des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb.
Stjórn Sunnuhlíðar, hjúkrunarheimilis aldraðra í Kópavogi, bauð Guðlaugi Þór Þórðarsyni, heilbrigðisráðherra, í heimsókn á föstudag og enn fremur Sigurrósu Þorgrímsdóttur, forseta bæjarstjórnar Kópavogs, og Ómari Stefánssyni, formanni bæjarráðs. Meðal annars var rætt um stækkun hjúkrunarheimilisins.
Kópavogsbær og Slysavarnafélagið Landsbjörg hafa í samstarfi við Securitas tekið út fjölmarga öryggisþætti og gert úrbætur á þeim heimilum eldri borgara í Kópavogi sem slíka öryggisskoðun þáðu. Jafnframt var metið hvort viðkomandi væru einmana eða byggju við slæmar aðstæður og þörfnuðust aðstoðar félagsmálayfirvalda.
Byrjað er að taka við umsóknum um sumarstörf hjá Kópavogsbæ hér á heimasíðunni. Þar er um að ræða störf fyrir þá sem fæddir eru 1991 og fyrr. Störfin eru í áhaldahúsi (bæjarvinnu), við vinnuskóla, skólagarða, íþróttavelli, leikjanámskeið og gæsluvelli.
Guðný Guðmundsdóttir konsertmeistari stendur á tímamótum og í tilefni af því að hún fagnar sextugsafmæli á árinu 2008 heldur hún glæsilega tónleika í Salnum fimmtudagskvöldið 27. mars kl. 20.
Í apríl næstkomandi mun lögreglan mæla hraða með myndavélabúnaði í ómerktri lögreglubifreið víða í hverfum og á stofnbrautum í Kópavogi.
Miðvikudaginn 26. mars verður byrjað að taka við umsóknum um sumarstörf hjá Kópavogsbæ. Þar er um að ræða störf fyrir þá sem eru fæddir 1991 og fyrr. Störfin eru í áhaldahúsi (bæjarvinnu), við vinnuskóla, skólagarða, sundlaugar, íþróttavelli, leikjanámskeið og gæsluvelli.
Bæjarráð Kópavogsbæjar hefur samþykkt nýtt skipurit fyrir rekstur bæjarfélagsins.
„Það er gott að búa í Kópavogi,“ segir Jónas Ingimundarson píanóleikari í sérblaði Fréttablaðsins um bæinn. „Tónlistarlífið er til vitnis um það. Salurinn er hátíðasalur Kópavogsbæjar og þar er listahátíð frá 7. september til 11. maí.“ Salurinn hefur gefið út fréttatilkynningu um alla tónleika á dagskrá í mars.