des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb.
Næstum því þriðjungi ökutækja var ekið of hratt um Reykjanesbraut síðdegis í gær þar sem fram fara vegaframkvæmdir. Þetta leiddi sérstök vöktun lögreglu með hraðamyndavél í ljós.
Tónleikagestir Salarins fá að njóta tónlistarhæfileika gítarleikarans Ögmundar Þórs Jóhannessonar 1. nóvember næstkomandi klukkan 17. Ögmundur er uppalinn í Kópavogi en býr nú í Berlín og kennir og leikur á gítar víðsvegar um heiminn.
Síma-, heimsóknar- og afgreiðslutíma á launadeild Kópavogsbæjar verður milli kl. 8.30 og 13.00 alla virka daga frá og með 20. október næstkomandi. Tilgangurinn er að auka skilvirkni og öryggi í launavinnslu.
Suður-amerísk menningarhátíð í Kópavogi hlaut frábærar viðtökur. Gestir létu ekki dökkt útlit í efnahagsmálum slá sig út af laginu því að þeir flykktust í þúsundavís í menningarstofnanir Kópavogs til að fylgjast með fjölbreyttum viðburðum hátíðarinnar. Þótt dagskránni hafi lokið í gær halda sýningar í Gerðarsafni og Safnahúsi Kópavogs áfram til 16. nóvember.
Dansflokkurinn Jacchigua steig friðardansinn við setningu Ekvador - suður-amerískrar menningarhátíðar í Listasafni Kópavogs - Gerðarsafni í dag. Bæjarstjóri Kópavogs, Gunnar I. Birgisson, setti hátíðina, Oswaldo Munoz, ræðismaður Íslands í Ekvador, flutti snjallt ávarp og forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, opnaði sýninguna Ekvador að fornu og nýju, sem er yfirlitssýning listmuna og málverka frá 4000 f. Kr. til okkar daga.
Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, buðu í dag 175 ára ættarhöfðingja og töframann Shuar-indíánaþjóðflokksins í Ekvador velkominn í Kópavog. Hann er heiðursgestur suður-amerísku menningarhátíðarinnar sem hefst um helgina og tekur á móti gestum í Náttúrufræðistofu Kópavogs.