Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Mikil stemmning á jólahátíð í Kópavogi - 30.11.2008

Jólahátíð í Kópavogi vel sóttJólaljósin á vinabæjarjólatré Kópavogsbúa voru tendruð við hátíðlega athöfn á Hálsatorgi í gær. Þetta er í 41. sinn sem tréð er afhent með vinarkveðju frá íbúum Norrköping í Svíþjóð. Sigurrós Þorgrímsdóttir, forseti bæjarstjórnar, tók formlega við trénu og fluttar voru vinarkveðjur frá bæjarstjóra Norrköping.

Jólatré til sölu að Fossá í Hvalfirði - 26.11.2008

Hefur þig dreymt um að fara með fjölskyldu þinni í skógarhögg þar sem þið veljið ykkar eigið jólatré og höggvið það sjálf? Einstaklingum sem og starfsmannahópum gefst nú, eins og undanfarin ár, frábært tækifæri til að koma í desember að Fossá í Kjós og ná sér í jólatré.

Viðurkenning fyrir gott aðgengi - 26.11.2008

Frá afhendingu á viðurkenningu fyrir gott aðgengi í Smáralind.Í tilefni af Alþjóðadegi fatlaðra þann 3. desember næstkomandi mun ferlinefnd Kópavogs veita í fjórða sinn viðurkenningu fyrir gott aðgengi. Athöfnin fer fram í Gerðarsafni kl. 15.00.

Jólahátíð í Kópavogi - 26.11.2008

Laugardaginn 29. nóvember verður jólahátíð í Kópavogi á Hálsatorgi og í nærliggjandi menningarstofnunum. Kópavogsbúum og öðrum gestum er meðal annars boðið að taka þátt í laufabrauðsbakstri, hlusta á jólasöngva, fræðast um jólaköttinn og tendra á jólaljósunum á vinarbæjarjólatré Kópavogsbúa.

Danssýning í Smáranum - 24.11.2008

Gleðin og fegurðin var við völd í íþróttahúsinu Smáranum á sunnudag þar sem fram fór nemendasýning Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar. „Nú eru að mörgu leyti erfiðir tímar og allt sem lyftir geði okkar og léttir lundina fær nýtt, eða á ég að segja endurnýjað, gildi,“ sagði Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri í ávarpi af þessu tilefni. „Þess vegna er svo gaman að sjá hve margir áhugasamir þátttakendur eru hér á nemendasýningunni.“

Gilligill í Salnum á sunnudag - 21.11.2008

Sérstakir fjölskyldutónleikar með lögum af hljómplötunni Gilligill eru í Salnum á sunnudögum fram að jólum, næst sunnudaginn 23. nóvember.

SOPRANOS - söngtríó í Salnum - 19.11.2008

Þrjár söngkonur sem kalla sig SOPRANOS efna til tónleika í Salnum föstudagskvöldið 21. nóvember kl. 20 til að skemmta og glæða áhugann á sígildri sönglist.

Kópavogsbær eykur þjónustu með nýju símkerfi - 18.11.2008

F.v. Guðbjörg Ester Einarsdóttir, Klara Ragnarsdóttur, Steinunn Sigurðardóttir og Sigurbjörg H. Hauksdóttir, starfsmenn þjónustuversins, Ingimar Þór Friðriksson, forstöðumaður upplýsingatæknideildar, Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri, Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, og Einar Örn Birgisson, vörustjóri símlausna hjá Nýherja.Kópavogsbær hefur tekið í notkun IP símkerfi frá Nýherja sem bætir þjónustu við íbúa og einfaldar aðgengi þeirra að stofnunum bæjarins.

Geðheilbrigðismál - fræðsludagar - 17.11.2008

Valdefling í verki, fræðsludagar um geðheilbrigðismál, verða haldnir í Haukaheimilinu á Ásvöllum í Hafnarfirði fimmtudaginn 20. og föstudaginn 21. nóvember. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.

Sigur á Akranesi í Útsvari - 15.11.2008

Sigurliðið frá því í fyrra afhendir bæjarstjóranum verðlaunin - sem hafa notið þvílíkra vinsælda á bæjarskrifstofunum að rafhlaðan er búin í bjöllunni.Lið Kópavogsbæjar vann lið Akraness í Útsvari, spurningakeppni Sjónvarpsins, í gærkvöld með 95 stigum gegn 65.

Upplestur rithöfunda í Bókasafni Kópavogs - 14.11.2008

Höfundar lesa úr jólabókunum í Bókasafni Kópavogs næstkomandi fimmtudag, 20. nóvember, kl. 17.15.

?Allt hefur áhrif, einkum við sjálf? - 14.11.2008

„Allt hefur áhrif, einkum við sjálf“ er sameiginlegt þróunarverkefni Lýðheilsustöðvar og sveitarfélaga, þar á meðal Kópavogs, sem hefur að markmiði að bæta lýðheilsu. Kópavogur hefur tekið þátt í undirbúningi verkefnisins frá ársbyrjun 2005 sem nú er komið á koppinn.

Gilligill í Salnum - frábær skemmtun! - 14.11.2008

Börnin tóku þátt af lífi og sál...Í tilefni af útkomu barnaplötunnar Gilligill verða haldnir sérstakir Gilligill–tónleikar í Salnum í Kópavogi, alla sunnudaga fram að jólum klukkan 13.00 og 15.00. Fyrstu tónleikarnir verða 16. nóvember.

Stíllinn í Smáranum 22. nóvember - 14.11.2008

Auglýsing fyrir Stílinn 2008.Stíllinn er einn af stórviðburðum Samfés og fer fram í íþróttahúsinu Smáranum laugardaginn 22. nóvember næstkomandi. Þetta í áttunda sinn sem keppnin er haldin. Þemað er „framtíðin“.

Ársreikningurinn 2007 á Netinu - 12.11.2008

Margmiðlunarefni með upplýsingum í máli og myndum um ársreikning og rekstur bæjarfélagsins árið 2007 hefur verið birt hér á heimasíðu Kópavogsbæjar. Markmiðið er að gera upplýsingar um Kópavog aðgengilegri en áður og nýta rafræna tækni með hliðsjón af almennri tölvunotkun og tengingu við Netið.

Ókeypis fjármálanámskeið - 11.11.2008

Kópavogsbær býður ásamt ráðgjafaátakinu Hönd í hönd, Kópavogsdeild Rauða krossins og Neytendasamtökunum upp á ókeypis fjármálanámskeið fyrir Kópavogsbúa.

Ljóðasamkeppni: Skilafrestur til 1. desember - 11.11.2008

Ljóðasamkeppnin er kennd við Jón úr Vör og hafa verðlaunahafar verið sex áður.Lista- og menningarráð Kópavogs efnir til árlegrar ljóðasamkeppni undir heitinu „Ljóðstafur Jóns úr Vör“. Skilafrestur ljóða er til 1. desember næstkomandi.

Gersemar Íslands og Rússlands í Salnum - 10.11.2008

Terem kvartettinn, þjóðargersemi Rússlands að mati gagnrýnenda sem auk þess að hafa fengið blessun páfa og móður Theresu, verður ásamt þjóðargersemi Íslands, Diddú, í Salnum laugardaginn næsta, 15. nóvember.

Ársrit Héraðsskjalasafns Kópavogs komið út - 8.11.2008

Ársrit Héraðsskjalasafns Kópavogs 2006-2007 er komið út og er til sölu í Bókasafni Kópavogs.Út er komið ársrit Héraðsskjalasafns Kópavogs 2006–2007. Efni ritsins eru skýrslur um starfsemi og sögu Héraðsskjalasafns Kópavogs frá stofnun þess árið 2000 til ársins 2007 auk útgáfu skráa yfir opinber skjöl og einkaskjöl í vörslu skjalasafnsins.

Yfirlit um foreldrastarf í Kópavogsskóla - 7.11.2008

Þáttaskil hafa orðið í margverðlaunuðu foreldrastarfi í Kópavogsskóli með nýjum grunnskólalögum. Ólafur Guðmundsson, fyrrverandi skólastjóri Kópavogsskóla, hefur tekið saman yfirlit um foreldrastarfið gegnum tíðina.

Vímuefnaneysla unglinga í Kópavogi minnkar - 7.11.2008

Talsvert hefur dregið úr áfengisdrykkju og reykingum 10. bekkinga í Kópavogi. Þetta sýna niðurstöður úr rannsókn Rannsóknar & greiningar á högum og líðan elstu nemenda í grunnskólum Kópavogs. Níu af hverjum tíu finnst félagslíf fyrir unglinga í bænum gott.

Sendinefnd Wuhan-borgar í heimsókn - 7.11.2008

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri kynnir starfsemi bæjarfélagsins fyrir vinabæjarnefnd Wuhan-borgar í Kína.Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, tóku í dag á móti sendinefnd frá Wuhan, vinabæ Kópavogs í Kína, til að ræða frekari menningarsamskipti í framhaldi af Kínverskri menningarhátíð í bænum árið 2007.