Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Pétur og úlfurinn - 31.1.2008

Salurinn í Tónlistarhúsi Kópavogs. Mynd: SalurinnLaugardaginn 2. febrúar kl. 13.00 verða einstakir barna- og fjölskyldutónleikar í Salnum í Kópavogi. Flutt verður tónævintýrið vinsæla um Pétur og úlfinn ásamt þáttum úr Myndum á sýningu eftir Mussorgsky.

Jónína Leósdóttir fékk Ljóðstaf Jóns úr Vör - 21.1.2008

Frá verðlaunaafhendingunni í Salnum, f.v. Þórarinn Eldjárn, Helgi Ingólfsson, Jónína Leósdóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir, Sigþrúður Gunnarsdóttir og Sigurrós Þorgrímsdóttir; Davíð Hjálmar Haraldsson gat ekki verið viðstaddur. Mynd: Krissý Jónína Leósdóttir rithöfundur hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóð sitt „Miðbæjarmynd“ í árlegri ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs. Jónína Leósdóttir er sjötti handhafi verðlaunanna frá stofnun samkeppninnar árið 2002.

Sorphirðudagar í Kópavogi 2008 - 19.1.2008

Dagatal með sorphirðudögum í Kópavogi hefur verið birt á heimasíðu bæjarins.

Ritsmiðja í Bókasafni Kópavogs - 17.1.2008

Bókasafn KópavogsBókasafn Kópavogs tekur höndum saman við ritlistarvefinn Rithringur.is um stofnun ritsmiðju á bókasafninu sem öllum mun verða frjáls aðgangur að.

Stjörnutónleikar í Salnum - 16.1.2008

Hinn heimskunni Laurent Korcia sem ýmsir telja mesta fiðlusnilling sem uppi er um þessar mundir. Mynd: Lisa RozeEinhver mesti fiðlusnillingur heims, Frakkinn Laurent Korcia, leikur ásamt norska píanistanum Christian Ihle Hadland á tónleikum í Tíbrár tónleikaröðinni í Salnum kl. 20.00 í kvöld.

Dómnefnd metur liðlega 250 ljóð - 14.1.2008

Dómnefnd ljóðasamkeppninnar Ljóðstafur Jóns úr Vör að störfum, frá vinstri Sigþrúður Gunnarsdóttir, Þórarinn Eldjárn og Ingibjörg Haraldsdóttir. Ljósmynd: KrissýDómnefnd ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs, Ljóðstafur Jóns úr Vör, hefur farið yfir rúmlega 250 ljóð sem bárust samkeppninni í ár og lagt á þau mat. Greint verður frá niðurstöðunum og veitt verðlaun næstkomandi mánudag, 21. janúar 2008, í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, klukkan 20.

Ísland.is leiðarvísir almennings - 14.1.2008

Á heimasíðu Kópavogsbæjar er nú tengill á þjónustusíðuna Ísland.is sem er leiðarvísir að opinberri þjónustu og liður í að auðvelda almenningi aðgang að henni. Þar er einnig að finna upplýsingar fyrir innflytjendur.

Hvergi lægra gjald í sund en í Kópavogi - 10.1.2008

Smelltu á frétt 24 stunda um gjaldskrá sundstaðanna til að stækka hana.Samkvæmt athugun Neytendasamtakanna, sem birt er í dagblaðinu „24 stundum“ í dag, er fullorðinsgjald í sundlaugarnar hvergi lægra en í Kópavogi.

Jólatré og flugeldarusl hirt - 9.1.2008

Sem fyrri ár hirðir Kópavogsbær jólatré séu þau sett út við lóðamörk.Starfsmenn áhaldahúss Kópavogsbæjar fara þessa dagana um bæinn og hirða jólatré og rusl eftir flugelda sem íbúar hafa komið fyrir við lóðamörk. Hreinsunarátakið stendur fram að helgi að minnsta kosti.

Umsóknarfrestur um þátttöku í TÍBRÁ - 8.1.2008

Tónlistarhús Kópavogs. Ljósmynd: KrissýTómstunda-og menningarsvið Kópavogsbæjar auglýsir eftir umsóknum um tónleikahald í TÍBRÁ, tónleikaröð Salarins, 2008–2009. Umsóknarfrestur er til 10. janúar næstkomandi.

Íþróttakarl og -kona Kópavogs úr Gerplu - 6.1.2008

Fimleikafólkið Fríða Rún Einarsdóttir og Viktor Kristmannsson voru kjörin íþróttakona og -karl Kópavogs fyrir árið 2007. Með þeim á myndinni er Gunnsteinn Sigurðsson, formaður ÍTK. Ljósmynd: KrissýViktor Kristmannsson, fimleikamaður úr Gerplu, og Fríða Rún Einarsdóttir, fimleikakona úr Gerplu, voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2007 á íþróttahátíð Kópavogs sem fram fór í Salnum í Kópavogi í dag.

Sigur í Útsvari - 4.1.2008

Úr Útsvari í september þar sem lið Kópavogs tapaði en það hefur aftur náð sér á strik.Lið Kópavogs í Útsvari, spurningakeppni Sjónvarpsins, vann sannfærandi sigur í grannaslag við lið Álftaness í kvöld. Lokatölurnur urðu 73 stig gegn 45.

Börn hreinsa til í sjálfboðavinnu - 4.1.2008

Krakkarnir við Þinghólsbraut tóku til eftir gamlárskvöld.Óhjákvæmilega fellur mikið rusl til um áramót þegar um það bil 800 tonnum af flugeldum er skotið á loft. Krakkarnir við Þinghólsbraut hafa tvenn áramót í röð tekið til í götunni sinni og næsta nágrenni.

Íþróttahátíð ÍTK - 4.1.2008

Íþróttahátíð íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogs verður haldin sunnudaginn 6. janúar næstkomandi kl. 15:00 í Salnum í Kópavogi.

Hópfimleikasýning í Gerplu á sunnudag - 3.1.2008

Hópfimleikar verða í boði danskra fimleikastúlkna og hópfimleikaliðs Gerplu sunnudaginn 6. janúar næstkomandi.Ganga má að því vísu á sunnudaginn 6. janúar næstkomandi kl. 16 að boðið verði upp á fagra hópfimleika af besta tagi í íþróttamiðstöðinni Versölum þegar danskar fimleikastúlkur og liðssveit Gerplu sýna hvað í þeim býr. Aðgangur er ókeypis.

Lesskilningur barna bestur í Kópavogi - 2.1.2008

Nemendur í Kársnesskóla. Ljósmynd: Af heimasíðu KársnesskólaNemendur í grunnskólum í Kópavogi komu best út allra íslenskra nemenda í PISA-könnuninni þar sem lesskilningur fimmtán ára barna var mældur. Þeir eru einnig í hópi þeirra bestu í stærðfræði og náttúrufræði.

Greining á leshömlun skilar góðum árangri - 2.1.2008

Frá haustinu 2000 hafa 277 grunnskólanemendur í Kópavogi verið greindir með leshömlun (dyslexiu) og fengið viðeigandi aðstoð. Þetta er árangurinn af sérstöku verkefni sem felst í að finna nemendur sem eiga við lestrarörðugleika að stríða eins snemma á skólagöngunni og kostur er.

Gamla árið kvatt með áramótabrennu - 2.1.2008

Áramótabrenna Kópavogs 1. janúar 2008. Ljósmynd: KrissýFjölmennt var og góður andi á áramótabrennu Kópavogs við Smárahvammsvöll þótt orðið hafi að fresta henni um einn dag vegna veðurs. Gamla árið, 2007, var þannig kvatt á nýju ári, 2008, eins og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu.