 

Ársrit Héraðsskjalasafns Kópavogs komið út - 8.11.2008

Ársrit Héraðsskjalasafns Kópavogs 2006-2007 er komið út og er til sölu í Bókasafni Kópavogs.Út er komið ársrit Héraðsskjalasafns Kópavogs 2006–2007. Efni ritsins eru skýrslur um starfsemi og sögu Héraðsskjalasafns Kópavogs frá stofnun þess árið 2000 til ársins 2007 auk útgáfu skráa yfir opinber skjöl og einkaskjöl í vörslu skjalasafnsins.
 

Yfirlit um foreldrastarf í Kópavogsskóla - 7.11.2008

Þáttaskil hafa orðið í margverðlaunuðu foreldrastarfi í Kópavogsskóli með nýjum grunnskólalögum. Ólafur Guðmundsson, fyrrverandi skólastjóri Kópavogsskóla, hefur tekið saman yfirlit um foreldrastarfið gegnum tíðina.
 

Vímuefnaneysla unglinga í Kópavogi minnkar - 7.11.2008

Talsvert hefur dregið úr áfengisdrykkju og reykingum 10. bekkinga í Kópavogi. Þetta sýna niðurstöður úr rannsókn Rannsóknar & greiningar á högum og líðan elstu nemenda í grunnskólum Kópavogs. Níu af hverjum tíu finnst félagslíf fyrir unglinga í bænum gott.
 

Sendinefnd Wuhan-borgar í heimsókn - 7.11.2008

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri kynnir starfsemi bæjarfélagsins fyrir vinabæjarnefnd Wuhan-borgar í Kína.Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, tóku í dag á móti sendinefnd frá Wuhan, vinabæ Kópavogs í Kína, til að ræða frekari menningarsamskipti í framhaldi af Kínverskri menningarhátíð í bænum árið 2007.
 

Lögreglustjórinn segir gott að búa í Kópavogi - 31.10.2008

Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, á fundi í bæjarstjórnarsalnum í Kópavogi.Meira en níutíu prósent íbúa í Kópavogi telja sig mjög eða frekar örugg í bænum ein á ferli þegar skyggja tekur. Þetta kemur fram í viðhorfskönnun lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er að mati lögreglustjórans staðfesting á því að það sé gott að búa í Kópavogi.
 

Hraðakstur á vinnusvæði - 31.10.2008

Næstum því þriðjungi ökutækja var ekið of hratt um Reykjanesbraut síðdegis í gær þar sem fram fara vegaframkvæmdir. Þetta leiddi sérstök vöktun lögreglu með hraðamyndavél í ljós.
 

Neyðarkall 2008 - 30.10.2008

Neyðarkall frá björgunarsveitunum 2008.Hin árlega sala á „Neyðarkalli frá björgunarsveitum“ fer fram um helgina. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur átakið kl. 14 á morgun, föstudag, við Smáralind í Kópavogi. Hjálparsveit skáta í Kópavogi stendur vaktina á fimm stöðum í bænum, við Smáralind, Smáratorg, Vínbúðina við Dalveg, Krónuna í Lindum og Byko Breidd.
 

Sjóður til styrktar skák í Kópavogi - 30.10.2008

Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs í Kópavogi, Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, Hlíðar Þór Hreinsson og Haraldur Baldursson frá Taflfélagi Kópavogs, undirrita stofnskjal Skákstyrktarsjóðs Kópavogs.Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, undirrituðu í morgun fyrir hönd Kópavogsbæjar stofnskjal Skákstyrktarsjóðs Kópavogs.

 

Gerplustúlkur hrepptu silfur á Evrópumóti - 30.10.2008

Gerplustúlkur sönnuðu það í ár að góður árangur á Evrópumótinu í fyrra var engin tilviljun.Gerplustúlkur komu heim með silfurverðlaun í farteskinu frá Evrópumótinu í hópfimleikum sem fram fór í Ghent í Belgíu 24. og 25. október síðastliðinn. Haldin var móttaka þeim til heiðurs í Íþróttamiðstöðinni að Versölum á þriðjudagskvöld.
 

Gítarsnillingur í Salnum - 29.10.2008

Ögmundur Þór Jóhannesson gítarleikariTónleikagestir Salarins fá að njóta tónlistarhæfileika gítarleikarans Ögmundar Þórs Jóhannessonar 1. nóvember næstkomandi klukkan 17. Ögmundur er uppalinn í Kópavogi en býr nú í Berlín og kennir og leikur á gítar víðsvegar um heiminn.

 

Ráðgjafaver vegna efnahagsástandsins - 23.10.2008

Til að styðja Kópavogsbúa í því erfiða ástandi sem skapast hefur við hrun á fjármálamarkaði hefur Kópavogsbær í samstarfi við ýmsa aðila sett á laggirnar ráðgjafaver í síma 800-5500. Átakið nefnist Hönd í hönd.
 

Frístundaheimili fyrir fatlaða nemendur opnað - 22.10.2008

Frístundarheimili fyrir fatlaða nemendur opnaðFélagsþjónustan í Kópavogi opnaði formlega frístundaheimili fyrir fatlaða nemendur í 5. til 10. bekk í grunnskólum Kópavogs í dag. Úrræðið er til húsa í Smáraskóla við Dalsmára.
 

Kópavogsbær innleiðir Bakvörð - 20.10.2008

Jóhann Sigurðsson, viðskiptastjóri Bakvarðar, og Ingimar Þór Friðriksson, forstöðumaður upplýsingatæknideildar Kópavogsbæjar, undirrita samning um nýja tímaskráningarlausn.Kópavogsbær og HugurAx hafa gengið til samstarfs um innleiðingu Kópavogsbæjar á Bakverði, tímaskráningarlausn HugarAx. Bakvörður mun þjóna öllum starfsmönnum Kópavogsbæjar og halda utan um alla viðveruskráningu starfsmanna.
 

Forseti Íslands heimsækir Kópavog - 17.10.2008

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, þegar forsetinn heimsótti Félagsþjónustu Kópavogs.Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, heimsótti í dag bæjarskrifstofur Kópavogs, Menntaskólann í Kópavogi og Gjábakka til að ræða um erfiðleika af völdum efnahagskreppu.
 

Frítt á leik á nýju gólfi í Smáranum - 17.10.2008

Kópavogsbær og körfuknattleiksdeild Breiðabliks bjóða Kópavogsbúum á fyrsta leik Breiðabliks í Iceland Expressdeildinni gegn Skallagrími úr Borgarnesi í kvöld kl. 19.15! Tilefnið er 40 ára afmæli körfuknattleiksdeildarinnar og vígsla á nýju gólfi í Smáranum.
 

Breyttur afgreiðslutími launadeildar - 15.10.2008

Síma-, heimsóknar- og afgreiðslutíma á launadeild Kópavogsbæjar verður milli kl. 8.30 og 13.00 alla virka daga frá og með 20. október næstkomandi. Tilgangurinn er að auka skilvirkni og öryggi í launavinnslu.
 

Skugga-Sveinn opnar Leikhúsið í Kópavogi - 14.10.2008

Leikfélag Kópavogs frumsýnir leikritið Skugga-Svein í nýrri útfærslu þegar nýja leikhúsið við Funalind verður tekið formlega í notkun sunnudaginn 19. október næstkomandi kl. 20.00. Leikhúsinu hefur verið gefið nafnið Leikhúsið.
 

Jónasarvaka í Gjábakka - 14.10.2008

Jónasarvaka er flutt til að heiðra minningu þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar.Ljóðahópur sem kennir sig við þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson, Jónasarhópurinn, verður með gestasýningu á dagskrá í minningu skáldsins í Gjábakka, Fannborg 8, í kvöld kl. 20.
 

Ekvador-menningarhátíðin hlaut frábærar viðtökur - 13.10.2008

Ekvador, suður-amerísk menningarhátíð í Kópavogi, sló í gegn þrátt fyrir bankakreppu og ískyggilegar efnahagslegar horfur.Suður-amerísk menningarhátíð í Kópavogi hlaut frábærar viðtökur. Gestir létu ekki dökkt útlit í efnahagsmálum slá sig út af laginu því að þeir flykktust í þúsundavís í menningarstofnanir Kópavogs til að fylgjast með fjölbreyttum viðburðum hátíðarinnar. Þótt dagskránni hafi lokið í gær halda sýningar í Gerðarsafni og Safnahúsi Kópavogs áfram til 16. nóvember.
 

Tveir fulltrúar ÍTK í ungmennaráði Samfés - 10.10.2008

Fulltrúar félagsmiðstöðva ÍTK sem hlutu kosningu í ungmennaráð Samfés, Sindri Benediktsson, Kjarnanum, Kópavogsskóla, og Andri Steinn Hilmarsson, Jemen, Lindaskóla.Hvetjandi og áhugavert unglingastarf fór fram á landsmóti Samfés þar sem tveir fulltrúar Íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogs voru kjörnir í ungmennaráð.

 

Verðlaunað Evrópusamstarf í Furugrund - 10.10.2008

Starfsfólk leikskólans Furugrundar taka við fyrstu verðlaunum fyrir evrópskt stærðfræðiverkefni.Leikskólinn Furugrund í Kópavogi hlaut fyrstu verðlaun í flokki leikskóla fyrir eTwinning verkefni sem talin eru hafa tekist sérlega vel skólaárið 2007–2008. Verðlaunin voru veitt fyrir stærðfræðiverkefnið Buckle my shoe.

 

Leiðsögn í Gerðarsafni um helgina - 10.10.2008

Myndin sem fylgir er af málverki eftir einn þekktasta myndlistarmann Suður-Ameríku, Oswaldo Guayasamín, en sonur hans, Pablo Guayasamín, verður með leiðsögn um sýninguna á laugardag kl. 15.Leiðsögn verður um sýninguna „Ekvador að fornu og nýju“ í Gerðarsafni – Listasafni Kópavogs á laugardag og sunnudag kl. 15. Sýningin er liður í Suður-amerískri menningarhátíð sem nú stendur yfir í Kópavogi.
 

Dvöl 10 ára - 9.10.2008

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri ávarpar afmælishóf athvarfsins Dvalar.Dvöl, athvarf fyrir geðfatlaða, fagnar í dag 10 ára afmæli sínu. Haldið var upp á daginn með afmælisboði í safnaðarheimili Digraneskirkju. Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri afhenti Dvöl 100 þúsund króna peningjagjöf frá Kópavogsbæ í tilefni dagsins.
 

Tölum saman - samskipti foreldra og unglinga um kynlíf - 9.10.2008

Um þessar mundir fer Tölum saman fræðslan fram í öllum grunnskólum Kópavogs. Forvarnarfulltrúi Kópavogsbæjar hvetur foreldra og börn til að nýta sér fræðsluna og vera virk í að skapa heilbrigt og jákvætt umhverfi fyrir börn og unglinga.
 

Náttúra Galapagos og menning Ekvador í Salnum - 9.10.2008

imageKynningar- og fræðslukvöld um einstæða náttúru Galapagos og menningu Ekvador verður í Salnum í kvöld, fimmtudaginn 9. október, kl. 20 á Suður-amerískri menningarhátíð.
 

Ekvador - suður-amerísk menningarhátíð sett - 6.10.2008

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Alecksey Mosquera, orkumálaráðherra Ekvador, Dorrit Moussaieff forsetafrú og Verenice Guayasamín, sýningarstjóri sýningarinnar í Gerðarsafni.Dansflokkurinn Jacchigua steig friðardansinn við setningu Ekvador - suður-amerískrar menningarhátíðar í Listasafni Kópavogs - Gerðarsafni í dag. Bæjarstjóri Kópavogs, Gunnar I. Birgisson, setti hátíðina, Oswaldo Munoz, ræðismaður Íslands í Ekvador, flutti snjallt ávarp og forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, opnaði sýninguna Ekvador að fornu og nýju, sem er yfirlitssýning listmuna og málverka frá 4000 f. Kr. til okkar daga.
 

Orkumálaráðherra Ekvador í heimsókn - 4.10.2008

Alecksey Mosquera, orkumálaráðherra Ekvador, ásamt Ómari Stefánssyni, formanni bæjarráðs, skoðar Íslensku sjávarútvegssýninguna.Ráðherra orkumála í Ekvador, Alecksey Mosquera, heimsótti Íslensku sjávarútvegssýninguna í Fífunni í dag en hann er á landinu í tilefni af ekvadorski menningarhátíð í Kópavogi 4.–12. október.

 

Hátíðin er hafin - 4.10.2008

Jacchigua dansflokkurinn á æfingu í Salnum.Ekvador - suður-amerísk menningarhátíð í Kópavogi verður formlega sett í Gerðarsafni á morgun, sunnudag, en þegar í dag hófust skrautsýningar dansflokksins Jacchigua (borið fram Hatsígúa) í Salnum. Myndin var tekin á æfingu í morgun.
 

Losun umframefnis á Kársnesi verður frestað - 4.10.2008

Horf í vestur út á Kársnes og yfir Fossvog.Bæjarráð Kópavogs hefur ákveðið að fresta losun umframefna á landfyllingu vestast á Kársnesi uns niðurstaða liggur fyrir um skipulag svæðisins. Jafnframt er áréttað að starfsemin sé innan ramma laga og skipulags.
 

Barnið komið heim - 3.10.2008

Starfsfólk mæðra- og ungbarnaverndar á Heilsugæslustöðinni í Hamraborg, Hvammi og Salahverfi á fundi með ÓB- ráðgjöf í sl. viku.ÓB-ráðgjöf býður upp á tveggja daga námskeið um foreldrahlutverkið sem hjónin og sálfræðingarnir John og Julie Gottman hönnuðu. Kópavogsbær kostar námskeiðið sem er gjaldfrjálst fyrir verðandi og nýorðna foreldra í Kópavogi.
 

Þurrkað mannshöfuð á Náttúrufræðistofunni - 3.10.2008

Þrír höfðingjar, Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, og sá í miðið var ættarhöfðingi og töframaður Suhar-ættbálksins í Ekvador.Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, buðu í dag 175 ára ættarhöfðingja og töframann Shuar-indíánaþjóðflokksins í Ekvador velkominn í Kópavog. Hann er heiðursgestur suður-amerísku menningarhátíðarinnar sem hefst um helgina og tekur á móti gestum í Náttúrufræðistofu Kópavogs.
 

Sjávarútvegssýningin opnuð í hvelli - 2.10.2008

Einar K. Guðfinsson sjávarútvegsráðherra hleypir af fallbyssu við setningu Íslensku sjávarútvegssýningarinnar 2008 í Kópavogi.Íslenska sjávarútvegssýningin árið 2008 var opnuð formlega í Smáraskóla í Kópavogi í morgun. Af því tilefni hleypti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra af 140 ára gamalli fallbyssu með þvílíkum hvelli að jörðin nötraði og þjófavarnarkerfi bifreiðanna á bílastæðinu vældu í einum kór.
 

Kópavogskirkja lýst bleik - 2.10.2008

Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson, Helgi Pétursson upplýsingafulltrúi OR, Sigurrós Þorgrímsdóttir, forseti bæjarstjórnar, Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, og Sigríður Snæbjörnsdóttir, formaður þess.Fyrri hluta október verður Kópavogskirkja lýst upp í bleikum lit í tilefni af árveknisátaki um brjóstakrabbamein. Sigurrós Þorgrímsdóttir, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, kveikti á lýsingunni í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 19.30.
 

Basar Kvenfélagasambands Kópavogs - 30.9.2008

Basar og tombóla Kvenfélagasambands Kópavogs verður haldinn laugardaginn 4. október kl.: 13:00–17:00 að Digranesvegi 12.
 

Fjölmenni á kynningarfundi um skipulag - 28.9.2008

Birgir Sigurðsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Kópavogs, kynnir skipulagið á Kársnesi í Kársnesskóla.Rúmlega 200 manns komu á kynningarfund í Kársnesskóla í fimmtudagskvöld um breytingu á svæðisskipulagi á Kársnesi.
 

Íslenska sjávarútvegssýningin í Kópavogi - 24.9.2008

Ákveðið hefur verið að auðkenna íslenskar sjávarafurðir sem unnar eru úr afla í íslenskri lögsögu og merkið vísar til íslensks uppruna afurðanna. Merkið verður kynnt á Íslensku sjávarútvegssýningunni í Fífunni og Smáranum sem stendur frá 2. til 4. október.

 

Uppselt á fyrstu Töfratónleikana í Salnum! - 22.9.2008

Miðum á stórviðburði starfsársins í Salnum, tónlistarhúsi Kópavogs, fækkar ört.Miðar seldust upp á tónleika hinnar heimsfrægu sópransöngkonu Inessu Galante í Salnum um helgina sem verður að teljast einn af stórviðburðum starfsársins. Miðum fer óðum fækkandi á aðra viðburði.
 

Ekvador - menningarhátíð 4.?12. október - 19.9.2008

Dansflokkurinn Jacchigua frá Ekvador skemmtir Íslendingum á suður-amerísku menningarhátíðinni Ekvador í Kópavogi.Ekvador verður í brennidepli á suður-amerískri menningarhátíð sem Kópavogsbær gengst fyrir vikuna 4.–12. október. Hátíðin er haldin í samstarfi við listamenn og menningarstofnanir í Ekvador auk innlendra aðila.
 

Vel sóttur íbúafundur um skipulag - 19.9.2008

Birgir Sigurðsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, útskýrir fyrir íbúum skipulag í Glaðheimum og Lindum IV.Liðlega 100 manns komu á kynningarfund skipulags- og umhverfissviðs Kópavogs í Smáraskóla í gærkvöld til að kynnast áformuðum skipulagsbreytingum í Glaðheimum og Lindum IV.
 

Hjóladagurinn 20. september - 18.9.2008

Á hjóladaginn 20. september hefur hjólalest á leið frá Hafnarfirði til Reykjavíkur viðkomu við Gerðarsafn í Kópavogi þar sem hægt er að slást í för og taka á áfangastað þátt í hápunkti dagskrár í tilefni af evrópskri samgönguviku.

 

Fjórir af hverjum tíu aka of hratt - 18.9.2008

Vöktun lögreglu með hraðamyndavél í dag, gær og fyrradag við Vatnsendaskóla, Smáraskóla og Salaskóla virðist staðfesta fyrri mælingar um að allt að því fjórir af hverjum tíu ökumönnum aki allt of hratt nálægt grunnskólum í Kópavogi.

 

Íslensk flundra í Kópavogslæk - 17.9.2008

Flundran sem veiddist í Kópavogslæk og hefur klakist út hér við land hefur verið til sýnis í Náttúrufræðistofu Kópavogs.Náttúrufræðistofu Kópavogs barst á dögunum flundra sem veiddist fyrir ofan tjörnina í Kópavogslæk. Er engum blöðum um það að fletta að hún hefur klakist úr hrygningu hér við land.
 

Boðað til kynningarfundar á fimmtudag - 15.9.2008

Upplýsingabæklingurinn Lindir IV - Byggð í mótun 1982-2008.Skipulags- og umhverfissvið Kópavogs boðar til kynningar á skipulagi fyrir Glaðheima og Skógarlind 2 (Lindir IV). Kynningin fer fram í Smáraskóla fimmtudaginn 18. september og hefst kl. 20.00. Jafnframt hefur verið gefinn út bæklingurinn Lindir IV - Byggð í mótun 1982–2008. (Smellið á myndina hér til hliðar).

 

Hraðakstur í nágrenni skóla - 15.9.2008

Hraðakstur virðist vera tíður i námunda við Hjallaskóla, Digranesskóla og Snælandsskóla ef álykta má út frá hraðamælingu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir og eftir hádegi í dag, 15. september.
 

Halla Tómasdóttir hlýtur jafnréttisviðurkenninguna 2008 - 10.9.2008

Halla Tómasdóttir, annar stofnenda Auðar Capital og starfandi stjórnarformaður, hlaut jafnréttisviðurkenningu Kópavogsbæjar fyrir frumkvöðlastarf og gott fordæmi kvenna á öllum aldri.Halla Tómasdóttir, annar stofnenda Auðar Capital og starfandi stjórnarformaður, hlaut jafnréttisviðurkenningu Kópavogsbæjar fyrir frumkvöðlastarf og gott fordæmi kvenna á öllum aldri.
 

Árleg jafnréttisviðurkenning 11. september - 9.9.2008

Tilkynnt verður í dag, fimmtudaginn 11. september, hver hlýtur jafnréttisviðurkenningu Kópavogsbæjar árið 2008. Afhendingin fer fram í Kórnum, sal bókasafns Kópavogs. Dagskráin hefst kl. 16 og tekur um klukkustund.
 

Síðsumarsganga í Guðmundarlund - 5.9.2008

Þátttakendur í umhverfisdegi umhverfisráðs Kópavogs á gönguför frá Heimsenda í Guðmundarlund.Fjölmennt var í síðsumarsgöngu umhverfisráðs Kópavogs í gær en gengið var undir leiðsögn fróðleiksmanna frá hesthúsahverfinu í Heimsenda upp í náttúruperluna Guðmundarlund.
 

Vetrarstarf Molans hefst - 4.9.2008

Molinn, ungmenna- og tómstundahús við Borgarholtið.Vetrarstarf Molans, menningar- og tómstundahúss, er að hefjast en hann tók til starfa á Kópavogsdögum. Molinn er samkomustaður með litlu kaffihúsi, fullkomnum sal til tónleikahalds, listagalleríi og fundaraðstöðu.
 

Tímamót í heimahjúkrun í Kópavogi - 4.9.2008

Frá undirritun þjónustusamningsins, frá vinstri Sigríður Pálmadóttir, hjúkrunarforstjóri Heilsugæslunnar Hamraborgar, Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, Svanhvít Jakobsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, og Gunnsteinn Sigurðsson, formaður félagsmálaráðs Kópavogs.Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, og Svanhvít Jakobsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, hafa undirritað þjónustusamning um að ráða félagsliða í fjórar nýjar stöður við heimahjúkrun í Kópavogi.
 

Hátíðartónleikar til heiðurs Þorkeli Sigurbjörnssyni - 4.9.2008

Þorkell Sigurbjörnsson tónskáldNýtt starfsár Salarins hefst með sérstökum hátíðartónleikum til heiðurs Þorkeli Sigurbjörnssyni tónskáldi sem nýverið varð sjötugur.
 

Frá Heimsenda í Guðmundarlund - 2.9.2008

Frá Guðmundarlundi, einni af náttúruperlum Kópavogs.Umhverfisráð Kópavogs stendur fyrir síðsumarsrölti til að kynna framtíðarskipulag og náttúrufar á svæðinu frá Heimsenda (hesthúsahverfinu) upp í Guðmundarlund fimmtudaginn 4. september næstkomandi kl. 17.30.

 

Breyttur útivistartími - 2.9.2008

Útivistartími barna- og ungmenna breyttist 1. september. Nú mega 12 ára börn og yngri vera úti til kl. 20 og 13 til 16 ára börn til kl. 22.
 

Salurinn 10 ára - 1.9.2008

Jónas Ingimundarson við flygilinn en hann býður til kvöldstundar í Salnum.Í tilefni af 10 ára afmæli Salarins býður Jónas Ingimundarson til kvöldstundar VIÐ SLAGHÖRPUNA Í SALNUM þriðjudagskvöldið 2. september kl. 20. Þar kynnir hann tónleikaröðina TÍBRÁ og komandi starfsár í Salnum með spili og spjalli. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
 

Um deiliskipulagsbreytingu í Lindahverfi - 30.8.2008

Mynd sem sýnir fyrirhugað skrifstofuhúsnæði Norvikur í umhverfi sínu.Íbúar í Lindahverfi í Kópavogi héldu fund um skipulagsmál á fimmtudagskvöld. Skipulagsyfirvöld í Kópavogi voru ekki höfð með í ráðum eða upplýst um fundinn. Íbúafundurinn sendi fjölmiðlum ályktun í 9 töluliðum og hefur svar við þeim sömuleiðis verið sent öllum fjölmiðlum. Auk þess hefur verið óskað eftir samráðsfundi með talsmanni íbúanna.
 

Fyrsta skóflustungan tekin að hjúkrunarrýmum fyrir aldraða - 29.8.2008

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri, fyrir hönd félags- og tryggingamálaráðherra, taka fyrstu skóflustunguna að hjúkrunarrýmum fyrir aldraða í Boðaþingi.Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og fulltrúi félags- og tryggingamálaráðherra, Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri, tóku fyrstu skóflustunguna að fyrri áfanga hjúkrunarheimilis fyrir aldraða í Boðaþingi í Kópavogi í morgun.
 

Námskeið fyrir starfsfólk dægradvalar - 26.8.2008

Starfsfólk dægradvalar við grunnskóla í Kópavogi á námskeiði hjá Þekkingarmiðlun.Grunnskólar Kópavogs héldu sameiginleg námskeið á starfsdögum í upphafi skólaárs fyrir starfsfólk dægradvalar.
 

Rekstrarsamningur gerður við Gerplu - 25.8.2008

Frá undirritun samnings Kópavogsbæjar og Gerplu um rekstur á aðstöðu félagsins í íþróttamiðstöðinni Versölum.Kópavogsbær og íþróttafélagið Gerpla hafa gert með sér rekstrarsamning um notkun, umsjón og þjónustu í íþróttahúsi og félagsaðstöðu í Íþróttamiðstöðinni Versölum. Samningurinn hefur í för með sér aukið sjálfstæði Gerplu sem stendur nú jafnfætis íþróttafélögunum HK og Breiðabliki hvað snertir rekstur íþróttamannvirkja.
 

Viðurkenningar umhverfisráðs 2008 - 21.8.2008

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri ásamt viðurkenningarhöfum og fleirum í Salnum.Ísalind 1–8 hefur verið valin gata ársins í Kópavogi. Götumyndin þykir einstaklega falleg og gróðursæl. Viðurkenningar umhverfisráðs og Kópavogsbæjar voru afhentar nú síðdegis.
 

Viðurkenning fyrir aðgengi hreyfihamlaðra - 21.8.2008

Ferlinefnd Kópavogsbæjar óskar eftir ábendingum um hönnuði, fyrirtæki eða þjónustuaðila í Kópavogi sem verðskulda viðurkenningu fyrir gott aðgengi fatlaðra.

 

Myndband um óperuhús - 20.8.2008

Hægt er að kynna sér með ítarlegum hætti vinningstillögu Arkþings ehf. að hönnun óperuhúss í Kópavogi á myndbandi sem sett hefur verið saman, teikningum og í greinargerð á vefsíðu um hönnunarsamkeppnina. Þar er einnig að finna tillögu ALARKS ehf. sem varð í 2. sæti.

Sérvefur um óperuhús
 

Sátt um breytingar á Nýbýlavegi - 18.8.2008

Tekist hefur sátt um breytingar á Nýbýlavegi í samræmi við tillögur bæjarráðs Kópavogs 12. júní sl. um færslu á veglínu í suður frá fjölbýlishúsi við Lund 1.
 

Samgöngunefnd Alþingis á kynningarfundi - 18.8.2008

Ólafur Bjarnason, samgöngustjóri Reykjavíkurborgar, greinir samgöngunefnd Alþingis frá helstu framkvæmdum og framtíðaráherslum í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu.Samgöngunefnd Alþingis átti í morgun fund um samgönguframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu með stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í bæjarstjórnarsal Kópavogs. Samgöngunefndin er nú í skoðunarferð með fulltrúum sveitarfélaganna um höfuðborgarsvæðið.
 

Arkþing vann hönnunarsamkeppni um óperuhús - 15.8.2008

Vinningstillaga Arkþings ehf. séð frá brúnni yfir gjána.Tillaga arkitektastofunnar Arkþings ehf. varð hlutskörpust í samkeppni um hönnun óperuhúss í Kópavogi. Dómnefnd samkeppninnar leggur til að leitað verði samstarfs við hönnuði Arkþings ehf. um þróun og úrvinnslu verkefnisins.
 

Tónlistarhátíð unga fólksins hlýtur viðurkenningu - 15.8.2008

Stjórn Tónlistarhátíðar unga fólksins.Tónlistarhátíð unga fólksins hlýtur viðurkenningu ársins 2008 úr styrktarsjóði Önnu Karólínu Nordal. Hátíðin, sem nú stendur yfir á Borgarholti í Kópavogi, hefur farið fram með miklum sóma.
 

Tónlistarhátíð unga fólksins - 5.8.2008

Tónlistarhús Kópavogs, Salurinn, á menningarhæðinni Borgarholti.Tónlistarhátíð unga fólksins verður haldin í fyrsta sinn hér á landi dagana 5. – 17. ágúst á Borgarholtinu í Kópavogi. Markmiðið með hátíðinni er að skapa vettvang þar sem tónlistarnemendur á hinum ýmsu stigum náms geta komið saman og lært af frábærum listamönnum.
 

Kópavogur tekur upp gæðastjórnunarkerfi - 25.7.2008

Bæjarráð Kópavogs ákvað í dag að ráða Árna Þór Hilmarsson í nýtt starf gæðastjóra hjá Kópavogsbæ. Gæðastjóra er falin umsjón með gæðastjórnunarkerfi og innleiðingu þess.
 

Breytingar á yfirstjórn Kópavogsbæjar - 25.7.2008

Bæjarráð Kópavogs ákvað í dag að gera breytingar á yfirstjórn Kópavogsbæjar sem fela meðal annars í sér að Anna Birna Snæbjörnsdóttir verður framkvæmdastjóri fræðslusviðs og Guðrún Pálsdóttir sviðsstjóri menningar- og tómstundamála.
 

Rokkhátíð Vinnuskólans í Kópavogi - 15.7.2008

Miðvikudaginn 16. júlí verður Rokkhátíð Vinnuskólans haldin á Hálsatorgi hjá Hamraborg. Hátíðin er frá kl 19.00 til 22.00. Hátíðin er öllum opin en við hvetjum sérstaklega starfsmenn Vinnuskólans til að koma og gera sér glaðan dag.
 

Orkumálaráðherra Ekvadors í heimsókn - 10.7.2008

Frá hægri Alecksey Mosquera, orkumálaráðherra Ekvadors, Istvan Hervás J., ráðgjafi hans, Karen Krik, eiginkona ráðherrans, Ásdís Elva Rögnvaldsdóttir, deildarsérfræðingur á orkumálaskrifstofu iðnaðarráðuneytisins, Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Linda Udengård, deildarstjóri menningarmála hjá Kópavogsbæ.Alecksey Mosquera, orkumálaráðherra Ekvadors, átti í dag fund með Gunnari I. Birgissyni bæjarstjóra á bæjarskrifstofum Kópavogs um ekvadoríska menningarhátíð í Kópavogi í haust.
 

Kynning á blandaðri byggð á Kársnesi - 9.7.2008

Skýringarmyndir voru hengdar upp á veggspjöldum, sýndar á sjónvarpsskjám og varpað upp á risatjöld á kynningarfundinum.Á milli þrjú og fjögur hundruð manns mættu á kynningarfund hjá skipulags- og umhverfissviði Kópavogsbæjar í gærkvöld um skipulagshugmyndir á Kársnesi.
 

Verður framtíðin öðruvísi á Kársnesi? - 4.7.2008

Skipulags- og umhverfissvið Kópavogs kynnir hugmyndir um blandaða byggð á Kársnesi þriðjudaginn 8. júlí næstkomandi. Kynningin fer fram í nýrri skemmu að Vesturvör 32b og hefst kl. 20.
 

Sumarfundur leikskólastjóra og starfsmanna leikskólaskrifstofu - 4.7.2008

Árlegur sumarfundur leikskólastjóra og starfsmanna leikskólaskrifstofu var haldinn þriðjudaginn 24 júní s.l., að þessu sinni voru aðstoðarleikskólastjórar með. Sú hefð hefur skapast að halda sumarfundinn með öðru sniði en aðra fundi ársins, t.d. með heimsóknum í hinar ýmsu menningarstofnanir.
 

Útsvarsbjallan afhent bæjarstjóra - 27.6.2008

Sigurliðið í Útsvari, spurningakeppni Sjónvarpsins, afhendir bæjarstjóranum verðlaunin til varðveislu.Sigurlið Kópavogs í Útsvari, spurningaleik Sjónvarpsins, afhenti í gær Gunnari I. Birgissyni bæjarstjóra til tímabundinnar varðveislu bjölluna sem liðið fékk að launum.
 

Nýtt eftirlitsmyndavélakerfi í Sundlaug Kópavogs - 24.6.2008

Hljóðmerki gellur og staðsetning þess sem þarf á hjálp að halda kemur fram á tölvuskjám í hinu nýja eftirlitskerfi Sundlaugar Kópavogs.Starfsmenn Sundlaugar Kópavogs og sérfræðingar norska fyrirtækisins Davo AS eru að ljúka uppsetningu og fínstillingu á eftirlitsmyndavélakerfi sem nemur hreyfingarleysi líkama á sundlaugarbotni.
 

Skólakór Kársness hlaut gullverðlaun - 23.6.2008

Skólakór Kársness í Pétursborg í Rússlandi þar sem hann vann til gull- og silfurverðlauna.Stúlkurnar í skólakór Kársness hlutu gullverðlaun í flokknum samkynjaraddir í St. Petersburgh Grand Prix, alþjóðlegri kórakeppni í Pétursborg í Rússlandi.
 

Lögbann við framkvæmdum við Nýbýlaveg - 23.6.2008

Sýslumaðurinn í Kópavogi hefur hafnað kröfu húsfélagsins í Lundi 1 um að loka fyrir umferð til vesturs um hringtorg á gatnamótum Nýbýlavegar og Lundar í Kópavogi en fallist á kröfu um stöðvun frekari framkvæmda við veginn á um 150 m kafla næst húsinu sem afmarkast að austan af vesturenda trjálundar og að vestan af suðausturhorni bensínstöðvarlóðar.
 

Metaðsókn á þjóðhátíðardagskrá - 18.6.2008

Aldrei fyrr hafa jafnmargir komið saman á Rútstúni í Kópavogi 17. júní og í þetta sinn. Talið er að 16 þúsund manns hafi notið fjölskylduskemmtunarinnar, leiktækja, söng- og skemmtiatriða og þjóðhátíðarávarpa.
 

Frestur til tilnefninga framlengdur - 13.6.2008

Frestur til að skila tilnefningum vegna árlegrar jafnréttisviðurkenningar Kópavogsbæjar hefur verið framlengdur til 23. júní næstkomandi.
 

Tillögur bæjarráðs vegna Lundar 1 - 13.6.2008

Hönnunarteikning sem sýnir afstöðu fjölbýlishússins að Lundarbraut 1 og hringtorgs á Nýbýlavegi.Bæjarráð Kópavogs hefur lagt til við Vegagerðina og Byggingarfélag Gylfa og Gunnars (BYGG) að gera ákveðnar breytingar á framkvæmdum í Lundi og við Nýbýlaveg í því skyni að auka bilið milli vegarins og fjölbýlishúss við Lund númer 1.
 

Dagskrá 17. júní í Kópavogi - 12.6.2008

Mikið verður um dýrðir í Kópavogi 17. júní næstkomandi þegar þjóðhátíðardegi verður fagnað og fánar dregnir að húni vítt og breitt um bæinn.
 

Höndlaðu hamingjuna á unglingsárunum - 12.6.2008

Una María Óskarsdóttir, formaður forvarnanefndar Kópavogs, Björn Kristján Arnarsson, þýðandi bókarinnar, Guðrún Pétursdóttir, skólastjóri Kársnesskóla, og Arnar Ævarsson forvarnafulltrúi Kópavogsbæjar.Forvarnanefnd Kópavogsbæjar hefur afhent grunnskólum Kópavogs bekkjarsett af bókinni „Höndlaðu hamingjuna á unglingsárunum“. Bækurnar eru eign hvers skóla en eiga að nægja fyrir einn bekk í einu.
 

BUGL fær verðlaunafé að gjöf - 10.6.2008

Sigurrós Þorgrímsdóttir, formaður lista- og menningarráðs, afhenti Unni Hebu Steingrímsdóttur, deildarstjóra á BUGL, 100 þúsund krónur að gjöf.Lista- og menningarráð Kópavogs afhenti Barna- og unglingageðdeild 100 þúsund krónur að gjöf í liðinni viku. Um er að ræða verðlaunaféð úr samkeppni um nafn á nýja ungmennahúsið í Kópavogi sem enginn krafðist.
 

Djass- og blúshátíðin heppnaðist vel - 10.6.2008

Halldór Bragason og félagar á jazz- og blúshátíð Kópavogs í Salnum„Djass- og blúshátíð Kópavogs er komin til að vera,“ segir Björn Thoroddsen tónlistarmaður, spurður um reynsluna af tónlistarveislunni 6.–8. júní sem hann skipulagði ásamt Jóhanni Ísberg.
 

Aðstaða siglingaklúbbs tilbúin næsta vor - 9.6.2008

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri tók á föstudag fyrstu skóflustunguna að nýrri félagsaðstöðu Siglingafélagsins Ýmiss og Siglingaklúbbsins Kópaness við Vesturvör í Kópavogi.
 

Hvammshús fékk Hvatningarverðlaunin 2008 - 9.6.2008

Tómas Jónsson, sérkennslufulltrúi, Birgir Svan Símonarson, deildarstjóri Hvammshúss, og Andrés Pétursson, formaður skólanefndar.Skólanefnd Kópavogs afhenti Hvammshúsi Hvatningarverðlaunin árið 2008 fyrir gott og skapandi skólastarf undanfarinn áratug.
 

Jazz- og blúshátíð í Kópavogi hafin - 6.6.2008

Andrea Gylfadóttir, Björn Thoroddsen, listrænn stjórnandi Jazz- og blúshátíðarinnar, og Jón Rafnsson skemmtu eldri borgurum og öðrum gestum í Gullsmára við upphaf hátíðarinnar.Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri setti í dag Jazz- og blúshátíð Kópavogs í Gullsmára þar sem fjöldi fólks var saman kominn til að hlýða á Andreu Gylfadóttur, Björn Thoroddsen og Jón Rafnsson flytja þekkt sönglög í jazzaðri útsetningu.

 

Fjölskyldan í fókus - ljósmyndasamkeppni - 6.6.2008

SAMAN hópurinn stendur fyrir ljósmyndasamkeppni til 8. ágúst og vegleg verðlaun verða í boði.
 

Vordagar í Vatnsendaskóla - 4.6.2008

Nemendur Vatnsendaskóla fóru meðal annars í kajakróður út á Elliðavatn á Vordögum skólans.Vordagar voru haldnir í gær í Vatnsendaskóla þar sem börnin gengu á fjöll, gistu í skálum, fóru í hjólaferðir og sundferðir, gróðursettu og grilluðu. En kajakferðir út á Elliðavatn mæltust einna best fyrir.

 

Kópavogsbær tekur 4 milljarða króna evrulán - 3.6.2008

Kópavogsbær hefur tekið 35.000.000 evrur að láni hjá Stokkhólmsútibúi hins franska Dexia Bank. Það samsvarar liðlega fjórum milljörðum íslenskra króna. Tilgangurinn er að greiða upp eldri lán sem ekki eru eins hagstæð.
 

Um 2000 manns á Bryggjudegi - 3.6.2008

Metaðsókn varð að Bryggjudegi á laugardaginn var. Íbúum Bryggjuhúsa telst til að um 2000 manns hafi notið dagskrárinnar á hafnarsvæðinu þrátt fyrir svolitla hafgolu.
 

Hver að verða síðastur að tryggja sér miða - 3.6.2008

Tónlistarunnendur eru hvattir til að kynna sér vandlega þá fjölbreyttu viðburði sem framundan eru í Salnum og ná sér í miða fyrr heldur en seinna. Lokað verður vegna sumarleyfa í júlí og byrjun ágúst.
 

Jazz- og blueshátíð í Kópavogi - 2.6.2008

Salurinní Tónlistarhúsi Kópavogs verður vettvangur Jazz- og blueshátíðarinnar auk AMOKKA.Dagana 6. – 8. júní verður haldin jazz- og blueshátíð í Kópavogi sem ráðgert er að verði árlegur viðburður. Unnendur þessarar tónlistar fá færi á að njóta fremstu listamanna á þessu sviði í Salnum á tvennum tónleikum auk þess sem eru barnatónleikar í AMOKKA.
 

Séra Gunnar sterkasti prestur heims - 2.6.2008

Sterkasti prestur heims, séra Gunnar SigurjónssonSéra Gunnar Sigurjónsson, sóknarprestur í Digranessókn, varði titil sinn „sterkasti prestur heims“ í keppni í lyftingum við finnskan og danskan prest á föstudag.
 

Jafnréttisfrömuður óskast - 31.5.2008

Jafnréttisnefnd Kópavogsbæjar auglýsir eftir tilnefningum vegna árlegrar jafnréttisviðurkenningar. Frestur er til og með 10. júní næstkomandi.
 

Bryggjudagur laugardaginn 31. maí - 30.5.2008

Auglýsing um Bryggjudag laugardaginn 31. maí 2008.Fjölskylduskemmtunin Bryggjudagur verður haldin í þriðja sinn á morgun, laugardaginn 31. maí, á Bakkabraut. Boðið verður upp á fjölbreytni í mat og listum öllum að kostnaðarlausu.
 

Vorsýningar Gerplu um helgina - 30.5.2008

Vorsýningar Gerplu verða glæsilegar um helgina. Á annað þúsund barna og ungmenna koma fram, þar á meðal Íslands- og bikarmeistarar í áhalda- og hópfimleikum.
 

Fyrsti lágvöruverðskjarninn á Íslandi opnaður - 29.5.2008

Jón Helgi Guðmundsson, Anna Bjarnadóttir og Gunnar I. Birgisson klippa á borðann til marks um opnun verslunarkjarnans Linda í Kópavogi.Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri ásamt Jóni Helga Guðmundssyni forstjóra og móður hans Önnu Bjarnadóttur klipptu á borða til marks um opnun nýja verslunarkjarnans Linda í Kópavogi í dag.
 

Starfsemi skólagarða Kópavogs að hefjast - 29.5.2008

Skráning er hafin á vefsíðu Skólagarða Kópavogs en starfsemin hefst 2. júní 2008.Starfsemi skólagarða Kópavogs sumarið 2008 hefst á mánudaginn 2. júní en innritun er hafin á vefsíðu þeirra. Opið verður fyrstu vikuna kl. 15–19 og munu krakkarnir setja niður grænmeti þá.
 

Íslenskukennsla fyrir erlent starfsfólk - 29.5.2008

Þátttakendur í íslenskunámskeiði fyrir starfsfólk Kópavogsbæjar með annað móðurmál en íslensku.Níu starfsmenn Kópavogsbæjar með annað móðurmál en íslensku hafa lokið byrjendanámskeiði í íslensku.
 

Dansíþróttafélag Kópavogs fær rekstrarstyrk - 29.5.2008

Ómar Stefánsson, Ellen Dröfn Björnsdóttir, Gunnar I. Birgisson og Ásthildur Helgadóttir undirrituðu samninginn.Kópavogsbær hefur gert samning við Dansíþróttafélag Kópavogs um árlegan 3 milljóna króna rekstrarstyrk. Forsvarsmenn dansíþróttafélagsins

 

Kópavogur sker upp herör gegn veggjakroti - 28.5.2008

Sérstakur vinnuflokkur hefur verið settur á fót hjá áhaldahúsinu til að gera átak í hreinsun á veggjakroti og viðlíka óþrifnaði.Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt að veita allt að 20 milljónum króna á þessu ári til að hreinsa veggjakrot og annan viðlíka óþrifnað af mannvirkjum í eigu bæjarfélagsins.
 

Umsóknarfrestur í Vinnuskóla Kópavogs til 1. júní - 28.5.2008

Skilafrestur umsókna í Vinnuskóla Kópavogs hefur verið framlengdur til 1. júní. Aðeins þeir sem skila umsóknum fyrir þann tíma geta búist við því að fá að hefja störf 9. júní.
 

Opið hús hjá björgunarsveitinni á Bryggjudegi - 28.5.2008

Opið hús verður hjá Hjálparsveit skáta í Kópavogi við Kópavogshöfn næstkomandi laugardag, 31. maí, í tengslum við Bryggjudaginn.
 

Salaskóli fær Grænfánann í þriðja sinn - 27.5.2008

Frá vinstri: Heiðrún Guðmundsdóttir, Landvernd, Bergur Sigurðsson, Landvernd, Hulda Björnsdóttir, Salaskóla, Gunnar Birgisson bæjarstjóri og Hafsteinn Karlsson, skólastjóri Salaskóla, með grænfánann.Salaskóli fékk afhentan Grænfánann í þriðja skiptið í dag. Afhendingin fór fram á opnu húsi skólans þar sem sýndur var afrakstur vetrarins. Auk þess tóku bæjarstjórinn og einn af heimsmeisturum Salaskóla í skák eina bröndótta til hátíðabrigða.
 

Kópavogsbær styrkir átakið ?Á allra vörum? - 27.5.2008

Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs Kópavogs, afhendir Gróu Ásgeirsdóttur hjá ?Á allra vörum? fjárstyrk Kópavogsbæjar.Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, afhentu krabbameinsátakinu „Á allra vörum“ 500 þúsund króna fjárstyrk fyrir hönd Kópavogsbæjar í Listasafni Kópavogs – Gerðarsafni á sunnudag.
 

Bryggjudagur á laugardag - 26.5.2008

Auglýsing um Bryggjudag laugardaginn 31. maí 2008.Fjölskylduskemmtunin Bryggjudagur verður haldin í þriðja sinn laugardaginn 31. maí á Bakkabraut. Boðið verður upp á fjölbreytni í mat og listum öllum að kostnaðarlausu.
 

?Á allra vörum? í Gerðarsafni á sunnudag - 23.5.2008

Stuðningssamkoma átaksins „Á allra vörum“ til stuðnings Krabbameinsfélagi Íslands verður haldin í Listasafni Kópavogs - Gerðarsafni á sunnudaginn kl. 15–17. Á samkomunni verður forsvarsmönnum átaksins afhentur veglegur styrkur frá Kópavogsbæ.
 

Jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum - 22.5.2008

Þróunarverkefninu Jafnréttisfræðsla í skólum ýtt úr vör í leikskólanum Hörðuvöllum í Hafnarfirði.Þróunarverkefninu Jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum var ýtt úr vör í dag með undirritun samkomulags milli félags- og tryggingamálaráðherra, fimm sveitarfélaga, þar á meðal Kópavogs, og Jafnréttisstofu.
 

Kópavogsbær styrkir Sunnuhlíð - 22.5.2008

Sæmundur Alfreðsson, stjórnarmaður í Sunnuhlíð, Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, Gunnsteinn Sigurðsson, formaður félagsmálaráðs, og Jóhann Árnason, framkvæmdastjóri Sunnuhlíðar.Kópavogsbær styrkir hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð með sérstakri tímabundinni fjárveitingu til að gera heimilinu kleift að ráða í ómannaðar stöður og auka þjónustuna. Auk þess hefur verið skrifað undir samkomulag um samstarf varðandi vistun einstaklinga af Roðasölum sem er sambýli og dagþjálfun fyrir heilabilaða í Kópavogi.
 

Íkveikjusprengja í grunni íþróttahúss HK - 22.5.2008

50 kílóa flugvélasprengja frá seinni heimsstyrjöld fannst við byggingaframkvæmdir í Fagralundi í gær. Ljósmynd: Landhelgisgæsla ÍslandsFlugvélasprengja úr seinni heimsstyrjöld fannst þegar verið var að grafa fyrir grunni að nýju íþróttahúsi og félagsaðstöðu HK í Fagralundi skömmu eftir hádegi í gær. Lögregla lokaði af stórt svæði umhverfis sprengjuna í varúðarskyni og sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslu Íslands gerðu hana óvirka.
 

Fyrsta skóflustungan að nýju íþróttahúsi HK - 19.5.2008

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri tekur fyrstu skóflustunguna að íþróttamannvirki HK í Fagralundi.Framkvæmdir eru hafnar við byggingu íþróttahúss og félagsaðstöðu HK í Fagralundi í Fossvogsdal. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, tók fyrstu skóflustunguna að íþróttamannvirkinu og pantaði við það tækifæri Íslandsmeistaratitla í samræmi við aðstöðuna.
 

Dagforeldrar í Kópavogi fá fjárhagslegan styrk - 15.5.2008

Félagsmálaráð Kópavogs hefur samþykkt einróma að veita dagforeldrum sem starfa í bæjarfélaginu aðstöðustyrk að fjárhæð kr. 100 þúsund með því skilyrði að þeir starfi í að minnsta kosti eitt ár.
 

Æskulýðshátíð á 50 ára afmæli ÍTK - 15.5.2008

Í tilefni af því að 50 ár eru liðin frá stofnun æskulýðsráðs í Kópavogi, sem nú er ÍTK (íþrótta- og tómstundaráð Kópavogs), verður haldin æskulýðshátíð 16. og 17. maí næstkomandi.
 

Ný mannvirki Sundlaugar Kópavogs opnuð - 12.5.2008

Fjölmenni var við opnun nýrra sundlaugarmannvirkja í Sundlaug Kópavogs 11. maí 2008.Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra opnaði ný sundlaugarmannvirki í Sundlaug Kópavogs við Borgarholtsbraut við hátíðlega athöfn í gær. Þar með lauk Kópavogsdögum, menningarhátíð Kópavogsbæjar, sem staðið hefur frá 3. maí.
 

Heiðurslistamaður Kópavogs árið 2008 - 10.5.2008

Sigurrós Þorgrímsdóttir, Stefán Hilmarsson og Gunnar I. Birgisson við útnefningu á heiðurslistamanni Kópavogs 2008.Stefán Hilmarsson söngvari var kjörinn heiðurslistamaður Kópavogsbæjar fyrir árið 2008.
 

Áhorfendastúkan við Kópavogsvöll opnuð - 10.5.2008

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri klipptu á borðann og opnuðu stúkuna við Kópavogsvöll.Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, opnuðu formlega nýju áhorfendastúkuna við Kópavogsvöll við hátíðlega athöfn á Kópavogsdögum í dag.
 

Sigur í Útsvari - 10.5.2008

Sigurlið Kópavogs í Útsvari.Kópavogur fór með sigur af hólmi í úrslitaviðureign spurningakeppni sveitarfélaganna Útsvari sem fram fór í Sjónvarpinu í kvöld.
 

Heiðurslistamaður Kópavogs 2008 - 8.5.2008

Baltasar Samper var kjörinn heiðurslistamaður Kópavogs fyrir árið 2007; hér er hann ásamt Gunnari I. Birgissyni og Sigurrósu Þorgrímsdóttur.Kjör heiðurslistamanns Kópavogs fyrir árið 2008 verður tilkynnt á hátíðardagskrá lista- og menningarráðs Kópavogsbæjar í Salnum á morgun, föstudaginn 9. maí, kl. 17.00 en hún stendur til kl. 18.00. Allir eru velkomnir.
 

Formleg opnun stúkunnar á Kópavogsvelli - 8.5.2008

Menntamálaráðherra opnar stúkuna á Kópavogsvelli 9. maí kl. 15.00.Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra opnar formlega nýju áhorfendastúkuna við Kópavogsvöll við hátíðlega athöfn á Kópavogsdögum á morgun, föstudaginn 9. maí, kl. 15.00.
 

Veldur hlýnun Elliðavatns fækkun bleikju? - 8.5.2008

Sérfræðingar telja að hlýnun Elliðavatns vegna hækkandi lofthita hafi áhrif á viðkomu bleikju.Fyrirlestur í Náttúrufræðistofu um hugsanleg tengsl hlýnunar í Elliðavatni og fækkunar bleikju í afla veiðimanna er meðal dagskráratriða á Kópavogsdögum sem vakið hafa verðskuldaða athygli. Í gær var svo annar forvitnilegur fyrirlestur, í það sinn um Þríhnúkagíg.
 

Kópavogsdagar fyrir alla landsmenn - 6.5.2008

Sigurrós Þorgrímsdóttir, formaður lista- og menningaráðs Kópavogsbæjar, setti Kópavogsdaga 2008 í Salnum laugardaginn 3. maí.„Það er von okkar að Kópavogsdagar veiti íbúum bæjarins tækifæri til að kynnast bænum sínum og þeirri fjölbreyttu starfsemi sem fram fer í stofnunum bæjarins betur,“ sagði Sigurrós Þorgrímsdóttir, formaður lista- og menningarráðs Kópavogs, þegar hún setti Kópavogsdaga 2008.
 

Ungmennahúsið heitir Molinn - 5.5.2008

Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, og Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri opna ungmennahúsið Molann.Nýtt ungmennahús í Kópavogi hefur hlotið nafnið Molinn en það var opnað á setningardegi Kópavogsdaga, menningarhátíðar í Kópavogi, laugardaginn 3. maí síðastliðinn við hátíðlega athöfn.
 

Sundlaug Kópavogs lokuð í viku - 5.5.2008

Framkvæmdir í Sundlaug Kópavogs.Vegna framkvæmda við uppsetningu á öryggiskerfi í Sundlaug Kópavogs verður laugin lokuð í vikutíma, nánar tiltekið frá mánudeginum 5. maí til mánudagsins 12. maí.
 

Kópavogsdagar 3.?11. maí - 30.4.2008

Kópavogsdagar 2008 hefjast 3. maí og lýkur 11. maí.Kópavogsdagar hefjast laugardaginn 3. maí. Þá „blásum við í lúðra og bjóðum til fjölbreyttrar menningarveislu í söfnum, á Listatúni og Hálsatorgi,“ segir Sigurrós Þorgrímsdóttir, formaður lista- og menningarráðs.

 

Vorhreinsun 2008 - 27.4.2008

Árviss vorhreinsun í Kópavogi hefst mánudaginn 28. apríl og stendur til 7. maí. Framkvæmdadeild Kópavogs hefur látið dreifa bæklingi í öll hús í Kópavogi með upplýsingum um þá þjónustu sem veitt er í íbúðarhverfum bæjarins.

 

Grænfáninn blaktir yfir Álfaheiði - 25.4.2008

Leikskólinn Álfaheiði uppfyllir skilyrði hins alþjóðlega merkis Grænfánans.Grænfánanum var flaggað á moltuhátíð í leikskólanum Álfaheiði í dag, á degi umhverfisins. Fulltrúar Landverndar afhentu leikskólanum fánann sem er alþjóðlegt merki um gott umhverfisstarf og menntun í skólum.
 

Áfram traustur rekstur Kópavogsbæjar - 23.4.2008

Fyrsti bæjarstjórnarfundurinn í nýjum fundarsal á 1. hæð bæjarskrifstofanna að Fannborg 2.Ársreikningur Kópavogsbæjar fyrir árið 2007 sýnir meiri rekstrarafgang en gert var ráð fyrir í endurskoðaðri fjárhagsáætlun, þrátt fyrir meiri framkvæmdaumsvif en dæmi eru um í meira en 50 ára sögu bæjarins.

 

BEST stærðfræðikeppnin í Kópavogi - 22.4.2008

Keppendur Digranesskóla reiknuðu út lengd ársframleiðslu af garni með hliðsjón af fjarlægðinni til tunglsins.Lokakeppni íslenskra grunnskóla í BEST stærðfræðikeppninni (sem áður hét KappAbel) er haldin í Kópavogi í dag og á morgun, 22. og 23. apríl. Þema keppninnar 2007–2008 er „Stærðfræði og dýr“.
 

Guðgeir Eyjólfsson skipaður sýslumaður í Kópavogi - 22.4.2008

Guðgeir Eyjólfsson sýslumaður.Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað Guðgeir Eyjólfsson, sýslumann í Keflavík, til að vera sýslumaður í Kópavogi frá og með 1. júní 2008.
 

Foreldrafræðsla - 21.4.2008

Í foreldrafræðslunni í grunnskólum Kópavogs er lögð áhersla á jákvæðar forvarnir. (Mynd: Víglundur Jarl Þórsson)Fræðsla fyrir forráðamenn barna í 7. bekk um jákvæðar forvarnir fer fram í þremur grunnskólum Kópavogsbæjar á morgun og hinn daginn. Fundirnir eru fræðandi og skemmtilegir og fjalla um málefni sem kemur öllum foreldrum við.
 

Stjórnendanám í þágu leikskóla Kópavogs - 18.4.2008

Eyþór Eðvarðsson, leiðbeinandi hjá Þekkingarmiðlun, kynnir stjórnendanámskeiðið fyrir leikskólastjórum og aðstoðarleikskólastjórum í Gerðarsafni.Kópavogsbær býður leikskólastjórum og aðstoðarleikskólastjórum í leikskólum í rekstri bæjarins upp á stjórnendanám til að efla fjárhagslegt og faglegt sjálfstæði leikskólastjóra í daglegum rekstri.
 

Sumardagurinn fyrsti - 17.4.2008

Fánaganga skáta sumardaginn fyrsta í fyrra.Nú styttist í sumardaginn fyrsta, 24. apríl, og að gömlum og góðum sið verður sumri fagnað með skrúðgöngu frá Digraneskirkju og hátíðahöldum í Smáranum fyrir alla fjölskylduna.
 

Kópavogsbær á stórsýningunni Verk og vit - 16.4.2008

Kópavogsbær tekur þátt í stórsýningunni Verk og vit 2008 og dreifir upplýsingum fyrir kaupendur fasteigna í bænum, einkum íbúðakaupendur. Um er að ræða kort af bæjarhverfum með staðsetningu lóða og húsnúmerum en einnig margvíslegri þjónustu í hverfunum, útivistarmöguleikum og tengingum við önnur hverfi.
 

Fífuhvammsvegur lokaður næstu tvær nætur - 15.4.2008

Tölvuteikning af brúnni sem verið að steypa.Lokað verður fyrir umferð um Fífuhvammsveg í Kópavogi milli Reykjanesbrautar og Dalvegar kl. 19.00 í kvöld, þriðjudaginn 15. apríl, til kl. 9.00 í fyrramálið og aftur kl. 19.00 annað kvöld, miðvikudaginn 16. apríl, til kl. 9.00 morguninn eftir vegna steypuframkvæmda á brú við Smáratorg.
 

Ábendingar um óperuhús í Kópavogi - 11.4.2008

Menningarhæðin í Kópavogi.Unnt er að koma ábendingum og athugasemdum um tillögurnar í hönnunarsamkeppni um óperuhús í Kópavogi á framfæri með einföldum hætti á sérstakri vefsíðu um niðurstöðu dómnefndar. Vísað er á síðuna á heimasíðu Kópavogsbæjar og Íslensku óperunnar.
 

KappAbel í Kópavogi - 11.4.2008

Niels Henrik Abel stærðfræðingur (1802-1829) sem KappAbel stærðfræðikeppnin er kennd við.Lokakeppni íslenskra grunnskóla í norrænu KappAbel stærðfræðikeppninni verður haldin í Kópavogi dagana 22.–23. apríl næstkomandi. Þema keppninnar 2007–2008 er stærðfræði og dýr.
 

?... allir hinir mega það ...? - 11.4.2008

Á forvarnarfundunum í grunnskólum Kópavogs er meðal annars sýnd heimildarmynd um Jónsa í hljómsveitinni Í svörtum fötum.Fræðandi og skemmtilegir fundir um jákvæðar forvarnir eru haldnir í öllum grunnskólum Kópavogsbæjar fyrir forráðamenn barna í 7. bekk.
 

Nafn óskast á nýtt ungmennahús - 10.4.2008

Tölvuteikning af ungmennahúsinu.Nýja Menningar- og tómstundamiðstöðin fyrir ungt fólk verður opnuð á vordögum og í tilefni af því hefur verið efnt til nafnasamkeppni.

 

Sextíu og níu bíður hraðasekt - 10.4.2008

Átak lögreglunnar gegn hraðakstri í Kópavogi er hafið. Af hraðamælingum lögreglu til þessa að dæma ekur þriðjungur ökumanna svo hratt eftir Kársnesbraut að þeir geti átt von á kæru en hins vegar virðist ástandið vera gott á Borgarholtsbraut.
 

Skapandi sumarstörf fyrir ungt fólk - 10.4.2008

Í sumar verður ungu fólki á aldrinum 18–24 ára gefinn kostur á að vinna að skapandi verkefnum í Kópavogi.
 

Kópavogur í topp tíu á Jafnréttisvoginni - 9.4.2008

Merki Evrópuverkefnisins Tea for two sem á að gera jafnrétti í sveitarfélögum sýnilegt.Kópavogur er í níunda sæti á lista sem sýnir jafnrétti kynjanna í 79 sveitarfélögum á Íslandi samkvæmt niðurstöðum Jafnréttisvogarinnar.
 

Tvær tillögur að óperuhúsi í framhaldskeppni - 9.4.2008

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri ávarpaði fjölmenni við kynningu í Salnum á niðurstöðu dómnefndar í hönnunarsamkeppni um óperuhús í Kópavogi.Dómnefnd í hönnunarsamkeppni um óperuhús í Kópavogi þótti engin þriggja tillagna uppfylla markmið keppninnar nægjanlega til að til að unnt yrði á þessu stigi að velja eina þeirra til útfærslu. Tveimur keppendum var gefinn kostur á að vinna tillögur sínar áfram í framhaldskeppni.

 

Niðurstöður hönnunarsamkeppni um óperuhús - 8.4.2008

Óperudómnefndin að störfum ásamt ráðgjöfum.Á morgun, miðvikudaginn 9. apríl kl. 14, kynnir undirbúningsnefnd að byggingu óperuhúss í Kópavogi niðurstöðu dómnefndar í hönnunarsamkeppni um mannvirkið og framlagðar hugmyndir keppendanna. Kynningin fer fram í fordyri Salarins.
 

Stóra upplestrarkeppnin - 8.4.2008

Keppendur í upplestrarkeppninni í Salnum, sigurvegarinn fremst fyrir miðju.Sigurvegari í stóru upplestrarkeppninni að þessu sinni varð Kolbeinn Logi Ægisson í Kársnesskóla. Keppnin fór fram í Salnum í gær, 7. apríl.
 

Lágur þrýstingur á heitu vatni - 5.4.2008

Vegna bilunar, sem truflar rekstur Nesjavallavirkjunar, hefur þrýstingur á heitu vatni fallið sums staðar á höfuðborgarsvæðinu og gætir þess enn í þeim hlutum Kópavogs sem hæst standa. Búist er við að fullum þrýstingi verði náð mjög fljótlega.
 

Sýningin Sumar 2008 opnuð í Fífunni - 4.4.2008

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra Sýningin Sumar 2008 var opnuð í Fífunni síðdegis í dag en hún stendur fram á sunnudag. Þetta er sjöunda árið í röð sem sýningin er haldin. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri fylgdu henni úr hlaði með ávarpsorðum.
 

Leikskólinn Furugrund 30 ára - 4.4.2008

Krakkar úr leikskólanum Furugrund að leik.Leikskólinn Furugrund fagnar 30 ára starfsafmæli sínu þann 8. apríl næstkomandi. Í tilefni afmælisins verður opið hús og sýning á skapandi vinnu barnanna í leikskólanum. Sérstök afmælishátíð er kl. 14.30.
 

Heilbrigðisráðherra heimsækir Sunnuhlíð - 31.3.2008

Frá heimsókn í Sunnuhlíð: Jóhann Árnason framkvæmdastjóri, Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra, Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, og Guðjón Magnússon, formaður stjórnar Sunnuhlíðar.Stjórn Sunnuhlíðar, hjúkrunarheimilis aldraðra í Kópavogi, bauð Guðlaugi Þór Þórðarsyni, heilbrigðisráðherra, í heimsókn á föstudag og enn fremur Sigurrósu Þorgrímsdóttur, forseta bæjarstjórnar Kópavogs, og Ómari Stefánssyni, formanni bæjarráðs. Meðal annars var rætt um stækkun hjúkrunarheimilisins.
 

Kópavogur leggur Akranes að velli - 28.3.2008

Keppnislið Kópavogs í spurningakeppni Sjónvarpsins Útsvari.Sigurganga liðs Kópavogs í spurningakeppninni Útsvari í Sjónvarpinu heldur áfram. Í kvöld lagði það lið Akraness að velli með 88 stigum gegn 48.

 

Öryggisheimsóknir til eldri borgara - 28.3.2008

Frá blaðamannafundi um öryggisheimsóknirnar, Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, fremstur, næstur honum Gunnar I. Birigsson bæjarstjóri, þá Dagbjört H. Kristinsdóttir frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu og loks Svanhildur Þengilsdóttir frá Félagsþjónustu Kópavogs.Kópavogsbær og Slysavarnafélagið Landsbjörg hafa í samstarfi við Securitas tekið út fjölmarga öryggisþætti og gert úrbætur á þeim heimilum eldri borgara í Kópavogi sem slíka öryggisskoðun þáðu. Jafnframt var metið hvort viðkomandi væru einmana eða byggju við slæmar aðstæður og þörfnuðust aðstoðar félagsmálayfirvalda.
 

Kynningarfundur um Vatnsendahlíð - 27.3.2008

Líkan af skipulagi í Vatnsendahlíð.Breyting á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins vegna Vatnsendahlíðar verður kynnt í Lindarskóla í kvöld, fimmtudaginn 27. mars, kl. 19.30. Allir eru velkomnir.
 

Sumarstörf 2008 ? opnað hefur verið fyrir umsóknir - 27.3.2008

Sumarstörf 2008Byrjað er að taka við umsóknum um sumarstörf hjá Kópavogsbæ hér á heimasíðunni. Þar er um að ræða störf fyrir þá sem fæddir eru 1991 og fyrr. Störfin eru í áhaldahúsi (bæjarvinnu), við vinnuskóla, skólagarða, íþróttavelli, leikjanámskeið og gæsluvelli. 
 

Konsertmeistari á tímamótum - 25.3.2008

Guðný Guðmundsdóttir konsertmeistari stendur á tímamótum og í tilefni af því að hún fagnar sextugsafmæli á árinu 2008 heldur hún glæsilega tónleika í Salnum fimmtudagskvöldið 27. mars kl. 20.
 

Hraðamælingar í Kópavogi í apríl - 25.3.2008

Í apríl næstkomandi mun lögreglan mæla hraða með myndavélabúnaði í ómerktri lögreglubifreið víða í hverfum og á stofnbrautum í Kópavogi.
 

Sumarstörf 2008 - 20.3.2008

Sumarstörf 2008Miðvikudaginn 26. mars verður byrjað að taka við umsóknum um sumarstörf hjá Kópavogsbæ. Þar er um að ræða störf fyrir þá sem eru fæddir 1991 og fyrr. Störfin eru í áhaldahúsi (bæjarvinnu), við vinnuskóla, skólagarða, sundlaugar, íþróttavelli, leikjanámskeið og gæsluvelli.
 

Til hamingju, Ísland - 17.3.2008

Íslenska landsliðið í fótbolta vann sinn stærsta sigur á því færeyska í 23 ár í Kórnum við Vallakór í gær, 3-0. Þetta var í fyrsta sinn sem A-landslið karla lék landsleik innanhúss.
 

Ekvadorsk menningarhátíð í undirbúningi - 14.3.2008

Lenín Moreno, varaforseti Ekvador, var áhugasamur um menningarhátíðina og vill enn fremur ræða við Íslendinga um orkunýtingu, jarðskjálftavöktun, jarðhita og fiskvinnslu. Varaforsetinn sitjandi, standandi f.v. Ari Trausti Guðmundsson, Linda Udengård, Gunnar I. Birgisson og Oswaldo Munoz, ræðismaður Íslands í Ekvador.Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Lenín Moreno, varaforseti Ekvadors, áttu með sér fund í Quito, höfuðborg landsins, á miðvikudag í tengslum við undirbúning á ekvadorskri menningarhátíð í Kópavogi í haust.
 

Breytingar á skipuriti Kópavogsbæjar - 10.3.2008

Bæjarráð Kópavogsbæjar hefur samþykkt nýtt skipurit fyrir rekstur bæjarfélagsins.
 

Landsleikur í fótbolta í Kórnum - 6.3.2008

Völlurinn í Kórnum. Ljósmynd: KrissýLandslið Íslands og Færeyja í knattspyrnu mætast í vináttulandsleik í knatthúsinu Kórnum við Vallakór í Kópavogi sunnudaginn 16. mars næstkomandi klukkan 16.00. Þetta verður fyrsti A-landsleikur karla sem leikinn er innandyra hér á landi.
 

Straumhvörf í Kópavogi - 6.3.2008

Jóhanna Sigurðardóttir og Gunnar I. Birgisson undirrita yfirlýsingu um uppbyggingu búsetu- og þjónustuúrræða fyrir geðfatlaða í Kópavogi.Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, og Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, gáfu í dag út sameiginlega yfirlýsingu um búsetu og þjónustu við fólk með geðfötlun í Kópavogi.
 

Dagskrá Salarins í mars - 5.3.2008

Jónas Ingimundarson í Salnum.„Það er gott að búa í Kópavogi,“ segir Jónas Ingimundarson píanóleikari í sérblaði Fréttablaðsins um bæinn. „Tónlistarlífið er til vitnis um það. Salurinn er hátíðasalur Kópavogsbæjar og þar er listahátíð frá 7. september til 11. maí.“ Salurinn hefur gefið út fréttatilkynningu um alla tónleika á dagskrá í mars.
 

Mannréttindavika í MK - 29.2.2008

Menntaskólinn í Kópavogi í samstarfi við jafnréttisnefnd Kópavogsbæjar heldur mannréttindaviku með kynjuðu ívafi dagana 3.–6. mars næstkomandi.
 

Stefna fjármála- og stjórnsýslusviðs - 29.2.2008

Fjármála- og stjórnsýslusvið Kópavogsbæjar hefur mótað stefnu sem byggist á þremur meginstoðum, samvinnu, fagmennsku og heiðarleika. Bæklingur um stefnuna kom út í dag en í honum er fjallað um hlutverk sviðsins, framtíðarsýn, gildi, markmið, aðgerðir og árangursmælikvarða.
 

Kópavogsbær styrkir MS-félagið - 27.2.2008

Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, afhendir Sigurbjörgu Ármannsdóttur, formanni MS-félagsins 2 milljón króna styrk frá bænum.Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs í Kópavogi, afhenti í dag MS-félagi Íslands fyrir hönd bæjaryfirvalda 2 milljóna króna styrk til stækkunar á húsnæði fyrir dagvist félagsins.
 

Kópavogsbær setur sér innkaupareglur - 26.2.2008

Bæjarstjórn Kópavogsbæjar hefur samþykkt innkaupareglur, sem taka gildi 1. mars næstkomandi, til að stuðla að vönduðum og hagkvæmum innkaupum og til að tryggja gæði vöru, þjónustu og verka.
 

Samið við Eykt ehf. um íþróttahús HK - 24.2.2008

Nýtt íþróttahús HK og Snælandsskóla í Fagralundi. Teikning: Eykt ehf.Bæjarráð hefur samþykkt tillögu dómnefndar um að ganga til samninga við Eykt ehf. um að reisa íþróttamannvirki í Fagralundi í Fossvogsdal. Þar verður reist nýtt íþróttahús og félagsaðstaða HK stækkuð og stórbætt.
 

Brugðist við manneklu í Sunnuhlíð - 22.2.2008

Bæjarráð Kópavogsbæjar hefur samþykkt tímabundna fjárveitingu til sjálfseignarstofnunarinnar Sunnuhlíðar, sem er hjúkrunarheimili aldraðra í Kópavogi, þar sem ekki hefur tekist á síðastliðnum tveimur mánuðum að manna vaktir að fullu.
 

Kópavogsbær tekur við rekstri leikskólans Hvarfs - 17.2.2008

Leikskólanefnd telur heppilegast eins og sakir standa að Kópavogsbær taki við rekstri á leikskólanum Hvarfi sem einkaaðilar hafa rekið á grundvelli þjónustusamnings við bæinn. Bæjarráð hefur staðfest afgreiðslu leikskólanefndar.

 

Þema- og sköpunardagar í félagsmiðstöðvum ÍTK - 15.2.2008

Myndin var tekin í tengslum við sköpunardaga í fyrra sem höfðu yfirskriftina ?ofbeldi: sýnilegt og ósýnilegt?. Þemadagar verða haldnir í öllum félagsmiðstöðvum ÍTK 18., 20. og 22 febrúar næstkomandi. Viðfangsefnin eru margvísleg og grundvallast á fróðleik og verklegri þátttöku. Forstöðumenn og starfsfólk í samvinnu við unglingana útfæra viðfangsefnin.
 

Borg ehf. hefur ekki tilskilin leyfi - 13.2.2008

Einingaverksmiðjan Borg ehf. í Kópavogi auglýsir ranglega í dagblöðum í dag að starfsemi hennar rúmist innan heimilda fyrirliggjandi starfsleyfis. Af því tilefni sendi Kópavogsbær fjölmiðlum yfirlýsingu.
 

Þjóðargjöf frá Eistlandi - 12.2.2008

Eesti Filharmoonia Kammerkoor heldur sjálfstæðistónleika í Salnum.Eistneski kammerkórinn Eesti Filharmoonia Kammerkoor heldur tónleika í Tíbrá tónleikaröðinni í Salnum á sunnudagskvöld kl. 20 í tilefni af því að 90 ár eru síðan eistneska þjóðin varð sjálfstæð. Þessi víðfrægi og margverðlaunaði kór flytur Íslendingum jafnframt þjóðargjöf í þakkarskyni fyrir að viðurkenna fyrstir þjóða endurheimt sjálfstæði Eista árið 1991.
 

Ástin blómstrar - 11.2.2008

Ástin blómstrar í Bókasafni Kópavogs á fimmtudögum fram í miðjan mars. Þá verða haldnir fyrirlestrar um fyrirbærið frá ýmsum sjónarhornum.
 

Bæjarstjóri opnar heilsuræktarstöð World Class - 9.2.2008

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri reynir tækin í nýju heilsuræktarstöð World Class í turninum við Smáratorg.Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, opnaði nýja 700 fm heilsuræktarstöð World Class á 15. hæð í nýja turninum við Smáratorg í dag. Fjölmenni var við opnunina.
 

Við bjóðum góðan dag ? alla daga - 8.2.2008

Börn og starfsmenn í leikskólum gerðu sér dagamun á Degi leikskólans sem bar upp á öskudag.Yfirskrift Dags leikskólans var: „Við bjóðum góðan dag – alla daga!“ Þessi einkunnarorð gáfu ýmsum leikskólum innblástur fyrir verkefni dagsins, t.d. í Álfaheiði urðu þau uppspretta fjölþjóðlegrar umfjöllunar.
 

Góður árangur nemenda í Kópavogi - 7.2.2008

Árangur nemenda í grunnskólum í Kópavogi í samræmdum prófum 10. bekkjar er uppörvandi í samanburði við meðalárangur allra skóla í Suðvesturkjördæmi.
 

Dagur leikskólans í Kópavogi - 5.2.2008

Veggspjald Leikskóla Kópavogs í tilefni af Degi leikskólanna 6. febrúar 2008.Dagur leikskólans 6. febrúar er nú haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn á Íslandi. Haldið verður upp á daginn með margvíslegum hætti í öllum leikskólum Kópavogs. Meðal annars hefur verið gefið út veggspjald til að vekja athygli á starfinu í leikskólunum.
 

Kópavogsbær velur SAP hjá AppliCon - 2.2.2008

Kópavogsbær hefur fest kaup á mannauðs- og launalausnum í SAP viðskiptahugbúnaði frá AppliCon.
 

Dagur leikskólans - 1.2.2008

Dagur leikskólans verður haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn 6. febrúar næstkomandi. Tilgangurinn er að vekja athygli almennings á þýðingu leikskóla fyrir börn og auka áhuga á starfinu. Á forsíðu heimasíðu Kópavogsbæjar er tengill á upplýsingabækling sem gefinn var út í þessu tilefni.
 

Fjölbreytt dagskrá í Salnum - 1.2.2008

Salurinn í Tónlistarhúsi Kópavogs. Mynd: SalurinnSjaldan hefur verið eins fjölbreytt dagskrá í Salnum í Tónlistarhúsi Kópavogs eins og nú í febrúar. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi: Pétur og úlfurinn, Nosferatu-kvikmyndatónleikar, Trio Lurra, Adapter og Ásgerður Júníusdóttir, Hnúkaþeyr, Camilla Söderberg, Bryndís Halla og Anna Guðný, Jussi Björling dagskrá o.s.frv. o.s.frv. Miðasala er hafin.
 

Pétur og úlfurinn - 31.1.2008

Salurinn í Tónlistarhúsi Kópavogs. Mynd: SalurinnLaugardaginn 2. febrúar kl. 13.00 verða einstakir barna- og fjölskyldutónleikar í Salnum í Kópavogi. Flutt verður tónævintýrið vinsæla um Pétur og úlfinn ásamt þáttum úr Myndum á sýningu eftir Mussorgsky.
 

Jónína Leósdóttir fékk Ljóðstaf Jóns úr Vör - 21.1.2008

Frá verðlaunaafhendingunni í Salnum, f.v. Þórarinn Eldjárn, Helgi Ingólfsson, Jónína Leósdóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir, Sigþrúður Gunnarsdóttir og Sigurrós Þorgrímsdóttir; Davíð Hjálmar Haraldsson gat ekki verið viðstaddur. Mynd: Krissý Jónína Leósdóttir rithöfundur hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóð sitt „Miðbæjarmynd“ í árlegri ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs. Jónína Leósdóttir er sjötti handhafi verðlaunanna frá stofnun samkeppninnar árið 2002.
 

Sorphirðudagar í Kópavogi 2008 - 19.1.2008

Dagatal með sorphirðudögum í Kópavogi hefur verið birt á heimasíðu bæjarins.
 

Ritsmiðja í Bókasafni Kópavogs - 17.1.2008

Bókasafn KópavogsBókasafn Kópavogs tekur höndum saman við ritlistarvefinn Rithringur.is um stofnun ritsmiðju á bókasafninu sem öllum mun verða frjáls aðgangur að.
 

Stjörnutónleikar í Salnum - 16.1.2008

Hinn heimskunni Laurent Korcia sem ýmsir telja mesta fiðlusnilling sem uppi er um þessar mundir. Mynd: Lisa RozeEinhver mesti fiðlusnillingur heims, Frakkinn Laurent Korcia, leikur ásamt norska píanistanum Christian Ihle Hadland á tónleikum í Tíbrár tónleikaröðinni í Salnum kl. 20.00 í kvöld.
 

Dómnefnd metur liðlega 250 ljóð - 14.1.2008

Dómnefnd ljóðasamkeppninnar Ljóðstafur Jóns úr Vör að störfum, frá vinstri Sigþrúður Gunnarsdóttir, Þórarinn Eldjárn og Ingibjörg Haraldsdóttir. Ljósmynd: KrissýDómnefnd ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs, Ljóðstafur Jóns úr Vör, hefur farið yfir rúmlega 250 ljóð sem bárust samkeppninni í ár og lagt á þau mat. Greint verður frá niðurstöðunum og veitt verðlaun næstkomandi mánudag, 21. janúar 2008, í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, klukkan 20.
 

Ísland.is leiðarvísir almennings - 14.1.2008

Á heimasíðu Kópavogsbæjar er nú tengill á þjónustusíðuna Ísland.is sem er leiðarvísir að opinberri þjónustu og liður í að auðvelda almenningi aðgang að henni. Þar er einnig að finna upplýsingar fyrir innflytjendur.
 

Hvergi lægra gjald í sund en í Kópavogi - 10.1.2008

Smelltu á frétt 24 stunda um gjaldskrá sundstaðanna til að stækka hana.Samkvæmt athugun Neytendasamtakanna, sem birt er í dagblaðinu „24 stundum“ í dag, er fullorðinsgjald í sundlaugarnar hvergi lægra en í Kópavogi.
 

Jólatré og flugeldarusl hirt - 9.1.2008

Sem fyrri ár hirðir Kópavogsbær jólatré séu þau sett út við lóðamörk.Starfsmenn áhaldahúss Kópavogsbæjar fara þessa dagana um bæinn og hirða jólatré og rusl eftir flugelda sem íbúar hafa komið fyrir við lóðamörk. Hreinsunarátakið stendur fram að helgi að minnsta kosti.
 

Umsóknarfrestur um þátttöku í TÍBRÁ - 8.1.2008

Tónlistarhús Kópavogs. Ljósmynd: KrissýTómstunda-og menningarsvið Kópavogsbæjar auglýsir eftir umsóknum um tónleikahald í TÍBRÁ, tónleikaröð Salarins, 2008–2009. Umsóknarfrestur er til 10. janúar næstkomandi.
 

Íþróttakarl og -kona Kópavogs úr Gerplu - 6.1.2008

Fimleikafólkið Fríða Rún Einarsdóttir og Viktor Kristmannsson voru kjörin íþróttakona og -karl Kópavogs fyrir árið 2007. Með þeim á myndinni er Gunnsteinn Sigurðsson, formaður ÍTK. Ljósmynd: KrissýViktor Kristmannsson, fimleikamaður úr Gerplu, og Fríða Rún Einarsdóttir, fimleikakona úr Gerplu, voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2007 á íþróttahátíð Kópavogs sem fram fór í Salnum í Kópavogi í dag.
 

Sigur í Útsvari - 4.1.2008

Úr Útsvari í september þar sem lið Kópavogs tapaði en það hefur aftur náð sér á strik.Lið Kópavogs í Útsvari, spurningakeppni Sjónvarpsins, vann sannfærandi sigur í grannaslag við lið Álftaness í kvöld. Lokatölurnur urðu 73 stig gegn 45.
 

Börn hreinsa til í sjálfboðavinnu - 4.1.2008

Krakkarnir við Þinghólsbraut tóku til eftir gamlárskvöld.Óhjákvæmilega fellur mikið rusl til um áramót þegar um það bil 800 tonnum af flugeldum er skotið á loft. Krakkarnir við Þinghólsbraut hafa tvenn áramót í röð tekið til í götunni sinni og næsta nágrenni.
 

Íþróttahátíð ÍTK - 4.1.2008

Íþróttahátíð íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogs verður haldin sunnudaginn 6. janúar næstkomandi kl. 15:00 í Salnum í Kópavogi.

 

Hópfimleikasýning í Gerplu á sunnudag - 3.1.2008

Hópfimleikar verða í boði danskra fimleikastúlkna og hópfimleikaliðs Gerplu sunnudaginn 6. janúar næstkomandi.Ganga má að því vísu á sunnudaginn 6. janúar næstkomandi kl. 16 að boðið verði upp á fagra hópfimleika af besta tagi í íþróttamiðstöðinni Versölum þegar danskar fimleikastúlkur og liðssveit Gerplu sýna hvað í þeim býr. Aðgangur er ókeypis.
 

Lesskilningur barna bestur í Kópavogi - 2.1.2008

Nemendur í Kársnesskóla. Ljósmynd: Af heimasíðu KársnesskólaNemendur í grunnskólum í Kópavogi komu best út allra íslenskra nemenda í PISA-könnuninni þar sem lesskilningur fimmtán ára barna var mældur. Þeir eru einnig í hópi þeirra bestu í stærðfræði og náttúrufræði.
 

Greining á leshömlun skilar góðum árangri - 2.1.2008

Frá haustinu 2000 hafa 277 grunnskólanemendur í Kópavogi verið greindir með leshömlun (dyslexiu) og fengið viðeigandi aðstoð. Þetta er árangurinn af sérstöku verkefni sem felst í að finna nemendur sem eiga við lestrarörðugleika að stríða eins snemma á skólagöngunni og kostur er.
 

Gamla árið kvatt með áramótabrennu - 2.1.2008

Áramótabrenna Kópavogs 1. janúar 2008. Ljósmynd: KrissýFjölmennt var og góður andi á áramótabrennu Kópavogs við Smárahvammsvöll þótt orðið hafi að fresta henni um einn dag vegna veðurs. Gamla árið, 2007, var þannig kvatt á nýju ári, 2008, eins og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu.
 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica