Fyrirsagnalisti

Jafnréttisnefnd Kópavogsbæjar auglýsir eftir tilnefningum vegna árlegrar jafnréttisviðurkenningar. Frestur er til og með 10. júní næstkomandi.

Fjölskylduskemmtunin Bryggjudagur verður haldin í þriðja sinn á morgun, laugardaginn 31. maí, á Bakkabraut. Boðið verður upp á fjölbreytni í mat og listum öllum að kostnaðarlausu.

Vorsýningar Gerplu verða glæsilegar um helgina. Á annað þúsund barna og ungmenna koma fram, þar á meðal Íslands- og bikarmeistarar í áhalda- og hópfimleikum.

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri ásamt Jóni Helga Guðmundssyni forstjóra og móður hans Önnu Bjarnadóttur klipptu á borða til marks um opnun nýja verslunarkjarnans Linda í Kópavogi í dag.

Starfsemi skólagarða Kópavogs sumarið 2008 hefst á mánudaginn 2. júní en innritun er hafin á vefsíðu þeirra. Opið verður fyrstu vikuna kl. 15–19 og munu krakkarnir setja niður grænmeti þá.

Níu starfsmenn Kópavogsbæjar með annað móðurmál en íslensku hafa lokið byrjendanámskeiði í íslensku.
Kópavogsbær hefur gert samning við Dansíþróttafélag Kópavogs um árlegan 3 milljóna króna rekstrarstyrk. Forsvarsmenn dansíþróttafélagsins

Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt að veita allt að 20 milljónum króna á þessu ári til að hreinsa veggjakrot og annan viðlíka óþrifnað af mannvirkjum í eigu bæjarfélagsins.
Skilafrestur umsókna í Vinnuskóla Kópavogs hefur verið framlengdur til 1. júní. Aðeins þeir sem skila umsóknum fyrir þann tíma geta búist við því að fá að hefja störf 9. júní.

Opið hús verður hjá Hjálparsveit skáta í Kópavogi við Kópavogshöfn næstkomandi laugardag, 31. maí, í tengslum við Bryggjudaginn.

Salaskóli fékk afhentan Grænfánann í þriðja skiptið í dag. Afhendingin fór fram á opnu húsi skólans þar sem sýndur var afrakstur vetrarins. Auk þess tóku bæjarstjórinn og einn af heimsmeisturum Salaskóla í skák eina bröndótta til hátíðabrigða.

Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, afhentu krabbameinsátakinu „Á allra vörum“ 500 þúsund króna fjárstyrk fyrir hönd Kópavogsbæjar í Listasafni Kópavogs – Gerðarsafni á sunnudag.

Fjölskylduskemmtunin Bryggjudagur verður haldin í þriðja sinn laugardaginn 31. maí á Bakkabraut. Boðið verður upp á fjölbreytni í mat og listum öllum að kostnaðarlausu.

Stuðningssamkoma átaksins „Á allra vörum“ til stuðnings Krabbameinsfélagi Íslands verður haldin í Listasafni Kópavogs - Gerðarsafni á sunnudaginn kl. 15–17. Á samkomunni verður forsvarsmönnum átaksins afhentur veglegur styrkur frá Kópavogsbæ.

Þróunarverkefninu Jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum var ýtt úr vör í dag með undirritun samkomulags milli félags- og tryggingamálaráðherra, fimm sveitarfélaga, þar á meðal Kópavogs, og Jafnréttisstofu.

Kópavogsbær styrkir hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð með sérstakri tímabundinni fjárveitingu til að gera heimilinu kleift að ráða í ómannaðar stöður og auka þjónustuna. Auk þess hefur verið skrifað undir samkomulag um samstarf varðandi vistun einstaklinga af Roðasölum sem er sambýli og dagþjálfun fyrir heilabilaða í Kópavogi.

Flugvélasprengja úr seinni heimsstyrjöld fannst þegar verið var að grafa fyrir grunni að nýju íþróttahúsi og félagsaðstöðu HK í Fagralundi skömmu eftir hádegi í gær. Lögregla lokaði af stórt svæði umhverfis sprengjuna í varúðarskyni og sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslu Íslands gerðu hana óvirka.

Framkvæmdir eru hafnar við byggingu íþróttahúss og félagsaðstöðu HK í Fagralundi í Fossvogsdal. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, tók fyrstu skóflustunguna að íþróttamannvirkinu og pantaði við það tækifæri Íslandsmeistaratitla í samræmi við aðstöðuna.

Félagsmálaráð Kópavogs hefur samþykkt einróma að veita dagforeldrum sem starfa í bæjarfélaginu aðstöðustyrk að fjárhæð kr. 100 þúsund með því skilyrði að þeir starfi í að minnsta kosti eitt ár.

Í tilefni af því að 50 ár eru liðin frá stofnun æskulýðsráðs í Kópavogi, sem nú er ÍTK (íþrótta- og tómstundaráð Kópavogs), verður haldin æskulýðshátíð 16. og 17. maí næstkomandi.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra opnaði ný sundlaugarmannvirki í Sundlaug Kópavogs við Borgarholtsbraut við hátíðlega athöfn í gær. Þar með lauk Kópavogsdögum, menningarhátíð Kópavogsbæjar, sem staðið hefur frá 3. maí.

Stefán Hilmarsson söngvari var kjörinn heiðurslistamaður Kópavogsbæjar fyrir árið 2008.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, opnuðu formlega nýju áhorfendastúkuna við Kópavogsvöll við hátíðlega athöfn á Kópavogsdögum í dag.

Kópavogur fór með sigur af hólmi í úrslitaviðureign spurningakeppni sveitarfélaganna Útsvari sem fram fór í Sjónvarpinu í kvöld.

Kjör heiðurslistamanns Kópavogs fyrir árið 2008 verður tilkynnt á hátíðardagskrá lista- og menningarráðs Kópavogsbæjar í Salnum á morgun, föstudaginn 9. maí, kl. 17.00 en hún stendur til kl. 18.00. Allir eru velkomnir.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra opnar formlega nýju áhorfendastúkuna við Kópavogsvöll við hátíðlega athöfn á Kópavogsdögum á morgun, föstudaginn 9. maí, kl. 15.00.

Fyrirlestur í Náttúrufræðistofu um hugsanleg tengsl hlýnunar í Elliðavatni og fækkunar bleikju í afla veiðimanna er meðal dagskráratriða á Kópavogsdögum sem vakið hafa verðskuldaða athygli. Í gær var svo annar forvitnilegur fyrirlestur, í það sinn um Þríhnúkagíg.

„Það er von okkar að Kópavogsdagar veiti íbúum bæjarins tækifæri til að kynnast bænum sínum og þeirri fjölbreyttu starfsemi sem fram fer í stofnunum bæjarins betur,“ sagði Sigurrós Þorgrímsdóttir, formaður lista- og menningarráðs Kópavogs, þegar hún setti Kópavogsdaga 2008.

Nýtt ungmennahús í Kópavogi hefur hlotið nafnið Molinn en það var opnað á setningardegi Kópavogsdaga, menningarhátíðar í Kópavogi, laugardaginn 3. maí síðastliðinn við hátíðlega athöfn.

Vegna framkvæmda við uppsetningu á öryggiskerfi í Sundlaug Kópavogs verður laugin lokuð í vikutíma, nánar tiltekið frá mánudeginum 5. maí til mánudagsins 12. maí.